Blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu sakbornings vegna meintra brota á friðhelgi einkalífs hafa verið boðaðir til skýrslutöku hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að nýju.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar fjársvik sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir. Hópur sakborninga setti upp skuggasíður til að hafa af fólki fé. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Íslendingar, ásamt hinum norðurlöndunum, vilja standa fyrir þjálfun í sprengjuleit og sprengjueyðingu í Úkraínu. utanríkisráðherra, kynnti verkefnið á ráðstefnu í Kaupmannahöfn í dag. Ólöf Rún Erlendsdóttir tók saman og ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Á sjöunda hundrað börn, tólf mánaða og eldri, eru á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík. Verið er að úthluta 200 leikskólaplássum þessa dagana. Haukur Holm sagði frá.
Gervihnattarmyndir sýna verulegar skemmdir á herflugvelli á Krímskaga sem sprengjum var varpað á í vikunni. Enn er óvíst hverjir voru að verki. Rússar segjast ekki kannast við neina árás.
Makríll mælist aftur í íslensku landhelginni eftir tveggja ára fjarveru. Í árlegum sumarleiðangri sem farinn var í síðasta mánuði fannst makríll við suður-, vestur- og austurströnd landsins. Ágúst Ólafsson sagði frá.
---------------------------------------------------------------------------------
Gervihnattarmyndir sýna umtalsverðar skemmdir á rússneskum herflugvelli á Krímskaga eftir miklar sprengingar urðu þar á þriðjudag. Rússar neita því að árás hafi verið gerð á völlinn og Úkraínumenn hafa ekki gengist við því að hafa verið að verki. Að auki hafa borist af því óstaðfestar fréttir að sprengingar hafi heyrst frá herflugvelli í Hvíta-Rússlandi í gærkvöld. Stjórnvöld vísa því á bug að hann hafi orðið fyrir árás. Ásgeir Tómasson tók saman.
Foreldrar barna sem ekki hafa fengið dagvistun fyrir börn sín í haust komu saman í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun og létu í ljós óánægju sína með úrræðaleysi borgarinnar. Í vor hljómuðu loforð um að öll börn 12 mánaða og eldri fengju leikskólapláss í haust. Haustið er á næsta leiti og foreldrar um og yfir tveggja ára barna bíða enn eftir leikskólaplássi fyrir börnin sín. Albína Hulda Pálsdóttir er stjórnarkona Samtaka foreldra leikskólabarna í Reykjavík. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman.
Skráð atvinnuleysi var minna í júlí en verið hefur um árabil eða frá því vorið 2019. Atvinnulausum hafði fækkað um hátt í fjögur hundruð frá því í júní. Um þrjú þúsund og fimm hundruð karlar voru án atvinnu og um þrjú þúsund og eitt hundrað konur. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum eins og verið h