Spegillinn

Riða, kosningar í Finnlandi og fordómar á vinnumarkaði


Listen Later

690 kindum verður lógað á bænum Bergsstöðum í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu eftir að riða greindist á bænum. Þetta er í fyrsta sinn sem riða greinist í Miðfjarðarhólfi. Valur Grettisson sagði frá.
Konur koma meira en helmingi sjaldnar fyrir en karlar í auglýsingu fyrir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta. Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna gera athugasemd við auglýsinguna og vilja að konum sé gert hærra undir höfði. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir segir frá.
Líklegt þykir að aukin áhersla verði á efnahagsmál ef Petteri Orpo nær að mynda ríkisstjórn í Finnlandi. Óánægja kjósenda sneri fyrst og fremst að aukinni skuldsetningu ríkisins sem sýndi sig í kosningunum um helgina. Finnar ganga formlega í NATO á morgun.
Fólk af erlendum uppruna upplifir fordóma á íslenskum vinnumarkaði. Nýleg rannsókn sýnir að ósýnilegar hindranir mæta þeim, líka fólki sem hefur alist upp og er menntað hér; ekki síst þegar nafn eða útlitseinkenni gefa vísbendingu um erlendan uppruna.
-----
Ný ríkisstjórn er í smíðum í Finnlandi eftir kosningar um helgina. Líklegt er að nýr forsætisráðherra taki við stjórnartaumunum af Sönnu Marin þrátt fyrir að flokkur hennar hafi bætt við sig fylgi í kosningunum. Á sama tíma eru Finnar komnir að dyragættinni inn í Atlantshafsbandalagið. En hvers vegna hlutu Sósialdemókratar, flokkur Sönnu Marin forsætisráðherra, ekki sama stuðning nú og í seinustu kosningum? Bjarni Rúnarsson ræðir við Tapio Koivukari rithöfund og þýðanda.
Fólk af erlendum uppruna upplifir fordóma á íslenskum vinnumarkaði. Nýleg rannsókn sýnir að ósýnilegar hindranir mæta þeim, líka fólki sem hefur alist upp og er menntað hér; ekki síst þeim sem bera nafn eða útlits sem einkenni sem gefa vísbendingu um erlendan uppruna. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Moniku Jovisic.
Stríðsfréttabloggarinn Vladen Tatarsky birti á samfélagsmiðlinum Telegram pistil og kallaði Vecherny Vladen, eða Kvöld Vladen. Þar fjallaði hann um gang innrásarinnar í Úkraínu, sem stuðningslið hennar, rússneskt jafnt sem erlent, kallar alla jafna "sértæka hernaðaraðgerð".Rödd Tatarskys er þögnuð. Hann lést í gær í sprengjutilræði á kaffihúsi í Pétursborg þar sem hann flutti fyrirlestur um innrásina fyrir hóp fólks. Ásgeir Tómasson fjallar um málið.
Spegillinn 3. apríl 2023.
Umsjón: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

145 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

8 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

23 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

9 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

74 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

3 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

23 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners