Spegillinn

Skuldir aukast í bygginggeiranum og Bretar draga úr loftslagsaðgerðum


Listen Later

Hægari sala fasteigna hefur valdið því að skuldir byggingageirans við bankana hafa aukist um 68 milljarða króna síðustu tólf mánuði. Það er ekki áhyggjuefni enn sem komið er, segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Volodymyr Zelenskí forseti Úkraínu vill að Rússar verði sviptir neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þeir hafi gert ráðið gagnslaust með beitingu neitunarvaldsins.
Barnahús metur öll tilvik sem barnaverndarnefndir senda til hennar vegna mögulegra kynferðisbrota barna, segir Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu. Sum mál eigi ekki heima í Barnahúsi.
Matvælastofnun boðar afléttingu á tímabundnu banni við hvalveiðum Hvals 8, að uppfylltum skilyrðum.
Það er allt uppávið í uppsjávarfiski og gósentíð segir Hjörvar Ólafsson, skipstjóri á Berki, sem landaði 1.700 tonnum af síld í Neskaupstað í fyrrinótt eftir rúmlega sólarhrings veiðiferð.
NIðurrif Íslandsbankahússins á Kirkjusandi verður boðið út á næstu vikum. Margt þarf að gera til að tryggja að myglugró berist ekki víða, það þarf að huga að vindátt og mögulega væta húsið segir Kjartan Smári Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
--------------
Forsætisráðherra Bretlands segist ætla að milda aðgerðir til að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 og fylgja raunsærri nálgun en hingað til. Ákvörðun hans mælist misjafnlega fyrir. Þar á meðal er forseti neðri málstofu þingsins sagður ævareiður.
Krakkar og klám, unglingar og kynlíf, þetta eru óþægileg umræðuefni og vandræðaleg. Við viljum eðlilega leyfa börnum að vera börn sem lengst og hlífa þeim. En við viljum kannski líka hlífa okkur við tilhugsuninni og samtalinu. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir veitir forstöðu verkefni Hafnarfjarðarbæjar um kynja- og kynfræðslu og kennir í Lækjaskóla. Spegillinn hitti Kristínu og spurði hana hvað krakkar, bæði börn og unglingar sæju á netinu.
Mikill styr hefur staðið um sameiningaráform Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra um framhaldsskólana á Akureyri. Karli Frímannssyni, skólameistara MA líst fremur illa á sameining en Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari í VMA telur að einn og öflgur skóli væri til bóta. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Jón Þór Helgason. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

29 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners