Fimmtán ára drengur hefur verið handtekinn vegna skotárásar í verslunarmiðstöð í Malmö í Svíþjóð í dag. Tveir særðust illa í árásinni. Alexander Kristjánsson sagði frá.
Jafnaðarmenn þurfa að leita aftur í kjarnastefnu sína og leggja áherslu á kjör venjulegs fólks. Þetta segir Kristrún Frostadóttir sem tilkynnti framboð sitt til formanns samfylkingarinnar í dag. Þórdís Arnljótsdóttir talaði við hana.
Útskrifuðum leikskólakennurum hefur fjölgað síðustu ár. Háskólaráðherra segir að huga þurfi að nýsköpun í leikskólakerfinu. Unnið er að breytingum á námsmöguleikum starfandi leikskólakennara. Rætta var við Ingibjörgu Ósk Sigurðardóttur. Pétur Magnússon tók saman.
Almannavarnir leggja til að dagleg viðvera lögreglu og annarra viðbragðsaðila verði tryggð á gosstöðvunum í Meradölum.
Þjófnaður og eignaspjöll á styttunni af Guðríði Þorbjarnardóttur hefur verið sent til héraðssaksóknara. Kannað er hvort brotið hafi verið gegn lagaákvæði um að fjarlægja eða skemma opinber minnismerki. Refsing við því er allt að þriggja ára fangelsi. Kristín Sigurðardóttir sagði frá.
Heilbrigðiskerfi úkraínu er að miklu leiti haldið gangandi af sjálfboðaliðum sem leggja líf sitt í hættu við störfin. Hundrað tuttugu og þrjú sjúkrahús þar eru óstarfhæf. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman.
----------------------------------------------------------
Greining Íslandsbanka spáir því að verðbólga rjúfi 10% múrinn í ágúst. Gangi spáin eftir hefur verðbólga ekki mælst meiri í 13 ár eða frá því í september 2009. Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur í Greiningu Íslandsbanka kemur í Spegilinn til að ræða stöðuna og mögulega þróun mála.
Forsetar Frakklands og Rússlands eru sammála um að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin verði að senda sérfræðinga til Úkraínu til að kanna ástand mála við Zaporizhzhia kjarnorkuverið. Zelensky, forseti Úkraínu, fór fram á það í gær að Sameinuðu þjóðirnar beiti sér fyrir því að eftirlitsmenn verði sendir til að kanna ástandið. Ásgeir Tómasson tók saman.
Fjölmiðlar fjalla eðlilega mest um það sem hefur verið mest í sviðsljósinu. Andlát Oliviu Newton John vakti til dæmis heimsathygli. Öllu minna var minnst á Lamont Dozier sem lést sama dag og hún, 8. ágúst. Hann samdi þó tugi laga sem nutu vinsælda á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, mörg hver í samvinnu við bræðurna Brian og Eddie Holland. Af þeim rötuðu 25 í efsta sæti bandaríska vinsældalistans meðan þremenningarnir unnu fyrir Motown hljómplötuútgáfuna í Detroit. Flest lögin fluttu Diana Ross og The Supremes og söngkvartettinn Four Tops. Ásgeir Tómasson tók saman.