Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimður: Mark Eldred
Lýst hefur verið yfir óvissustigi almannavarna vegna skjálftahrinunnar úti fyrir Norðurlandi.
Hægri og vinstri blokkirnar í Svíþjóð eru nánast jafn stórar fyrir þingkosningarnar á sunnudag. Hallgrímur Indriðson talaði frá Stokkhólmi og Anna Kistín Jónsdóttir ræddi við Kára Gylfason í Gautaborg.
Karl konungur þriðji heitir því að fylgja fordæmi móður sinnar og þjóna breska samveldinu til æviloka. Hann flutti síðdegis sitt fyrsta ávarp til þjóðarinnar eftir að hann varð konungur í gær. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við Ragnheiði Kristjánsdóttur prófessor í sagnfæði og Arnór Gunnar Gunnarsson um feril Elísabetar II drottningar og mögulega tilvist konunungsdæmisins eftir að tíu daga sorgarferli lýkur í Bretlandi.
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra segir ekki inni í myndinni að selja orku til Evrópu. Samkvæmt Landsvirkjun hefur þeim fjölgað mjög sem sækjast eftir að koma með framleiðslu sína hingað, vegna síhækkandi orkuverðs í Evrópu. Auka þurfi framleiðslu rafmagns með því að virkja meira. Guðlaugur Þór segir að Íslendingar þurfi alla þá raforku sem til er hér - og meira til - svo hægt sé að klára orkuskiptin. Alma Ómarsdóttir ræddi við hann.
Langanesbyggð býr sig nú undir móttöku á fulltrúum skoska eldflaugafélagsins Skyrora sem hyggjast skjóta upp tilraunaeldflaug í sveitarfélaginu. Félagið fékk nýlega leyfi samgönguyfirvalda til að skjóta upp einni tilraunaeldflaug frá Íslandi. Ágúst Ólafsson tók saman. Rætt var við Björn S. Lárusson í Morgunútvarpi Rásar 2.