Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.... more
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 283 episodes available.
September 22, 202173. Toonstruck - viðtal við Tómas ValgeirssonTíundi áratugur síðustu aldar gaf af sér marga snilldina. Hann gaf líka af sér snilld sem ekki allir þekkja til. Fjölmiðlamaðurinn og atvinnu nördinn Tómas Valgeirsson mætir í stúdíóið til að segja frá einni slíkri snilld.Í þætti vikunnar spjalla Arnór Steinn og Gunnar við Tomma um nokkra áhugaverða leiki frá þessum goðsagnakennda áratug – þá helst point-and-click leiki. Aðalatriðið er falda gersemin Toonstruck, en það er í alvörunni fáránlegt að leikurinn sé ekki frægari en hann er. Stjörnum hlaðið sýrutripp sem var því miður markaðsett glórulaust illa.Við ræðum einnig almennt um smellileiki, æsku Tomma og margt fleira. Við þökkum honum kærlega fyrir komuna! Tjékkið á Poppkúltúr á uppáhalds hlaðvarpsveitunni þinni – þar fáið þið meira af Tomma!Þátturinn er í boði Elko Gaming....more1h 2minPlay
September 15, 202172. Playstation Showcase 2021Hvílíkt. Og. Annað. Eins.Fyrir utan þessi fjögur orð þá er maður eiginlega nokkuð orðlaus með Sony sýninguna þetta árið. Við fengum fjölbreytta og sjúklega áhugaverða kynningu og ofboðslega spennandi titla sem við hlökkum til að kjamsa á!Arnór Steinn og Gunnar ræða góðu og geggjuðu hlutina við kynninguna en einnig það sem betur mátti fara. Síðast en ekki síst þá ræða þeir það sem nákvæmlega enginn bað um. *hóst* *hóst* GTAV AFTUR *hóst*.KOTOR, Spiderman 2, Wolverine (???) og svo auðvitað God of War!Hvað fannst ykkur um kynninguna í ár?Þátturinn er í boði Elko Gaming...more1h 23minPlay
September 08, 202171. The Outer WorldsFyrir sirka fimmtíu þáttum síðan ræddu Arnór Steinn og Gunnar stuttlega um leikinn The Outer Worlds. Í þætti vikunnar gera þeir það aftur. Bara betur. Ójá.The Outer Worlds er einn af bestu leikjum síðustu ára að mati vina ykkar hjá Tölvuleikjaspjallinu. Hér ræðum við hann í þaula. Allt saman. ALLT! Plottið, baksöguna, vopnin, spilunina, krúið, skipið, pláneturnar, fagurfræðina og hvaðeina.Hvaða ákvörðun tók Gunnar sem skar Arnór inn að beini? Þið komist að því með því að hlýða á fögur orð okkar um þennan frábæra leik.Þar sem þetta er í annað skipti sem við ræðum leikinn þá leyfum við okkur að tala frjálslega um söguna og aðra hluti, þannig að það er nokkuð stór höskuldarviðvörun með þættinum.Ef þú, kæri hlustandi, ert ekki búinn að spila Outer Worlds þá skaltu gera það eins og skot. Við mælum hiklaust með.Þátturinn er í boði Elko Gaming....more1h 21minPlay
September 01, 202170. Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir V: Mortal Kombat 2021Jæja þá. Þeim tókst loksins að gefa út þriðju Mortal Kombat myndina. En er hún eitthvað góð? Það kemur í ljós í þætti vikunnar af Ömurlegum Tölvuleikjakvikmyndum!Arnór Steinn og Gunnar ræða allt saman, það góða og það slæma (merkilegt nokk, það er NÓG af hvoru) við myndina og reyna að koma með gott svar við þeirri spurningu. Við höfum séð þessa karaktera áður, plottið er fjandi svipað en hér er bæði blóð og blót.Er Sonya Blade jafn góð og Bridgette Wilson Sampras var í fyrstu myndinni? Er Liu Kang með jafn hellað hár og Robin Shou var með í fyrstu myndinni? Hvar er Johnny Cage?Öllum þessum spurningum verður svarað. Engar áhyggjur.Hvað fannst ykkur um Mortal Kombat? Endilega látið okkur vita! Fleiri Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir eru í vændum, segið okkur bara hvað við eigum að taka næst!Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock....more1h 16minPlay
August 25, 202169. Íslenskir streymarar - viðtal við Eggert Unnar Snæþórsson (eggertunnar)Tölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska streymara! Í þetta sinn er það Eggert Unnar Snæþórsson, streymara og efnissmið, en hann er að fagna þriggja ára streymisferli um þessar mundir. Við ræðum við hann um allt á milli himins og jarðar. Um upphaf streymisins, um fyrstu leikina í æsku, hæðir og lægðir á ferlinum og margt fleira. Helst ber að nefna að hann streymdi í sólarhring til að safna fyrir bleiku slaufuna! Hér er á ferðinni virkilega skemmtilegt og einlægt viðtal sem enginn má láta fram hjá sér fara.Við þökkum Eggerti kærlega fyrir komuna, tjékkið á honum á öllum helstu samfélagsmiðlum og Twitch undir nafninu eggertunnar.Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock....more1h 6minPlay
