ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

By Þú skiptir máli forvarnastarfEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp episodes

  • Verkfærakassinn 29 - Sigga Kling

    Verið velkomin í Verkfærassann

    Gestur 29. þáttar Verkfærakassans er þjóðardjásnið Sigga Kling.

    Það var bjartur vordagur á Álftanesinu þegar Hrabbý heimsótti Siggu og umhverfið iðaði af lífi. Í bakgrunni viðtalsins má því heyra börn og fullorðna að leik, fugla syngja og allskyns farartæki fara um.

    Hrabbý og Sigga ræddu lífið og tilveruna, lífshlaup hennar sjálfrar og svo margt, margt fleira. Að taka viðtal við Siggu er eins og að taka þátt í spennandi óvissuferð þar sem þú veist aldrei hvað kemur næst. Það eina sem þú getur verið viss um er að það verður alltaf gaman.

    Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

    Njótið!

    www.thuskiptirmali.is

    1 hr 9 min
  • Æðruleysið - 12. þáttur

    Verið velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

    Í þessum tólfta þætti talar hún um bata og bataferli. Hún fer yfir það hvað hefur virkað og hversu persónubundið það er hverju sinni.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    Njótið!!


    http://www.thuskiptirmali.is


    34 min
  • Við erum einstök - 10. þáttur / Sól og sykur

    Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

    Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg R. Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið.

    Þennan tíunda þátt kallar Ingibjörg „Sól og sykur“

    Margir eru að finna fyrir þreitu, streitu, áhyggjurnar hlaðast upp og um leið gefast margir upp á sínum markmiðum og rútínan fer í rugl. - Þá er nauðsynlegt að stoppa, kúpla sig út úr amstri daglegs lífs og leifa sér að njóta þess að taka sér frí og hlaða batterýið.

    Já, munum að lífið er núna, verum góð við okkur sjálf og njótum þess.

    þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir.

    Njótið <3

    19 min
  • Hjartans mál - 9. þáttur

    Verið velkomin í þáttinn Hjartans mál

    þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

    Í þessum þáttum okkar fræðumst við saman um andlega líðan, lesum hugvekjur hjarta og huga og finnum leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

    Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur „Ástríða“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðaraskóla Íslands. Ágústa opnaði nýverið stofu í Laugardalnum en hennar sérsvið eru til að mynda stjúptengsl, samskipti/samskiptaörðugleikar, kvíði, ótti við höfnun, að bera skömm, framhjáhalds meðferðir (pör sem eiga þá sögu), djúp sjálfsvinna og fleira.

    Ég hvet ykkur til að fylgjast með Águstu á instagram en hún heldur úti reikningunum @verumvakandi og @agustaosktherapist.

    Við þökkum Ágústu Ósk kærlega fyrir.

    þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

    Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

    Njótið!!

    www.thuskiptirmali.is

    8 min
  • Verkfærakassinn 28 - Lilja Steingríms

    Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

    Gestur 28. þáttar Verkfærakassans er Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, hómópati, leiðsögukona og Bodynamic sálmeðferðarfræðingur. Undir nið þungavinnuvélanna í Vesturbænum segir Lilja hlustendum frá áhugaverðri ævi sinni, frá áskorunum þess að vera klínískur hjúkrunarfræðingur og andleg sál um leið og kynnir fyrir okkur þetta glænýja meðferðarform Bodynamic, en Lilja er eini slíki meðferðaraðilinn hér á Íslandi enn sem komið er.  Áhugavert spjall við afar áhugaverða konu.

    Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

    Njótið! <3

    www.thuskiptirmali.is

    57 min
  • Æðruleysið - 11. þáttur.

    Verið velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

    Í þessum ellefta þætti talar hún Þórdís um sjálfsmildi og það að við sjálf eigum að vera okkar besti vinur. Hún fer yfir málefni tengt því og hvernig við komum fram og tölum við okkur sjálf.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    Njótið!!

    www.thuskiptirmali.is

    34 min
  • Hjartans mál - 8. þáttur

    Verið velkomin í Hjartans mál

    þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

    Þetta er fyrsti þáttur eftir páska, vor í lofti, það er að birta og sumardagurinn fyrsti handan við hornið.

    Eins og áður hefur komið fram munum við í þessum þáttum okkar fræðast saman um andlega líðan, lesa hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf auk jafnvægis í sál og líkama.

    Í þessum áttunda þætti fær af Hjartans mál fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Þegar ekki sést til sólar“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook.

    Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir.

    þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

    Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

    Njótið!!

    www.thuskiptirmali.is

    9 min
  • Verkfærakassinn 27 - Ingrid Kuhlman

    Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

    Gestur 27. þáttar Verkfærakassans er Ingrid Kuhlman ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, brautryðjandi og baráttukona með meiru. Ingrid deilir m.a með hlustendum hvernig ást hennar á ABBA leiddi hana eftir krókaleiðum frá Hollandi til Íslands þar sem hún hefur nú búið í um 30 ár og hvernig veikindi föður hennar fyrir nær 2 áratugum urðu til þess að hún er nú í forsvari fyrir Lífsvirðingu, félag um dánaraðstoð þar sem baráttumálið er yfirráð einstaklingsins yfir eigin lífi og dauða. Þetta og margt, margt fleira sem vert er að sperra eyrun eftir.

    Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

    Njótið!

    http://www.thuskiptirmali.is


    43 min
  • Æðruleysið - 10. þáttur - Halldóra Skúla / seinni hluti

    Velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

    Í þessum tíunda þætti heldur Þórdís Jóna áfram að tala við hana Halldóru Skúladóttur og ræða þær að þessu sinni um breytingarskeið kvenna og málefni þeim tengd. Þær fara um víðan völl í þessu málefni enda af nægu að taka, þær velta fyrir sér hvernig hægt sé að tækla þetta óumflýjanlega tímabil á jákvæðari og betri hátt. Losa um tabúin og skömm sem fylgir þessum aldri kvenna. Þær vitna m.a. í Dr.Lisu Masconi sem rannsakað hefur breytingarskeiðið mikið.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    Njótið!!

    www.thuskiptirmali.is

    54 min
  • Æðruleysið - 9. Þáttur.

    Verið velkomin/nn í Æðruleysið

    Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

    Í þessum níunda þætti deilir Þórdís Jóna með okkur sínum hugrenningum um valdeflingu einstaklingsins.

    Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

    Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

    þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

    http://www.thuskiptirmali.is



    30 min

About ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

From the publisher's feed

ÞÚ skiptir máli hlaðvarp hefur að geyma þætti um málefni sem margir eru að glíma við í sínu daglega lífi. - Já . forvarnir til framtíðar og við vonum að þið munið hafa gagn af og við náum að hjálpa…

More shows like ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

8 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners

Á ég að hend'enni? by Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

0 Listeners