Ekkert fyrirtæki hefur fengið brúarlán þó þrír mánuðir séu liðnir frá því stjórnvöld kynntu úrræðið. Fjármálaráðherra segir að boltinn sé hjá bönkunum.
Flóðbylgjuviðvörun var gefin út í Mexíkó þegar jarðskjálfti að stærðinni 7,4 reið yfir í suðurhluta landsins síðdegis í dag - mörg hundruð sinnum sterkari en skjálftarnir fyrir Norðurlandi um helgina.
Stjórnvöld standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum fyrir árið 2030 og gott betur. Þetta er fullyrt í uppfærðri aðgerðaáætlun sem kynnt var í dag.
Guðni Th. Jóhannesson nýtur stuðnings mikils meirihluta kjósenda í komandi forsetakosningum samkvæmt nýrri Gallupkönnun. Sjö prósent kjósenda hyggjast kjósa Guðmund Franklín Jónsson.
Ef miðlunartillaga ríkissáttasemjara í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins verður samþykkt á gerðardómur að skila úrskurði eigi síðar en 1. september.