Rússneska þingið hefur samþykkt einróma að beita hernum utan landamæra Rússlands. Jón Ólafsson, sérfræðingur í málefnum Rússlands segir meiri líkur á stríði eftir ákvörðun Pútíns. Ólöf Ragnarsdóttir tók saman.
Ekki verður unnt að opna Hellisheiði og Þrengsli í dag, en enn er unnið að því að losa bíla sem þar hafa setið fastir í nærri sólarhring. Arnar Björnsson talaði við Árna Pálsson snjómokstursmann í Þrengslunum.
Dóra Sigurðardóttir, bóndi á Vatnsdalshólum í Húnavatnssýslu segist aldrei hafa upplifað viðlíka veðurofsa og gekk yfir í nótt. Mikið tjón varð á húsum og tækjum á bænum.
Stjórnvöld stefna enn að því að aflétta öllum sóttvarnaaðgerðum fyrir vikulok segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. Valgeir Örn Ragnarsson talaði við hann.
Mannekla innan heilbrigðiskerfisins vegna covid fer síversnandi um land allt. Jón Helgi Björnsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir stöðuna þunga, ekki hafi margir skráð sig á bakvarðalista. Anna Þorbjörg Jónasdóttir talaði við hann.
-------------
Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur er vel að sér í málefnum Rússlands og Úkraínu þar sem hann lagði stund á nám. Hann efast um að yfirlýsingar Pútíns lýsi ríkjandi viðhorfi Rússa til landsins. Þetta séu frændþjóðir og rík tengsl á milli. Hann telur ekki að innrás sé Pútín í hag til lengri tíma litið. Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra telur mögulegt að Rússar hyggi á stærri hernaðaraðgerðir. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman og talaði við Val.
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir alveg ljóst að nú, þegar sjái fyrir endann á faraldrinum og afnám allra sóttvarnareglna, þurfi efnahagsmálin að vera í aðalhlutverki og þá helst hvernig eigi að grípa viðkvæmustu hópana. Hann segir ríkisstjórnina ósamstíga eftir samstöðu í faraldrinum og innrás Rússa í Úkraínu geti haft mikla afleiðingar hér innanlands, staðan þar sé grafalvarleg. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Loga í Alþingishúsinu í dag.
Norðmenn þurfa að hætta loðnuveiðum við Ísland í dag og brenna inni með milljarða verðmæti í óveiddum kvóta. Þeir kvarta undan skilyrðum Íslendinga og segja þau hafi tafið veiðar. En þeir mættu líka seint á miðin og setja sjálfi skilyrð meðal annars til að norsk skip landi loðnunni frekar í heimalandinu. Rúnar Snær Reynisson, fréttamaður á Austurlandi fór yfir málið.
Umsjón: Andri Yrkill Valsson. Tæknimaður: Jón Þór Helgason