Íhaldsflokkurinn í Skotlandi hefur lagt fram vantrauststillögu á Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands og leiðtoga Skoska þjóðarflokksins, SNP,  vegna meintra ósanninda hennar um meðferð kærumála kvenna á Alex Salmond, fyrrverandi leiðtoga SNP. Sturgeon bar vitni fyrir þingnefnd í allan gærdag. Fréttaskýrendur telja hana hafa staðið af sér atlögu Íhaldsmanna sem þó segja spurningum ósvarað og ætla að halda vantrauststillögunni til streitu. Nicola Sturgeon og Alex Salmond voru nánir vinir og samstarfsmenn uns Salmond var ákærður fyrir kynferðislega áreitni árið 2018 en sú vinátta er fyrir bí og Salmond segir nú að Skoski þjóðarflokkurinn, undir forystu Sturgeon, standi að baki ofsóknum gegn sér.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu skosk stjórnmál við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar og einnig ferð Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, til Ísraels í dag, ásamt Sebastian Kurz, kanslara Austurríkis,. Þar leita þau samstarfs við Ísraelsmenn í bólusetningum. Hærra hlutfall Ísraelsmanna hefur verið bólusett en gengur og gerist í öðrum löndum vegna samnings sem ríkisstjórn landsins gerði við Pfizer um bólusetningar í landinu. Nú vill Frederiksen vita hvort Danir geti fengið bóluefni hjá Ísraelsmönnum gangi eitthvað af. Hún er gagnrýnd af fólki á vinstri kanti stjórnmálanna heima fyrir sem segir að Palestínumenn eigi að fá bóluefnið. Mai Villadsen, nýr leiðtogi Einingarlistans, segist hafa áhyggjur af samstarfi við ísraelsku stjórnina sem klárlega brjóti alþjóðarétt með því að bólusetja ekki íbúa hersetnu svæðanna.