i Fyrir áratug hrundi heilsa sjónvarpsmannsins Sölva Tryggvasonar bæði líkamlega og andlega. Eftir þrautagöngu milli lækna og annarra sérfræðinga, endalausar rannsóknir og lyfjameðferðir án þess að hann fengi bót meina sinna ákvað hann að taka málin í eigin hendur.
Síðan hefur Sölvi fetað allar mögulegar slóðir í leit að betri heilsu og auknum lífsgæðum. Á þeirri vegferð hefur hann gert nær endalausar tilraunir á sjálfum sér viðvíkjandi mataræði og hreyfingu, föstur, bætiefni, kuldaböð, hugleiðslu, öndunaræfingar, tengingu við náttúru og ótalmargt annað sem snýr að heilsu.