Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #394 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Verum dugleg að vinna, bæturnar borga sig ekki sjálfar

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir það helsta fyrir helgina. Við ræðum meðal annars um framboðsmál flokkanna í Reykjavík, nauðvörn ríkisstjórnarinnar vegna þrálátrar verðbólgu, þvermóðskuna við frumvarp um hækkun bóta umfram laun sem allir málsmetandi aðilar vara við, formannskjör í Framsóknarflokknum, fyrirhugaðan sykurskatt, liðugasta bóndann á Íslandi, sölu Valhallar, deilur á Bifröst og margt fleira.

    1 hr 28 min
  • #393 – Kaffispjall með Frey Friðrikssyni í Kapp

    Freyr Friðriksson, stofnandi Kapp, lét nýlega af störfum sem forstjóri félagsins og er nú starfandi stjórnarformaður. Yfir heitum kaffibolla ræðir Freyr um uppgang félagsins og starfsemi, samruna við önnur félög, mikilvægi þess að hér sé starfandi öflugur sjávarútvegur til að styðja við frekari nýsköpun og tækniþróun, samskiptin við stjórnvöld og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífs og verðmætasköpunar, starfsemi félagsins erlendis og margt fleira.

    49 min
  • #391 – Kaffispjall með Ingva Þór og Konráð Guðjóns – Við fengum ekki verðmætasköpunarhaust en fáum verðbólguvor í staðinn

    Ingvi Þór Georgsson og Konráð Guðjónsson ræða um flókna stöðu hagkerfisins, upplýsingaóreiðuna um ástæður þrálátrar verðbólgu og hver hinn raunverulegi sökudólgur kann að vera, hvort einhverjar líkur sé á vaxtalækkunum í bráð, misreikning í áætlunum stjórnvalda og fleira í þeim dúr. Þá fjöllum við einnig um nýlegt dæmi um það hvernig Evrópusambandið tók snúning á Írlandi við kvótaúthlutun innan sambandsins og loks ólíkt viðhorf kynslóða til vinnumarkaðarins.

    1 hr 5 min
  • #390 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Erni Arnarsyni – Sleggjan er týnd

    Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um það sem skiptir þjóðina mestu máli um þessar mundir, handbolta. Þá er einnig rætt stuttlega um prófkjör og leiðtogaprófkjör, hvernig nýr oddviti Samfylkingarinnar hagnaðist bara alveg óvart af lóðabraski, þráláta verðbólgu í boði ríkisstjórnarinnar og komandi vaxtaákvörðun Seðlabankans, ráðherra sem er ósammála staðreyndum, stöðuna í hagkerfinu, mikilvægi loðnuvertíðar, baráttuna við útvarpsgjaldið, hrós vikunnar og margt fleira.

    1 hr 16 min
  • #389 – Kaffispjall með Birni Inga

    Björn Ingi Hrafnsson ræðir um nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík og hvað afleiðingar það kann að hafa, ólíka stöðu annarra flokka í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, umræðu um alþjóðmál og margt fleira sem snýr að stjórnmálunum þessa dagana.

    47 min
  • #388 – Bóndadags-helgarvaktin með Þorsteini Víglunds og Vilhjálmi Árnasyni

    Vilhjálmur Árnason og Þorsteinn Víglundsson fara yfir fréttir vikunnar á bóndadegi. Við ræðum um nýjustu vendingar í baráttunni um Grænland, væntanlegt prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, ástæðu þess að Þorsteinn sagði skilið við Viðreisn og almennt um stjórnarsamstarfið, þróun á fylgi flokkanna, hvernig Össur Skarphéðinsson skólaði Sigmar Guðmundsson til, stöðuna í efnahagsmálum, framboð Þorsteins til formennsku í Samtökum iðnaðarins, framboð Vilhjálms í oddvitasæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Keflavík og margt fleira.

    1 hr 44 min
  • #387 – Kaffispjall með Andrési og Andreu – Óvæntar uppákomur í pólitíkinni

    Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon frá Morgunblaðinu ræða um allt það helsta sem er að eiga sér stað í stjórnmálunum þessa dagana. Við ræðum um óvænta afsögn þingmanns Viðreisnar og hvort að til staðar séu ósagðar fréttir í því máli, átök innan Samfylkingarinnar í Reykjavík, undarlega uppákomu við kynningu á nýju vinstri framboði í Reykjavík, leit Miðflokksins að oddvita, hvort það verði einhver endurnýjun á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um oddvitaslagi víða um land í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, undarlega tilfærslu málaflokka á milli ráðuneyta, tilraun leiðtoga ríkisstjórnarinnar til að setja Ísland í skotlínu Bandaríkjaforseta, mögulega löggjöf í áfengismálum og margt fleira.

    1 hr 24 min
  • #386 – Helgarvaktin með Herði Ægis og Þórði Pálssyni – Grjóthrúgur í veginum að aukinni hagsæld

    Hörður Ægisson og Þórður Pálsson ræða um stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, heimatilbúin vanda af hálfu ríkisstjórnarinnar sem viðheldur verðbólgu og háum vöxtum, af hverju Seðlabankinn skilar auðu í gagnrýni á aukin útgjöld ríkisins, um gildishlaðin ummæli nýs félagsmálaráðherra um Seðlabankann og efnahagsmálin, um heimsókn Maríönu Mazzucato hingað til lands, nýja stjórn Íslandsbanka og sviptingar í fjármálageiranum, vantraust á deildarforseta viðskiptadeildar á Bifröst, áhrif Bandaríkjanna á Grænlandi og margt fleira.

    2 hr 9 min
  • #385 – Kaffispjall með Sigurði Má um Venesúela, Íran og allt þar á milli

    Sigurður Már Jónsson ræðir um stöðuna í Venesúela og í Íran, um aðkomu Bandaríkjanna að þessum tveimur ríkjum og svæðunum í kringum þau, hvort við séum að horfa á einhverja breytta heimsmynd eða hvort að sagan sé að einhverju leyti að endurtaka sig, hvernig næstu skref kunna að verða og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um pólitíkina hér heima, um hvort og þá hvernig verðbólgan kann að hafa áhrif á stjórnmálin og margt fleira.

    1 hr 18 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners