Spegillinn

Seinni hálfleikur á þingi ASÍ, skjalamál og funhiti á Spáni


Listen Later

Innviðaráðherra segir viðbúið að finna verði nýtt húsnæði fyrir allt að 3 þúsund hælisleitendur á næstu misserum. Hann mælti í dag fyrir frumvarpi um að hægt verði að nota húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu.
Guðmundur Felix Grétarsson er nú á sterkum sterakúr til að geta haldið handleggjunum. Líkaminn gerði sig líklegan til að hafna útlimunum sem hann fékk grædda á sig fyrir tveimur árum.
Þjóðskjalavörður segir enga hættu á að aðgengi almennings og fræðafólks að gögnum Borgarskjalasafns versni við flutning þeirra yfir í Þjóðskjalasafnið.
Yfir fimmtíu hitamet hafa fallið á Spáni síðustu sólarhringa. Óvenju heitt er á Íberíuskaga miðað við árstíma.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er öruggt með sæti á EM á næsta ári.
-----
Seinni hluti ársþings ASÍ hófst í morgun. Fyrri hluti þingsins í október endaði í upplausn þar sem fulltrúar gengu út af þinginu og tveir frambjóðendur til forseta ASÍ drógu framboð sitt til baka á seinustu stundu. Mikil átök voru í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Kristján Þórður Snæbjarnarson tók við sem forseti ASÍ í ágúst en hann hyggst ekki gefa kost á sér áfram og lætur hann af embætti að þingi loknu. Á morgun verður kosið í forystu sambandsins og miðstjórn. Bjarni Rúnarsson ræðir við Kristján Þórð.
Meirihluti borgarstjórnar ákvað á dögunum að Borgarskjalasafni yrði lokað og Þjóðskjalasafni falinn allur safnkostur þess og framtíðarstarfsemi. Í þessari viku ákvað meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs svo að fylgja þessu fordæmi. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, segir lög kveða á um að það sé sveitarfélaganna að ákveða, hvort þau varðveiti sín skjöl sjálf eða feli Þjóðskjalasafninu það verkefni. Þar eru nú þegar varðveittir einir 45 hillukílómetrar af gögnum. Héraðsskjalasöfn landsins geyma um 20 hillukílómetra til viðbótar og þar af er um helmingurinn, 10 hillukílómetrar, varðveittur á Borgarskjalasafninu. Hrefna segir Þjóðskjalasafnið vel fært um að taka við þeim. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrefnu.
Íbúum á sunnanverðu landinu hnykkti við, mörgum hverjum, þegar þeir litu út í morgun og sáu alhvíta jörð. Á snjómyndum á Facebook mátti sjá þykkt lag á bílum, útigrillum og trjám og runnum sem voru byrjuð að bruma. Einn birti mynd af snjóhrúgu og velti fyrir sér hvort vetrardekkin hans lægju þar undir. Smálægð sem fór yfir landið í gær og nótt olli ofankomunni, sem ekki hefur mælst jafn mikil á þessum árstíma síðan árið 1999. Á vef Veðurstofunnar sagði í hugleiðingu veðurfræðings í morgun að snjókoma eða slydda væri á sunnanverðu landinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners