Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Krabbameinsskráning, fræbanki á Svalbarða, málfar og lífupplýsingar
    Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagins kemur til okkar en nýverið var gefin út spá um fjölgun nýrra krabbameinstilfella til ársins 2040 og þar kom í ljós að gert er ráð fyrir yfir fimmtíu prósent hlutfallslegri aukningu hér á landi. Þetta er unnið upp úr gögnum eins og þeim sem meðal annars Sigríður og hennar fólk safnar. Við fáum að vita allt um fræbanka norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar, NordGen á Svalbarða. Þessi frægeymsla er stundum kölluð dómsdagshvelfingin - sem hljómar dálítið eins og mannvirki í James Bond mynd. Árni Bragason landgræðslustjóri, starfaði um árabil sem forstjóri NordGen og hefur margoft heimsótt Svalbarða og hvelfinguna. Hann verður á línunni. Malfarsmínútan er á sínum stað - og svo er dýraspjall í dag - og við ætlum að ræða við Arnar Pálsson erfðafræðing og prófessor í lífupplýsingafræði
    55 min
  • Opni leikskólinn, grænir iðngarðar og umhverfispistill
    Við ætlum að kíkja í heimsókn í opna leikskólann svokallaða, en þetta er gjaldfrjáls úrræði, þar sem foreldrum gefst kostur á að koma saman nokkrum sinnum í viku með ung börn sín til að leika, fræðast og njóta samveru. Það eru memmm play félagasamtök sem halda utan um þessar stundir og við ræðum við Maríu Ösp Ómarsdóttur, eina þeirra sem stýrir þessum leikskóla, við spjöllum líka við foreldra sem sækja þangað. Við forvitnumst um græna iðngarða sem munu innan margra ára hefja starfsemi í mannvirkjum sem reist voru yfir fyrirhugað álver við Helguvík á Reykjanesi. Mannvirki sem risu fyrir 15 árum en hafa aldrei verið nýtt. Þarna eru áætlanir um fjölbreytta starfsemi sem grundvallast á grænni hringrás ef svo má segja. Kjartan Eiríksson er framkvæmdastjóri iðngarðanna. Hann tók á móti okkur þar í morgun Svo er umhverfispistill á sínum stað eins og alltaf á fimmtudögum, að þessu sinni er það Stefán Gíslason sem heldur utan um hann
    55 min
  • Friðlýst svæði og þjóðgarðar, fjarkennsla, málfar og vísindaspjall
    Við ætlum að ræða friðlýst svæði og þjóðgarða, en starfshópur skilaði inn fyrir áramót skýrslu þar sem stöðu þessara svæða og áskorunum er lýst. Árni Finnsson hjá náttúruverndarsamtökum Íslands var formaður starfshópsins, og hann ætlar að ræða við okkur um helstu lykilþætti sem þarna komu fram, meðal annars hvað varðar mögulega fjölgun og stækkun friðlýstra svæða, þanþol svæðanna hvað varðar ágang, skipulag og umsjón - sem og fýsileika gjaldtöku.
    Svo veltum við fyrir okkur fjarkennslu og möguleikum hennar við Háskóla Íslands. Nú eru boðið upp á nokkur hundruð námskeið í fjarkennslu við skólann og áform um að fjölga þeim. Hólmfríður Árnadóttir, er verkefnisstýra fjarnáms við Háskóla Íslands. Hún ætlar að ræða þessi mál við okkur á eftir.
    Málfarsmínúta verður á sínum stað og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í sitt reglubundna vísindaspjall.
    1 hr
  • Verðbólga, vinnsla kynferðisafbrotamála og pistillinn Páls
    Verðbólga mælist nú 10,2 prósent og hefur ekki verið svo mikil síðan haustið 2009. Þetta er umfram það sem greiningaraðilar, sem svo eru kallaðir, höfðu spáð og það virðist ætla að verða þrautin þyngri að hemja verðbólguna, sem er auðvitað mikill skaðvaldur. Jón Bjarki Bentsson er aðalhagfræðingur Íslandsbanka og því einn þessara greiningaraðila - hann sest hér eftir augnablik. VIð ræðum við verkefnastjóra gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra, Eygló Harðardóttur hér á eftir - en meðferð þessara mála, ekki hvað síst þeirra sem tengjast kynbundnu ofbeldi og kynferðisofbeldi, hefur tekið töluverðum breytingum síðustu misserin. Á hvaða hátt og með hvaða árangri? Að hverju er stefnt? Eygló fer yfir þetta með okkur. Svo er Páll Líndal umhverfissálfræðingur með sinn pistil í lok þáttar.
    55 min
  • Umhverfisvæn þróunaraðstoð, framburður, málfar og rokkskjal
    Við ætlum að forvitnast um sprotafyrirtækið So Green sem framleiðir og selur kolefniseiningar sem miða að því að styðja við menntun stúlkna í þróunarlöndum. Þetta er kolefnisjöfnun - en þarna eru ekki gróðursett tré eða mokað í skurði, heldur er menntun stúlkna tryggð. Guðný Nielsen stofnandi So Green kemur til okkar. Við ræðum svo við Finn Friðriksson dósent við Háskólann á Akureyri sem við annan mann er að hefja rannsókn á framburði fólks á Íslandi, hvernig einstaklingar breyta framburði sínum og viðhorf til ýmissa svæðisbundinna málýskna. Það er ýmislegt sem bendir til þess að raddaði framburðurinn sé að hverfa, sá vestfirski er nánast alveg horfinn - en skaftfellski einhljóða framburðurinn er að styrkja sig. Málfarsmínútan er á sínum stað og við heimsækjum Þjóðskjalasafnið og ræðum við Heiðar Lind Hansson skjalavörð og fáum að skoða merkilegt skjal sem tengist rokksögu Íslands.
    55 min
  • Heilbrigðismál, matarsóun, málfar og Eimur
    Samfélagið heimsækir húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða hér á Ísafirði og ætla á eftir að spjalla við Gylfa Ólafsson forstjóra þeirrar góðu stofnunar um starfið , áskoranir fyrir heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins og ýmislegt fleira. Við ætlum svo að kíkja í ráðhúsið á Akureyri, hitta fyrir matreiðslumeistarann Svein Thorarensen sem ræður öllu í mötuneytinu þar, Sveinn hefur tileinkað sér í störfum sínum ýmsar leiðir til að berjast gegn matarsóun - og þetta hefur gengið vel, það er ekki mikið sem fellur til eða fer til spillist hjá okkar manni - við fáum að vita hvernig hann fer að Svo er það Sesselja Ingibjörg Barðdal, hún er framkvæmdastjóri hjá afar athyglisverðu verkefni sem heitir Eimur - og snýst um bætta nýtingu orkuauðlinda, sjálfbærni og nýsköpun í orkumálum á norðausturlandi. Við röltum með henni um miðbæinn á Akureyri og ræðum um tækifæri og áskoranir. Svo er málfarsmínútan á sínum stað
    55 min
  • Orkubú vestfjarða, bændageð, umræður um orð og umhverfispistill
    Þáttur dagsins er sendur út frá tveimur stöðum, frá Akureyri og Flateyri. Á Vestfjörðum er ekki mikið af heitu vatni en hér er engu að síður hitaveita. Orkubú Vestfjarða rekur kerfi sem notar rafmagn til að hita vatn sem svo er dreift til íbúa á svæðinu. Samfélagið tók hús á Elíasi Jónatanssyni Orkubússtjóra í morgun og fékk að vita allt um fjarvarmaveitu. Við ætlum að fræðast um verkefnið bændageð en andleg vanlíðan, streita og kvíði er algeng meðal bænda hér á landi segir í kynningu á verkefninu og hafa síðustu ár reynst mörgum bændum erfið. Því var ákveðið að bregðast við með forvörnum, fræðslu og aðgengi að upplýsingum og samtali um andlega heilsu Guðrún Birna Brynjarsdóttir, sérfræðingur hjá bændasamtökunum segir okkur frá þessu. Og svo er það mál málanna síðustu daga - þessar breytingar á enskum verkum Roald Dahls þar sem móðgandi orðalag er fjarlægt eða breytt. Þessu hefur verið misjafnlega tekið eins og við var að búast, en munu þau viðbrögð og umræðan sem á sér stað vera gagnleg og skipta máli? Það er spurning, sem meðal annarra, við leggjum fyrir Eirík Rögnvaldsson prófessor emiritus í íslenskri málfræði hér á eftir, en á facebook síðu hans Málspjallið, sköpuðust líflegar og upplýsandi umræður. Svo er umhverfispistill á sínum stað, að þessu sinni er hann í höndum Bryndísar Marteinsdóttur.
    55 min
  • Hvalaskoðun, skaðabótaskylda sjálfboðaliða, málfar og saxendalyfið
    Við gerum tilraun til hvalaskoðunar í Samfélaginu dagsins. Fréttir og myndskeið af hnúfubökum við Hafnarfjarðarhöfn urðu til þess að við byrjuðum daginn á þeim slóðum með Eddu Elísabetu Magnúsdóttur sjávarlíffræðingi og lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Störðum út á sjó í þeirri von að sjá hnúfubak blása og spjölluðum um þessar áhugaverðu skepnur. Heyrum það eftir smástund. Við ætlum svo að skoða um skaðabótaskyldu- og ábyrgð fólks sem sinnir sjálfboðaliðastörfum. Hoppukastalaslys á Akureyri og ákærur í kjölfar þess eru tilefnið þó við dveljum ekki við það einstaka mál, heldur skoðum almennt ábyrgð einstaklinga annars vegar og félagasamtaka hverskonar hinsvegar með prófessor við lagadeild HR, Guðmundi Sigurðssyni. Málfarsmínúta verður á sínum stað og Edda Olgudóttir ætlar svo að spjalla við okkur um vísindi eins og alltaf á miðvikudögum.
    59 min
  • Rafjeppar, vatnsbólin í Heiðmörk og bambusgrænþvottur
    Við ætlum að huga að rafbílum, sérstaklega rafjeppum. Rafbílar njóta mikilla vinsælda hérlendis, en fyrir þjóð sem ferðast gjarnan um á fjöllum í vetrarfærð þykja smábílar ekki vera nóg. Hvaða rafjeppar eru komnir fram, hvernig virka þeir og hvað eru bílaframleiðendur og bílaspekulantar að veðja á? Jóhannes Reykdal ritstjóri og blaðamaður á Bílablogginu kíkir til okkar. Við heimsækjum vatnsbólin í Heiðmörk. Setjumst upp í lekaprófaðan bíl og fáum að skoða það sem leynist handan rammgerðra girðinganna sem loka af það allraheilagasta á vatnsverndarsvæðinu; sjálfa Gvendarbrunna. Sigrún Tómasdóttir jarðfræðingur hjá Orkuveitunni tekur á móti okkur og fræðir okkur um vatn og mikilvægi þess að passa vel upp á það. Við ræðum svo um neytendamál í lok þáttar, Brynhildur Pétursdóttir ritstjóri neytendablaðsins rýnir í bambus sem er gjarnan auglýstur sem umhverfisvænni kostur þegar kemur að textíl og fötum - jafnvel sem tannburstar. En er bambusinn grænni, betri, umhverfisvænni? -Það er málum blandið.
    55 min
  • Tíska, djúpríki, málfar og verkalýðsforkólfur fortíðar
    Rætt um tísku og hvernig samfélagsbreytingar og umrót speglast í henni. Fatahönnuðurinn og spekúlantinn Guðmundur Jörundsson sest niður hjá okkur og segir okkur hvernig við endum á að klæðast því sem er efst á baugi í fréttum, ber hæst í hugmyndafræði og pælingum. Erík Bergmann prófessor ætlar að vera á línunni hér á eftir og ræða við okkur um samsæriskenningar um svokallað djúpríki og leynileg samtök sem sumir telja að stjórni bak við tjöldin. Raunar bendir ný könnun Maskínu fyrir fjölmiðlanefnd til þess að um þriðjungur trúi slíkum kenningum hér á landi. Málfarsmínúta Svo er safnaspjall í lok þáttar með safnstjóra okkar, Helgu Láru Þorsteinsdóttur. Gullmolinn sem hún veiðir upp úr safni RÚV í dag kallast á við atburði dagsins - tengist semsagt verkalýðsbaráttu.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners