ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

By Þú skiptir máli forvarnastarfEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp episodes

  • Fyrirmyndir í tali og tónum - 32

    Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum.

    Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Már Gunnarsson.

    www.tonasmidjan.is

    20 min
  • Hjartans mál - 7. þáttur

    Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

    þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

    Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

    Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Tilgangur“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands.

    þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

    Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

    8 min
  • Við erum einstök - 9. þáttur / Ferðalagið með gleðinni

    Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

    Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum níunda þætti fjallar hún um gleðina og ferðalagið með gleðinni.

    Á þessum covid tímum finnst mörgum erfitt og að það sé lítið sem hægt er að gleðjast yfir og þakka fyrir, en þegar betur er að gáð er ótrúlega margt sem við tökum sem sjálfsagðan hlut en getum svo sannarlega þakkað fyrir.

    Þegar gleðin tekur völd hefur þakklætið sig til flugs – og hjartað hlýnar.

    þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir.

    Njótið <3

    16 min
  • Verkfærakassinn 26 - Anna Lóa og Hamingjuhornið

    Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

    Gestur 26. þáttar Verkfærakassans er Anna Lóa Ólafsdóttir flugfreyja, kennari, náms- og starfráðgjafi og rithöfundur ásamt því að bera fjölmarga fleiri hatta. Anna Lóa heldur út vefsíðunni Hamingjuhornið og samnefndri síðu á Facebook, auk þess að hafa gefið út bókina „Það sem ég hef lært“ sem hún byggir m.a. á skrifum sínum á umræddum síðum. Í viðtalinu ræðir Anna Lóa líf sitt, áskoranir og lærdóm á einlægan og fallegan hátt en í samtalinu skín í gegn ástríða Önnu Lóu fyrir því að bæta sitt eigið líf og annarra um leið.

    Áhugavert viðtal við áhugaverða konu.

    Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

    www.thuskiptirmali.is

    52 min
  • Fyrirmyndir í tali og tónum - 31

    Verið velkomin/nn í þáttinn FYRIRMYNDIR í tali og tónum.

    Í þáttunum fáum við til liðs við okkur tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Silja Rós Ragnarsdóttir.

    www.tonasmidjan.is

    35 min
  • Æðruleysið - 8. Þáttur - Halldóra Skúla / fyrsti hluti

    Verið velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs.

    Í þessum áttunda þætti fær Þórdís Jóna til sín magnaða konu frá þýskalandi hana Halldóru Skúladóttur í settið til að ræða þær aðferðir sem hún er að vinna með til að hjálpa fólki að styðja við og styrkja sjálfið, dáleiðslu, NLP og fleira. Í þessu áhugaverða viðtali fara þær víða og m.a. tala um heilan sem dramadrottningu og hvernig gott er að skilja og eiga samtal við hann okkur til gagns og gamans.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    Njótið!!


    http://www.thuskiptirmali.is


    52 min
  • Hjartans mál - 6. þáttur

    Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

    þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

    Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

    Í þessum sjötta þætti deilir Íris með okkur eigin hugrenningum og er umfjöllunarefni þáttarins samkennd í eigin garð.

    þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

    Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

    www.thuskiptirmali.is

    5 min
  • Við erum einstök - 8. þáttur / Sannleikurinn minn!!

    Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

    Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið.  

    „Í þessum áttunda þætti fjallar hún um sannleikann , já sannleikann sinn , en hvað er sannleikur ? Sannleikurinn er tvennt í senn: Annarsvegar sá hversdagslegi eiginleiki þess sem við höldum fram, trúum og förum eftir og hinsvegar óræður og næstum því yfirnáttúrlegur hlutur: samsvörun þess sem sagt er við það sem er í raun og veru og alveg óháð því sem sagt er. 

    En eins og málshátturinn segir við okkur „Sannleikurinn er sagna bestur“.

    þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

    18 min
  • Verkfærakassinn 25 - Gígja Árnadóttir

    Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

    Gestur 25. Þáttar Verkfærakassans er Gígja Árnadóttir fyrrverandi náms- og starfsráðgjafi. Gígja sem er 78 ára gömul segir okkur frá áhugaverðri ævi sinni á lifandi og skemmtilegan og einlægan hátt eins og henni einnig er lagið.

    Hún ræðir m.a. hvernig Einar á Einarsstöðum læknaði heilaæxlið hennar á einni nóttu, ákvörðun sína að fara í nám til Kanada nýfráskilin um fimmtugt, kennsluferilinn þar sem hún var m.a. einn af fyrstu tölvukennurum á Íslandi á tíma þar sem tæknin var að ryðja sér til rúms og andlegt ferðalag sitt þar sem m.a. koma við sögu heilun, álfar, huldufólk, annar sigur á krabbameini og svo margt, margt fleira.

    Ævintýralegt viðtal við kraftmikinn brautryðjenda á flestum sviðum lífsins.


    Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

    Njótið!


    http://www.thuskiptirmali.is




    1 hr 6 min
  • Æðruleysið - 7. þáttur / Sandra Björg

    Verið velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs.

    Í þessum sjöunda þætti fær Þórdís Jóna til sín frábæran gest hana Söndru Björg Helgadóttur til að ræða meðal annars um SMART formúluna til markmiðasetningar og fleira skemmtilegt og fræðandi. Mikilvægi þess að eiga sér drauma, þekkja sjálfan sig og árangursbrekkuna mögnuðu.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    www.thuskiptirmali.is

    38 min

About ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

From the publisher's feed

ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa…

More shows like ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

8 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners

Á ég að hend'enni? by Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

0 Listeners