Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #444 – Kaffispjall með Adda í Gunnbjarnarholti

    Þórður Gunnarsson ræðir við Arnar Bjarna Eiríksson, bónda og athafnaskáld í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Arnar Bjarni varpar ljósi á áskoranir og tækifæri í íslenskum landbúnaði og deilir sýn sinni á nýsköpun í landbúnaði og rekstur hans auk mikilvægi þess íslenskar sveitir haldist í byggð. Rætt er um mögulegt aðlögunarferli að Evrópusambandinu og áhrif þess á íslenskan landbúnað, hver áhrifin af inngöngu í Evrópusambandið yrðu á hann, staðreyndir um áhrif innlendra matvæla á verðlag á Íslandi og margt fleira.

    55 min
  • #443 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Treystum þjóðinni, en samt ekki

    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir í heitustu málin í pólitíkinni og efnahagslífinu. Fjallað er um vandræði Þorgerðar Katrínar og upplýsingaóreiðu síðustu vikna, leyndarhyggjuna sem ríkir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, meintar undanþágur hvað varðar losunarkvóta og skattahækkanir í gegnum regluverk sem þegar er byrjað að innleiða. Þá er fjallað um „verðlækkunarsumar“ ríkisstjórnarinnar sem virðist þó ekki slá á verðbólgu, fylgi flokkanna, peningahagfræði Dags B. Eggertssonar, arðgreiðslur ríkisfyrirtækja og margt fleira. Þá eru fastir liðir á sínum stað, t.d. hrós vikunnar, hraðaspurningar, útilegupælingar og fleira.

    1 hr 58 min
  • #442 – Kaffispjall með Láru Herborgu – Ekkert óvænt í pakkanum sem margir vilja skoða

    Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður flutti áhugavert ávarp á upphafsfundi Áfram Ísland fyrr í þessum mánuði. Þar fjallaði hún meðal annars um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu út frá sjónarhorni lögfræðinnar og íslensku stjórnarfari. Í þætti Þjóðmála útskýrir hún nánar innihald ávarpsins og rökstyður vel á hvaða grunni hún byggir afstöðu sína gegn inngöngu Íslands í sambandið. Þá varpar hún ljósi á mikilvægi þess að halda ákvörðunarvaldinu heima, hvort raunhæft sé að fá varanlegar undanþágur fyrir sjávarútveg og landbúnað, hvað aðildarferlið hefur í för með sér fyrir venjulegan borgara, hvaða áhrif þetta ferli kann að hafa á samkeppnishæfni landsins og margt fleira.

    52 min
  • #441 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Mjólk er góð (og ódýr)

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða stóra „mjólkurmálið“ og 60% reikningsskekkju varaborgarfulltrúa Viðreisnar, auk þess sem rýnt er í viðbrögð Þorgerðar Katrínar við fréttaflutningi af umræðum í hollenska þinginu. Við ræðum einnig um þau áhrif sem starfsmenn þingflokks Samfylkingar telja sig geta haft á löggjöf ESB með færslum á samfélagmiðlum, hvernig Epic stuðullinn er að þróast í aðdraganda kosninga, mikilvægi þess að ráða fyrir eigin auðlindum og margt fleira. Þá eru fastir liðir einnig á sínum stað, s.s. hrós vikunnar, útilegupælingar, hraðaspurningar og fleira.

    1 hr 50 min
  • #440 – Kaffispjall við Sigurð Hannesson – Við getum verið bjartsýn fyrir framtíðinni

    Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ræðir um tækifærin og framtíðina hér á landi, hvernig hægt er að styðja helstu atvinnuvegi landsins enn frekar, hvað þarf til að bæta samkeppnishæfni Íslands í hörðu alþjóðlegu umhverfi, þörfina á því að taka stórar ákvarðanir sambærilegar þeim sem teknar voru áður til að efla hagsæld og lífsgæði hér á landi, hvernig alþjóðlegt viðskiptaumhverfi er að breytast og margt fleira. Þá er einnig rætt um viðhorf atvinnulífsins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og hvort aðild að sambandinu sé það sem ætti að vera í forgangi hjá okkur næstu 5-10 árin.

    1 hr 8 min
  • #439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna

    Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþingum sem utanríkisráðherra vill ekki láta fjalla um hér á landi og margt fleira þessu tengt. Þá er rætt um vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga bresti í haust, ráðaleysi ráðamanna í efnahagsmálum, möguleg áhrif gervigreindar á láglaunastörf og fleira. Fastir liðir eins og hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar eru einnig á sínum stað, þar sem gamlar deilur Harðar og Sólveigar eru rifjaðar upp.

    2 hr 3 min
  • #438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu

    Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja sér og margt fleira sem snýr að þessari hröðu tækniþróun sem nú eru að eiga sér stað.

    1 hr 18 min
  • #437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf

    Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins, kjánaleg kynningarmyndbönd utanríkisráðherra, vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá eru fastir liðir eins og hrós vikunnar, hraðaspurningar og bókameðmæli að sjálfsögðu á sínum stað.

    1 hr 21 min
  • #436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi

    Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.

    1 hr 12 min
  • #435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur

    Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkanir, mótsagnakenndan stuðning við ferðaþjónustuna, ESB-umsókn ríkisstjórnarinnar og mýturnar sem haldið er á lofti í þeirri vegferð og margt fleira. Þá eru hraðaspurningar og hrós vikunnar á sínum stað auk þess sem gestirnir skella sér í útilegu.

    2 hr 2 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners