Spegillinn

Ríkislögreglustjóri vanhæfur, fellibylurinn Ian og heimskulegt stríð


Listen Later

Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Ríkislögreglustjóri hefur sagt sig frá rannsókn á meintum undirbúningi hryðjuverka vegna fjölskyldutengsla. Rannsókn lögreglu er afar viðamikil.
Bandaríkjaforseti varar við að fellibylurinn Ian eigi eftir að skilja eftir sig sögulega mikla eyðileggingu í Flórída. Íslendingur á svæðinu óttaðist að brak myndi fjúka á hús sitt. Rætt var við Brynju Dröfn Ingadóttur.
Rússneskir hermenn greindu ástvinum sínum frá ringulreið og miklu mannfalli í innrásinni í Úkraínu á fyrstu vikum stríðsins. Einn þeirra segir innrásina heimskulegustu ákvörðun sem rússnesk stjórnvöld hafi gert. Róbert Jóhannsson tók saman.
Breska lögreglan rannsakar árekstur á þotu Icelandair á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í gærkvöld. Farangur farþega er enn um borð í vélinni. Urður Örlygsdóttir tók saman og talaði við Guðna Sigurðsson.
Utanríkisráðherra Þýskalands þrýstir á Evrópusambandið að beita Írani viðskiptaþvingunum vegna viðbragða ríkisins við mótmælum undanfarinna daga.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, á undir högg að sækja þegar aðeins tveir dagar eru til forsetakosninga í landinu. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum munar þrettán prósentustigum á honum og höfuðandstæðingi hans, vinstrimanninum Lula da Silva. Bolsonaro segist ekki ætla að fallast á niðurstöðuna, verði hún ekki sér í vil. Ásgeir Tómasson tók saman.
Lögregla segir að rannsókn á undirbúningi ætlaðra hryðjuverka sem greint var frá í síðustu viku miði vel en sé mjög umfangsmikil. Tveir menn, sem voru handteknir fyrir viku, eru í gæsluvarðhaldi og verða til 6. október. Fleiri hafa verið handteknir.Í upphafi fréttamannafundar sem haldinn var síðdegis, greindi Sveinn Ingiberg Magnússon yfirlögregluþjónn hjá Héraðssaksóknara frá því að ríkislögreglustjóri hefði í gær óskað þess að segja sig frá rannsókninni. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Við fáum Sunnu Karen Sigurþórsdóttur fréttamann til að fara betur yfir stöðuna og það sem vitað er um málið.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners