
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Alþingismennirnir og frændurnir Bergþór Ólason og Jens Garðar Helgason fara yfir allt það helsta. Rætt er um stöðuna i stjórnmálunum, hvort það sé ætlað hlutverk minnihlutans á Alþingi að beygja sig í duftið þegar ríkisstjórnin vill koma sínum málum að, áhrif vaxta og verðbólgu á bæði stjórnmál og atvinnulíf, hvort það sé þess virði að taka pólitíska slagi ef það skilar sér ekki í fylgisaukningu í könnunum, leikþátt utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, vantraust á starfandi forsætisráðherra og margt fleira.
Sigurður Már Jónsson ræðir um skattastefnu breskra og norska yfirvalda sem hefur valdið því að efnameira fólk, sem er einmitt það fólk sem skattahækkanir beinast að, hefur flutt úr landi og millistéttina sem situr eftir og þarf að greiða reikninginn. Þá er rætt um misheppnaða innflytjendastefnu, það hvernig stjórnmálamenn hafa ekki sinnt þeim málum sem brenna á fólki, viðhorf til atvinnulífsins og margt fleira.
Gunnar Úlfarsson og Hildur Björnsdóttir ræða um stjórnvöld sem vilja segja fólki hvernig það á að búa, um sveitastjórnarkosningarnar í vor og hvaða mál munu þar brenna á fólki, mögulega oddvita flokkanna í Reykjavík, möguleika á olíuvinnslu á Drekasvæðinu, hluti sem stjórnmálamenn ræða mikið en gera minna í að laga og margt fleira sem bar á góma í vikunni.
Fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Hermann Nökkvi Gunnarsson ræða um Charlie Kirk, sem var myrtur í síðustu viku, þau áhrif sem hann hafði á ungt fólk bæði Vestanhafs og víða um heim, þær skoðanir sem hann setti fram og hélt á lofti, viðbrögðin við andláti hans, tilraunir fjölmiðla til að mála upp dökka mynd af honum og fleira. Þá er einnig rætt um umræðuhefðina og þörfina á heilbrigðum skoðanaskiptum, hver hefur leyfi til að skilgreina hvað má segja og hvað ekki.
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný eftir alltof langa fjarveru. Við ræðum það sem hæst bar í vikunni í bland við annað. Förum yfir það sem helst bar á góma við þingsetningu og stefnuræðu forsætisráðherra, nýkynnt fjárlög, þær skattahækkanir sem í vændum eru, tillögu um að selja Landsbankann, hvort atvinnustefna ríkisstjórnarinnar skili einhverjum árangri og margt fleira. Loks ræðum við um morðið á Charlie Kirk og þá umræðu sem hefur skapast í kjölfarið.
Kristján Johannessen ræðir um stöðuna í Úkraínu, af hverju víglínan færist lítið, hvaða vopnum er verið að beita og hvernig, hvort að Vesturlönd hafi staðið sína plikt í stuðningi við Úkraínu, hvort að stríðið eða niðurstaðan þess komi okkur almennt við, hvort útlit sé fyrir frið og margt fleira sem snýr að þeim átökum sem hafa nú staðið yfir í rúmlega þrjú og hálft ár.
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, þjóðfélagsumræðu sem snýst um hvað má segja og hvað ekki, ákvörðun um að skipta út þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, hvort einver sakni VG af þingi, mögulegan formannsslag í Framsóknarflokknum og margt fleira.
Hjónin Hilmar Þór Kristinsson og Rannveig Eir Einarsdóttir reistu fyrir 20 árum litla raðhúsalengju í Vesturbæ Reykjavíkur. Það lagði grunninn af því fyrirtæki sem við í dag þekkjum sem Reir Verk, en þau hafa á þeim tíma sem liðinn er komið að framkvæmdum á mörgum af helstu byggingarreitum á Höfuðborgarsvæðinu. Þau ræða hér um uppbygginguna, hvernig fasteignamarkaðurinn hefur þróast, um helstu áhrifaþætti, um REIR20 sem var kynnt til leiks nú í vikunni og er ætlað að auðvelda fólki að komast inn á íbúðamarkaðinn og margt fleira. Þá ræða þau einnig um það hvernig það er að búa saman og vinna saman, um fjárfestingar þeirra í öðrum félögum og fleira.
Einar Þorsteinsson og Halldór Halldórsson ræða um stöðuna í borginni, nýjustu kannanir um fylgi flokka, hvort að Framsókn nái vopnum sínum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn eigi mögulega á því að komast í meirihluta, hvort að innstæða sé fyrir fylgi Samfylkingarinnar og annað sem snýr að pólitíkinni. Þá er rætt um skipulagsmálin og íbúðauppbyggingu, hvernig stjórnmálaskoðanir skiptast eftir hverfum, tillögur um skattalækkanir sem núverandi meirihluti vill ekki heyra minnst á og margt fleira. Við ræðum líka um nýjan aðstoðarmann menntamálaráðherra, hvernig ríkisstjórninni mun takast að koma fjárlögum í gegn, um aðför ríkisstjórnarinnar að atvinnulífinu og fleira.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer yfir grundvallarkenningar hægri manna, af hverju hægri menn hafa þær skoðanir sem þeir hafa og á hverju þær byggjast, hvaða hlutverki ríkisvaldið ætti að gegna, hvort að frjálshyggjan sé mannúðleg stefna eða ekki, um mikilvægi eignarréttarins, hvenær gengið er of langt í skattheimtu, hvort að brauðmolakenningin sé til í raun og veru, hver megi eiga auðlindirnar og margt fleira.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

462 Listeners

141 Listeners

22 Listeners

130 Listeners

26 Listeners

15 Listeners

7 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

19 Listeners

34 Listeners

15 Listeners

7 Listeners

27 Listeners

15 Listeners