August 18, 202168. Mass Effect 1Heimurinn er búinn að stækka. Mannkynið er ekki lengur eitt og sér í alheiminum. Nú eru þúsundir geimverutegunda út um allt og við að stíga okkar fyrstu skref í að kanna óendanlegan heiminn.Plottið í Mass Effect hefst á þessum umrótstímum. Þú ert Commander Shepard og þú þarft heldur betur að redda frekar skítlegum málum. Þegar einn af færustu hermönnum vetrarbrautanna fer að haga sér á mjög svikulan hátt þarft þú að ferðast endanna á milli til að finna hann, sanna sekt hans og varpa ljósi á samsærið sem virðist ætla leggja allt á hliðina. Til þess hefur þú fullt af geimverum til að hjálpa þér. Veldu vel!Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um Mass Effect 1 í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming. Leikurinn er frábær og verður bara betri endurútgefinn sem hluti af Mass Effect Legendary Edition. Þátturinn er því miður ekki laus við spoilera – það er ómögulegt að ræða alla þrjá leikina (þ.e. við tökum Mass Effect 2 í öðrum þætti og svo framvegis) án þess að spilla fyrir því sem gerðist í fyrri leikjum. Við tölum því nokkuð frjálslega um leikinn hér.Hvað fannst ykkur um Mass Effect? Er mikill munur á þessum og upprunalega?Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock....more1h 23minPlay
August 11, 202167. Ratchet & Clank: Rift ApartGoðsagnirnar eru komnar aftur!Í þessum samstarfsþætti okkar við Elko Gaming köfum við ofan í nýjasta Ratchet & Clank leikinn, en hann heitir Rift Apart!Félagarnir eru í miðjum hátíðarhöldum þegar erkióvinurinn Dr. Nefarious ræðst AFTUR á þá og stelur byssunni Dimensionator – byssa sem Clank lagaði fyrir vin sinn svo hann gæti mögulega fundið aðra af sinni tegund. Allt fer stórkostlega til andskotans þegar víddir blandast saman og hliðstæða Ratchet úr annarri vídd – kvenkyns lombax að nafni Rivet, hjálpar þeim félögum að kippa raunveruleikanum í liðinn.Arnór Steinn og Gunnar ræða allt um þennan frábæra leik. Byssurnar, heimana, grafíkina, allt sem Playstation 5 býður upp á (og það er MARGT). Gunnar náði að platína leikinn fyrir þáttinn – náði Arnór því?Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock....more1h 1minPlay
August 04, 202166. Spider Man: Miles MoralesHvað þýðir það að vera köngulóarmaður?Tölvuleikurinn Spider Man: Miles Morales reynir að svara þessari spurninu eins best og hægt er. Í leiknum stýrir maður samnefndum karakter sem er búinn að vera að læra fagið frá Peter Parker í að verða ár. Aðstæður verða til þess að Miles er einn í New York og þarf að takast á við Underground gengið, leitt af hinum dularfulla Tinkerer.Arnór Steinn og Gunnar ræða þennan ágæta leik í þaula í þætti vikunnar. Hvað er nýtt, hvað er gott, hvað má betur fara og meira skemmtilegt.Við tökum einnig fyrir hvað við værum til í að sjá í næsta Spider Man leik – strákarnir eru ekki alveg sammála um það.Engin höskuldarviðvörun fylgir þessum þætti. Ef þú hefur ekkert spilað leikinn þá getur þú gert það með góðri samvisku.Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock....more59minPlay
July 28, 202165. Activision Blizzard og eitruð vinnustaðamenningSumarfríið er að ná hámarki hjá Tölvuleikjaspjallinu og Gunnar er ekki í bænum! Arnór Steinn sjanghæjaði til sín þekkta gesti spjallsins, Daníel Freyr Swenson, hypemálaráðherra Cyberpunk og Jón Pálsson, sérfræðing okkar í Overwatch málum, til að ræða Activision Blizzard.Fyrr í vikunni kom út skýrsla ráðuneytis atvinnu- og húsnæðismála í Kaliforníu um „frat boy“ menningu á vinnustað fyrirtækisins. Skýrslan er afrakstur tveggja ára rannsóknar á málunum. Margt slæmt hefur komið í ljós, slæm staða kvenna innan fyrirtækisins en þær þurfa að líða alls kyns áreiti dag hvern.Viðbrögð fyrirtækisins hafa verið mismunandi og er augljóst að Activision Blizzard er ekki að fara að tjá sig frekar um málið fyrr en allt fer fyrir rétt.Arnór Steinn, Daníel Freyr og Jón ræða þetta allt saman og kanna hvað gæti mögulega gerst næst.Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock....more1h 10minPlay
July 21, 202164. Firewatch**HÖSKULDARVIÐVÖRUN Á EFTIRFARANDI TÍMASTIMPLI: 40:10 TIL 53:45**Við erum öll að flýja eitthvað. Er hægt að flýja allt? Jafnvel þó maður taki sér vinnu úti í ysta rassgati?Það er ein af mörgum spurningum sem meistaraverkið Firewatch reynir að svara. Leikurinn kom út árið 2016 og stimplaði sig strax inn sem einn af allra bestu indí leikjum síns tíma.Þú leikur Henry – mann sem ákveður að fá sér vinnu sem skógareldavaktmaður í Wyoming fylki (lesist: úti í ysta rassgati) þegar aðstæður heima verða yfirþyrmandi. Þar er hann aleinn. Hans einu samskipti eru í gegnum talstöð við yfirmann sinn – Delilah, kona sem er alveg að brenna út í starfi sínu.Eins og reikna má með þá er ekki allt með felldu í Shoshone skóginum. Dularfullir hlutir fara að gerast sem Henry getur ekki útskýrt. Það er þitt að leysa ráðgátuna og tja ... lifa af.Það er HÖSKULDARHLUTI í þættinum. Frá 40:10 til 53:45 ræða Arnór Steinn og Gunnar söguna og endinn í þaula. Ef þú hefur ekkert spilað leikinn þá mælum við alveg eindregið með því að þið forðist þann hluta þáttarins. Allt annað er laust við spilliefni.Þátturinn er í boði Elko Gaming og Le Kock....more1h 1minPlay
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 283 episodes available.