Spegillinn

Spegillinn 3.okt. 2022


Listen Later

Spegillinn 3. okt. 2022
Umsjón: Kristján Sigurjónnson
Tæknimaður: Þorbjörn Gísla Kolbrúnarson
Lögreglan á Norðurlandi eystra ætlar að fara fram á gæsluvarðhald yfir þremur vegna manndráps í Ólafsfirði í nótt.
Staða svissneska bankans Credit Suisse veldur áhyggjum. Hlutabréfaverð í bankanum hefur hríðlækkað og þykir atburðarásin minna á bankahrunið 2008.
Framsókn tapar fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallups, en Sjálfstæðisflokkur, Samfyllking, Viðreisn og Miðflokkur bæta við sig.
Þriðjungi fleiri íbúðir eru í byggingu nú en á sama tíma í fyrra. Framkvæmdir eru hafnar við ríflega 8.100 íbúðir á landinu öllu, samanborið við 6.000 í september í fyrra.
Skoðanakannanir í Brasilíu vanmátu fylgi Jairs [Sja-írs] Bolsonaros forseta í kosningunum í gær. Mótframbjóðandi hans fékk fleiri atkvæði, en ekki hreinan meirihluta eins og sumar kannanir gáfu til kynna.
Hundaeigendur verða að vera meðvitaðir um ábyrgð sína, segir bóndi á Vesturlandi sem segir að fé hans sé í hættu vegna lausagöngu hunda.
Lengri umfjöllun:
Rúmlega 8.100 íbúðir eru nú í byggingu á landinu öllu, samkvæmt nýrri talningu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Samtaka iðnaðarins. Það er rúmlega tvö þúsund íbúðum meira en í sams konar talningu í september í fyrra. Munurinn, eða aukningin, er 35 prósent, rúm. Höfuðborgarsvæðið er með ríflega 70 prósent allra íbúða í byggingu, eða um 5.700. Í Reykjavík eru íbúðir í byggingu rúmlega 2.400 en í nágrannabæjunum tæplega 3.300. Það er byggt um allt land, en hvað þýða þessar tölur? Dugar þessi aukning til þess að sinna íbúðaþörf landsmanna? Nýlega var skrifað undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu 35.000 nýrra íbúða á næstu 10 árum. Elmar Þór Erlendsson er teymisstjóri hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og fór yfr þessar nýju tölur á kynningarfundi stofnunarinnar og Samtaka iðnaðarins í dag. Kristján Sigurjónsson ræðir við hann.
Skoðanakannanir í Brasilíu vanmátu fylgi Jairs Bolsonaros forseta í kosningunum í gær. Mótframbjóðandi hans, Luiz Inácios Lula da Silva, fyrrverandi forseta fékk fleiri atkvæði, en ekki hreinan meirihluta eins og sumar kannanir gáfu til kynna. Áageir Tómasson segir frá.
Ofstækisfullur nasisti, breskir hermenn og áhugasamir menn í íslenska stjórnarráðinu eru meðal þeirra sem lögðu óafvitandi grunninn að samkomu í Safnahúsinu í dag. Rúmum átta áratugum eftir að Bretar lögðu hald á gögn þýska ræðismannsins við hernám Íslands eru skjölin á leið heim.Fáir erlendir erindrekar hafa orðið frægari, jafnvel alræmdari, í Íslandssögunni en Werner Gerlach. Hann varð aðalræðismaður
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners