Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknmaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
Þingmenn keppast nú við afgreiðslu mála en fresta á þingstörfum í kvöld eða á morgun. Greidd voru atkvæði um fjölmörg mál í dag, þeirra umdeildast er rammaáætlun sem var samþykkt í hádeginu.
Bandaríkin ætla að veita Úkraínumönnum frekari aðstoð og senda vopn að andvirði um 130 milljarða króna. Joe Biden forseti greindi frá nýjum aðstoðarpakka síðdegis. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri segir að verðtryggð lán, eins og þau eru sett upp hér á landi, geti skapað forsendur fyrir áhættusækni. Anna Lilja Þórisdóttir tók saman.
Bensínlítrinn fór yfir 350 krónur í gær. Bensínverð hefur hækkað umtalsvert síðustu mánuðina, ekki síst vegna innrásar Rússa í Úkraínu og hækkana á heimsmarkaði. Urður Örlygsdóttir sagði frá og talaði við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra FÍB sem vill að stjórnvöld lækki álögur á eldsneyti.
Eftir hlýtt vor og hagstæð skilyrði í hafinu við Ísland eru útgerðarmenn vongóðir um betri makrílveiði í íslenskri lögsögu en undanfarin ár. Ágúst Ólafsson talaði við Sindra Viðarson sviðsstjóra hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjujm.
Það verður hvergi rjómablíða á þjóðhátíðardaginn 17. júní að sögn Birgis Arnar Höskuldssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman.
-------------
Störfum þingsins fer að ljúka þetta vorið og þingmenn keppast við segir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir þingfréttamaður. Umdeildasta málið sem lauk í dag var fyrsta rammaáætlun í meira en níu ár. Brot úr atkvæðaskýringum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur (C), Andrésar Inga Jónssonar (P), Guðmundar Inga Guðbrandssonar (V) og Vilhjálms Árnasonar (D).
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði telur að haldlagning lögreglu á miklu magni fíkniefna hafi óveruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Helga og Svölu Jóhannesdóttur, sérfræðing í skaðaminnkun hjá Matthildi-samtökum um skaðaminnkun.
Tækniþekking og aðstaða er til að framleiða um fjögur þúsund tonn af rafeldsneyti á ári í tíu ára gamalli verksmiðju Carbon Recycling International við Svartsengi á Reykjanesskaga. Eftirspurn á innanlandsmarkaði var undir væntingum en fyriritækið hefur sótt fram í útlöndum. Kristján Sigurjónsson talaði við Ómar Frey Sigurbjörnsson, sölu- og markaðsstjóra hjá Carbon Recycling International.