
Sign up to save your podcasts
Or


Jarðhræringar á Suðurnesjum. Oddný G. Harðardóttir alþingismaður Samfylkingarinnar sem er búsett í Garði ræðir um jarðhræringarnar á Reykjanesi og stöðuna í Grindavík. Hún ræðir um nauðsynleg viðbrögð Alþingis. Arnþrúður Karlsdóttir ræðir við hana.
Björn Leví alþingismaður Pírata sem á sæti í fjárlaganefnd Alþingis mætir til Arnþrúðar Karlsdóttur
Arnþrúður og Guðrún Kristín með spá út af gosinu og pólitíkinni
í dag mætir Jens Guð bloggari og tónlistargagnrýnandi til Péturs Gunnlaugssonar og ræðir um nýja bók um Bruce Springsteen - Magnús þór Hafsteinsson þýddi bókina.
Sjóðakerfin, hvar eru peningarnir - Arnþrúður Karlsdóttir og Eyjólfur Ármannsson alþingismaður Flokks Fólksins
Lífeyrissjóðskerfið og íbúðavandinn - Arnþrúður Karlsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR
Arnþrúður Karlsdóttir og Þorvaldur Þórðarson prófessor í bergfræði og eldfjallafræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands um stöðu mála í Grindavík og jarðskjalftasvæðinu á Reykjanesi.
Feðradagurinn: Af hverju kynjastríð?
Kristinn Sigurjónsson, faðir, afi og fyrrverandi lektor við Háskólann í Reykjavík var gestur Kristjáns Arnar Elíassonar í þessum Síðdegisþætti. Kristinn sagði frá upphafi og sögu feðradagsins, sem er á sunnudaginn kemur, en hann er haldinn hátíðlegur í mörgum löndum til að heiðra feður. Hann talaði um hvers vegna hann hefði farið að kynna sér feðradaginn, nauðsynlega aðkomu feðra við uppeldi barna, feðraveldið, #MeToo-hreyfinguna, kvennafrídaginn og margt fleira. Kristinn talaði sannfæringu sína og sagði m.a.: „Feðraveldið er blóraböggull femínista gegn því mótlæti sem allir verða fyrir, en þær ráða ekki við, vegna eigin framtaks- og athafnaleysis og kenna því feðraveldinu um“. Í lok þáttarins sagði Kristinn frá viðkvæmum persónulegum málum; þremur stærstu áföllunum sem hann hefur orðið fyrir í lífinu.
Guðmundur Karl læknir var í þætti hér í gær og við opnuðum fyrir símann en það komust margfalt færri að en þeir sem reyndu svo við gefum fólki tækifæri á að hringja í dag og koma spurningum til Guðmundar Karls læknis eða Kalla Snæ eins og margir þekkja hann
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra mætir og ræðir um hugmyndir Miðflokksins hvernig hægt er að mæta greiðsluerfiðleikum fólks við þær aðstæður sem eru nú upp i í þjóðfélaginu - háir vextir og verðtrygging hærri hér en í nágrannalöndunum. Miðflokkurinn samþykkti á landsþingi sínu að lækka virðisaukaskatt á matvælum til að lækka matarkörfuna.
Pétur Gunnlaugsson ræðir við Sigmund Davíð
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

469 Listeners

138 Listeners

130 Listeners

2 Listeners

19 Listeners

67 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

0 Listeners

0 Listeners

16 Listeners

36 Listeners

14 Listeners