Spegillinn

Sprengingar við gasleiðslur í Eystrasalti og Rússar flýja herkvaðningu


Listen Later

Mikið af sprengiefnum hefði þurft til að framkalla sprengingar sem Björn Lund jarðskjálftafræðingur efast ekki um að ollu skemmdum á Nordstream gasleiðslum í Eystrasalti. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman.
Aukið eftirlit með störfum lögreglu þarf að fylgja auknum rannsóknarheimildum, að dómi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra býst við því að frumvarp hans um forvirkar rannsóknarheimildir fái stuðning á Alþingi.
Bílaleiga Akureyrar sér fram á tugmilljóna króna tjón vegna bíla sem skemmdust í grjótfoki í óveðrinu. Steingrímur Birgisson, forstjóri fyrirtækisins segir verða skoðað hvort leigjendur hafi hunsað vegalokanir. Ólöf Rún Erlendsdóttir talaði við hann.
Hópur áhugafólks um einfaldar útfarir vill draga úr jarðarfarakostnaði. Kristján Hreinsson, forsvarsmaður hópsins segir óskynsamlegt að eyða mörg hundruð þúsund krónum í jarðarför sem byggist meira eða minna á úreltum hefðum. Sverrir Einarsson útfararstjóri segir Íslendinga vanafasta en mörgum reynist erfitt að greiða fyrir útför ástvina.
Afgreiðslu forsætisnefndar á meintu broti formanns Framsóknarflokks á siðareglum þingmanna var líkt við skrípaleik á Alþingi í dag. Höskuldur Kári Schram tók saman og heyrist í Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur (C), Andrési Inga Jónssyni (P) og Jóhannesi Páli Jóhannssyni (S).
----------
Mikill fjöldi Rússa hefur flúið til nágrannalandanna frá því að stjórnvöld tilkynntu að þrjú hundruð þúsund manna varalið yrði kallað til herþjónustu; margra kílómetra bílalest er að landamærum Rússlands og Georgíu. Ásgeir Tómasson tók saman. Heyrist í rússneskum flóttamanni og Vadim Kuziev sérfræðingi í upplýsingatækni sem segir að snúi þeir aftur verði þeir sendir til að drepa saklaust fólk.
Me-too hreyfingin afhjúpaði það að þó að lög banni kynferðislega áreitni og hafi gert lengi er fjarri því að þau dugi til að koma í veg fyrir hana en það er líka svo að fjallað er um kynbundið ofbeldi og áreitni á fleiri en einum stað. Dr. María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur segir að þar geti átt við en þar geta átt við hegningarlög, jafnréttislög, vinnuverndarlög og mismunartilskipun Evrópusambandsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Maríu.
Pólverjar eiga von á gasi frá Noregi um nýja leiðslu um Eystrasalt. Leiðslan liggur rétt þar hjá sem leiðslur Rússa til Evrópu er fyrir. Núna eru þær gasleiðslur byrjaðar að leka óvænt og af ókunnum orsökum í sænskri og danski lögsögu, og grunur er uppi um skemmdarverk. Þetta vekur upp ótta um að nýja pólska leiðslan gæti líka farið að leka. Gísli Kristjáns
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners