Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #374 – Aðventukaffi með Gunnari Úlfars og Ingva Þór – Hverjir vinna jólaleikinn og óvænt skúbb í beinni

    Gunnar Úlfarsson og Ingvi Þór Georgsson kíkja í aðventukaffi. Við ræðum meðal annars um jólaverslun, hverjir það eru sem standa uppi sem sigurvegarar og hverjum bregst bogalistin, um kaup á afþreyingu og öðrum jólatengdum vörum, tilboðsdaga sem hafa breytt mynstrinu og margt fleira í þeim dúr. Þá er rætt um yfirvofandi skattahækkanir og hvaða áhrif þær kunna að hafa, óvissu sem ríkir um upphæð veiðigjalda, stöðu Sýnar og margt fleira.

    1 hr 17 min
  • #373 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Þakkargjörðarhátíð og gjafir á kostnað annarra

    Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir vikuna, stöðuna í þinginu, viðvaningshátt við fjárlagagerð og skattahækkanir, ummæli forsætisráðherra um kólnandi hagkerfi, gjafirnar sem Inga Sæland vill gefa en láta aðra borga fyrir, oddvitamál í borginni, yfirlæti í garð stuðningsmanna Miðflokksins, hvort það sé áhugavert að fjárfesta í sjávarútvegi og margt fleira.

    1 hr 44 min
  • #372 – Bransatal með Pálma Guðmundssyni

    Pálmi Guðmundsson er líklega einn reynslumesti fjölmiðla- og markaðsmaður landsins, með um 35 ár í bransaum eins og sagt er, og hefur komið að framleiðslu á mörgum af þekktustu sjónvarpsþáttum sem framleiddar hafa verið hér á landi. Í þætti dagsins ræðum við um afþreyingarbransann, hvernig þróunin hefur verið og hvernig má ætla að hún verði á næstu árum, samkeppnina á milli sjónvarpsins og kvikmyndahúsa, hvernig streymisveitur breyttu markaðnum, hverjir eru líklegir til að standa uppi á þessum markaði og margt fleira.

    1 hr 34 min
  • #371 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Með Wellington á borðum eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála

    Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir það helsta frá Hátíðarkvöldi Þjóðmála. Einnig er rætt um stýrivaxtalækkun Seðlabankans og kólnun hagkerfisins, slök viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tollum Evrópusambandsins, uppstillta mynd af forsætisráðherra tala í símann, nýtt slagorð Viðreisnar, nýja könnun sem sýnir Miðflokkinn stærri en Sjálfstæðisflokkinn, hátt setta ríkisstarfsmenn sem klúðra málum en fá bara nýtt starf á sömu launum, möguleg kaup Símans á fjölmiðlahluta Sýnar, og sitthvað fleira.

    1 hr 33 min
  • #370 – Sigríður Margrét í kaffispjalli

    Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um stöðuna í hagkerfinu og á vinnumarkaði, þörfina á lægri vöxtum, skattastefnu stjórnvalda og viðhorf til verðmætasköpunar, hættuna sem skapast með öryrkjagildru og tengingu almannatrygginga við launavísitölu, samskiptin við samtök launþegar, meinta óeiningu innan SA og margt fleira.

    1 hr 18 min
  • #369 – Helgarvaktin með Andreu Sig og Tómasi Þór

    Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir það helsta sem þótti markvert í vikunni. Við ræðum um stöðuna í pólitíkinni, „góð“ lagafrumvörp sem eru ófjármögnuð, klaufaskapinn við flutning ríkislögreglustjóra í starfi, kísiltolla og slaka hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda, hvort að horfur séu á vaxtalækkun í næstu viku, vörn Rúv á fréttafölsun BBC, umhverfisskatta sem vega þungt hjá íslenskum flutningafyrirtækjum og margt fleira.

    1 hr 26 min
  • #368 – Bogi Nils Bogason í kaffispjalli

    Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræðir um stöðu félagsins, flókna stöðu í alþjóðakerfinu sem hefur áhrif á reksturinn, hvort og þá hvernig hægt sé að bæta reksturinn, komandi kjarasamninga, framtíðarhorfur, flotamál og fyrirhugaða áfangastaði, erlenda samkeppni, skattastefnu stjórnvalda og margt fleira.

    1 hr
  • #367 – Helgarvaktin með Daða Kristjáns og Erni Arnarsyni – Brekakreppan sem kom með haustlægðum

    Daði Kristjánsson og Örn Arnarson mæta gallvaskir á helgarvaktina. Við ræðum um Brekakreppuna svonefndu, veruleikafirringu ríkisstjórnarinnar, vond skilaboð til atvinnulífsins, tækifærin sem við höfum til að gera betur, hagsmuni Íslands í alþjóðakerfinu, nýjan Þjóðarpúls, greiningu fjármálaráðherra á upphaf siðmenningarinnar, stöðu Alvotech, afhjúpun á fréttaflutningi BBC og margt fleira.

    1 hr 39 min
  • #366 – Viljum við þessa erlendu fjárfestingu eða ekki?

    Garðar Gíslason lögmaður og Þorstein Víglundsson, forstjóra Hornsteins og fv. ráðherra, ræða ð hvort að regluverk og skattaframkvæmd íslenskra stjórnvalda sé til þess fallin að hindra eða liðka til fyrir erlendri fjárfestingu hér á landi, tilviljanakenndar og ófyrirsjáanlegar ákvarðanir Skattsins þegar kemur að erlendum fyrirtækjum og starfsemi þeirra á Íslandi, hvort að erlend fyrirtæki beri of mikið úr býtum eftir að hafa fjárfest hér á landi, gróflega aðför að Kalkþörungafélaginu og margt fleira.

    54 min
  • #365 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Þórði Páls – Kjölfestan í hringiðu lýðræðisins

    Þórður Pálsson og Þórður Gunnarsson mæta á helgarvakt Þjóðmála. Í þættinum er fjallað um innihaldslausan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, líkurnar á vaxtalækkun í nóvember, vinstri menn sem halda að áföll einstakra atvinnugreina hafi engin áhrif á hagkerfið, ríkislögreglustjóra sem dælir peningum í vinkonu sína, viðhorf Viðreisnar til landsbyggðarinnar, aukna heimild Samkeppniseftirlitsins til að gera húsleit heima hjá stjórnendum fyrirtækja, hógværa embættismenn sem telja sig vera kjölfestu í hringiðu lýðræðisins og margt fleira.

    1 hr 31 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners