Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku

    Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögulega upptöku evru og þá hver áhrifin kunna að vera á lífeyriskerfið hér á landi og um leið stöðu almennings, samkeppni við erlenda sjóða, stöðu ungs fólks sem fær fasteignalán hjá sjóðunum og margt fleira.

    56 min
  • #433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur

    Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma fyrirtækja segi ekkert til um rekstur þeirra, gaslýsingu um ríkisfjármál, ásýndarstjórnmál og margt fleira. Þá eru hrós vikunnar og hraðaspurningar á sínum stað – auk þess sem við mælum með bæði bók og bíómynd þessa vikuna í eldhressum þætti.

    1 hr 57 min
  • #432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf

    Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel efnahagslega með því að lækka skatta og auka svigrúm fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að athafna sig í landinu (oft þvert gegn vilja Evrópusambandsins), mýtur um ástæður þess að matvælaverð lækkaði í Svíþjóð og Finnlandi á sínum tíma, ótrúverðuga stefnu ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, afskipti ríkisins af bílainnflutningi og óraunhæf markmið um orkuskipti, barnfóstruríkið sem vill setja okkur reglur um allt mögulegt og margt fleira.

    1 hr 19 min
  • #431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum, hugmyndafræðilegan slag um bankaskatta, ESB-vegferðina sem tekur á sig sífellt skrýtnari mynd, hlutdrægni Rúv, einkennilegt innlegg Samkeppniseftirlitsins og margt fleira. Þá er hrós vikunnar og hraðaspurningar frá gestum Kringlukráarinnar að sjálfsögðu á sínum stað.

    2 hr 4 min
  • #430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi

    Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fólks á fjárfestingum og fleira í þeim dúr. Gestirnir horfa einnig fram á veginn og meta teikn á lofti um kólnandi hagkerfi, vaxandi atvinnuleysi, brothættan byggingarmarkað og áskoranirnar framundan í íslensku hagkerfi. Þá er einnig fjallað um viðhorf stjórnvalda til atvinnulífsins, til dæmis boðaðar skattahækkanir á fjármálafyrirtæki sem bætist þá við skattahækkanir á sjávarútveg og ferðaþjónustu.

    1 hr
  • #429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið?

    Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild, leyndardóminn um bein Jónasar Hallgrímssonar, breyttar fyrirsagnir á vef Rúv og margt fleira. Þættinum lýkur á léttari nótum með almyrkvasúkkulaði Nóa Síríus, hrósi vikunnar og krefjandi hraðaspurningum frá gestum Kringlukrárinnar.

    1 hr 56 min
  • #428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur við næst á hennar vegferð. Samhliða því að horfa fram á veginn stiklar hún á stóru á viðburðaríkum pólitískum ferli sínum, allt frá fyrstu skrefunum í ungliðahreyfingunni yfir í krefjandi ráðherraembætti.

    53 min
  • #427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna

    Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða flugmanna, oftúlkanir stjórnvalda og ríkisfjölmiðilsins á skýrslu um kosti í gjaldeyrismálum, horfurnar í hagkerfinu, ómarkvissar forsendur fjárlaga og margt fleira.

    1 hr 34 min
  • #426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið

    Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki fylgja ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, umræðu um eignarhald útgerðarinnar í íslensku atvinnulífi, stöðunni hjá Icelandair og verkfallsaðgerðum flugmanna og mörgu öðru. Þá eru hrós vikunnar, bókameðmæli og hraðaspurningar frá gestum Kringlukrárinnar að sjálfsögðu á sínum stað.

    1 hr 36 min
  • #425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar

    Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá breyttri hegðun ferðamanna til harðnandi alþjóðlegrar samkeppni um athygli þeirra. Sjónum er sérstaklega beint að skattlagningu á ferðaþjónustuna og þeim skilaboðum sem stjórnvöld senda til þessarar mikilvægu útflutningsgreinar með ákvörðunum sínum. Þá ræða þau samkeppnishæfni Íslands í víðu samhengi, hátt vaxtastig og hvernig innviðir og rekstrarumhverfi spila inn í getu fyrirtækja til að vaxa og dafna.

    1 hr

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners