Þjóðmál

Þjóðmál

By ÞjóðmálSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    39

    Followers

  • Typical duration

    93 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Þjóðmál episodes

  • #344 – Maraþonþáttur á Uppi bar – Part III

    Þriðji maraþonþáttur Þjóðmála lítur dagsins ljós og þjóðin ærist af gleði. Gestir þáttarins eru Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson, Sandra Ocares, Andrea Sigurðardóttir, Bergþór Ólason, Orri Hauksson, Þórður Pálsson, Heiðar Guðjónsson, Hörður Ægisson, Örn Arnarson, Sigríður Á. Andersen, María Björk Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Sævar Helgi Bragason, Kristín Gunnarsdóttir, Ólöf Skaftadóttir. Hér er tæplæga fjögurra klukkustunda skemmtun fyrir unga sem aldna.

    3 hr 50 min
  • #343 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna áður en vélarnar lenda í Washington

    Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um fund forseta Bandaríkjanna og Rússlands sem virðist að öllu óbreyttu ætla að skila litlum árangri, stöðu Úkraínumanna sem kann að skýrast að einhverju leyti á fundi í Washington í dag, hvernig vestræn ríki hafa brugðist við átökum Úkraínu og hegðun Rússa og fleira. Þá er einnig rætt um skort á upplýstri umræðu um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu, átökin fyrir botni Miðjarahafs, stöðu Kínverja og fleira.

    1 hr 15 min
  • #342 – Stöðufundur með Ingva Þór og Þórði Gunnars – ÁTVR í tilvistarkreppu – Ekkert líf í höfnum á landsbyggðinni

    Ingvi Þór Georgsson og Þórður Gunnarsson mæta í Þjóðmálastofuna og fara yfir allt það helsta. Við gerum stuttlega upp golfmót Þjóðmála, ræðum um útflutningsskatta í Bandaríkjunum, nýja úttekt Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif af því fáa sem ríkisstjórnin (sem stundum vill kalla sig verkstjórn) kom í gegnum þingið í vor, vaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku, hvort að hlutabréfamarkaðurinn sé í raun spennandi kostur í hávaxtaumhverfi, sjoppustefnu ÁTVR og tilvistarkreppu þess ríkisapparats og margt fleira.

    1 hr 13 min
  • #341 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Það sem ráðherrann vildi sagt hafa

    Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson slá á létta strengi og kæta landsmenn með nærveru sinni í hlaðvarpi þjóðarinnar. Rætt er um einbeittan (brota)vilja ríkisstjórnarinnar sem vill troða okkur inn í ESB, óljós skilaboð utanríkisráðherra í samtölum við erlenda miðla, þögn forsætisráðherra um tollamál, rugludalla sem vilja skerða akademískt frelsi, stöðu flokka í könnunum sem og önnur málefni líðandi stundar.

    1 hr 47 min
  • #340 – Kerfisvilla í skipulagsmálum skekkir fasteignamarkaðinn

    Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, ræðir um stöðuna á fasteignamarkaði, orsakirnar fyrir þeim miklu verðhækkunum sem hafa átt sér stað á þeim markaði á liðnum árum og hvað afleiðingar þær hafa, möguleika ungs fólks að komast inn á markaðinn, um gallaða löggjöf um skipulagsmál sveitarfélaga og kerfisvillur, hvernig leysa megi úr flækjunni, hvernig lýðfræðin hefur áhrif á markaðinn og margt fleira.

    1 hr
  • #339 – Verslunarmanna-helgarvakt með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen

    Heiðar Guðjónsson og Sigríður Andersen kíkja í Þjóðmálastofuna í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar og fara yfir allt það helsta. Við ræðum um möguleikana á olíuleit, ummæli Heiðars um að mögulega væri hægt að fella niður alla skatta á Íslandi, áherslur ríkisstjórnarinnar á sterkari tengsl við Hamas og ESB á meðan málin hér heima bíða, nýja tolla sem ESB ætlar að setja á Ísland, hvort að forsætisráðherra sé í raun að leiða ríkisstjórnina, neikvæða umfjöllun í garð ferðaþjónustunnar, gjaldmiðlamál, hvort að vinsældir ríkisstjórnarinnar séu tímabundnar eða varanlegar og margt fleira.

    1 hr 33 min
  • #338 – Hún er loksins komin – Upplestur á aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum

    Guðmundir Ingi Kristinsson birti í upphafi þessa mánaðar 2. aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum. Menn hafa beðið lengi eftir þessari aðgerðaráætlun og því er hér um að ræða mikið mikinn áfanga. Í aðgerðaráætluninni er meðal annars lögð áhersla á að styðja við grænfánaverkefni Landverndar í skólum landsins, auka áherslu á sjálfbærni og loftslagsmál og tryggja að námsumhverfi styðji við farsælt nám og vellíðan svo nefnd séu nokkur atriði. Þjóðmál leggur áherslu á góða þjónustu við hlustendur, sem er í raun þjóðin öll, og því fengum við Magnús Ragnarsson, góðvin þáttarins, til að lesa upp þetta mikla tímamótaverk eins og það leggur sig.

    55 min
  • #337 – Kjartan Ólafsson ræðir um uppbyggingu fiskeldis á Íslandi

    Kjartan Ólafsson hefur um árabil komið að uppbyggingu fiskeldis hér á landi. Í ítarlegu viðtali ræðir hann um efnahagslegu áhrifin af þeirri uppbyggingu, hvaða áskoranir hafa orðið á vegi hennar, hvernig næstu ár geta litið út, fjárfestingar í greininni, af hverju neytendur ættu frekar að vilja eldisfisk frá Íslandi frekar en öðrum löndum sem standa í sömu starfsemi og fleira. Þá er einnig rætt um þá gagnrýni sem hefur komið fram á fiskeldi í opnum sjókvíum, muninn á eldinu á sjó og landi og annað sem snýr að þessari mikilvægu atvinnugrein.

    1 hr 23 min
  • #336 – Lífstílsferð Þjóðmála í golf á Spáni – Heimilið fer á hliðina þegar kröfuharða frænkan kemur

    Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér í golfferð og dvöldu í góðu yfirlæti á Camiral vellinum á Spáni. Lífið er þó ekki bara leikur því að sjálfsögðu var tekinn þáttur úti þar sem farið er yfir það helsta sem á sér stað heima fyrir. Þar má nefna hvernig forsætis- og utanríkisráðherra sperrtust upp við það að yfirmaður frá Brussel kæmi til landsins, falskar yfirlýsingar um að Íslendingar þrái það að ganga í Evrópusambandið, hvernig sífellt er traðkað á Flokki fólksins, spurningar sem ekki mátti spyrja á blaðamannafundi og fleira. Eðli málsins samkvæmt er einnig rætt um golflífstílinn, dvölina á Spáni og fleira því tengt.

    1 hr 32 min
  • #335 – Helgarvaktin með Einari Sig og Herði

    Einar Sigurðsson og Hörður Ægisson fara yfir allt það helsta, eftirmálana af þinglokunum, villandi umræðu um mögulega aðild að Evrópusambandinu, verðmætasköpunina sem fjallað er um í stjórnarsáttmálanum en finnst hvergi, minnkandi líkur á frekari vaxtalækkunum í bili, mögulegan samruna Arion og Kviku og margt fleira.

    2 hr 9 min

More shows like Þjóðmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners