Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.... more
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 283 episodes available.
March 03, 202143. Parity Games - viðtal við Maríu GuðmundsdótturTölvuleikjaspjallið heldur áfram umfjöllun sinni um íslenska tölvuleikjaframleiðslu. Í þetta sinn spjalla Arnór Steinn og Gunnar við Maríu Guðmundsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Parity Creative House. María hefur mikla reynslu úr bransanum og var lengi vel hjá CCP, var meðal annars í Kína að vinna að Eve titli! Hún stofnaði Parity árið 2017 og fyrirtækið vinnur nú að spennandi leik sem heitir Island of Winds. Hún segir okkur frá ferlinum, stofnun Parity og frá leiknum. Við þökkum Maríu kærlega fyrir komuna og hlökkum til að þiggja boðið hennar um heimsókn á skrifstofuna!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more46minPlay
February 24, 202142. Blizzcon Online 2021Misstir þú af Blizzcon? Ekki örvænta! Vinir þínir hjá Tölvuleikjaspjallinu horfðu á það fyrir þig og koma með samantekt í þætti vikunnar! Við ræðum helstu tilkynningar Blizzard og komum með okkar skoðun á málum. Diablo IV, Diablo II Resurrected, WOW Classic og Overwatch 2. Er hægt að biðja um meira?Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more53minPlay
February 17, 202141. Mafia Definitive Edition"Remember that money, jobs, even best pals will come and go. But family? Family is forever."Í þessum samstarfsþætti við Elko ræða Arnór Steinn og Gunnar endurgerðina á Mafia sem kom út árið 2002. Þessi leikur hefur verið gerður frá toppi til táar upp á nýtt og það sést heldur betur á öllum hliðum leiksins. Við ræðum söguþráðinn að einhverju leyti en við spillum ekki fyrir endinum né neinum mikilvægum sögupunktum, þannig að þú getur hlustað á þáttinn og spilað leikinn eftirá. Við ræðum bílana, erfiðleikastigin, gunplay og allt mögulegt. Við erum nokkuð sammála um að þetta er mjög góður leikur og við mælum klárlega með honum. Við þökkum Elko alveg kærlega fyrir eintak af leiknum og hlökkum til að spila fleiri Mafia leiki!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more54minPlay
February 10, 202140. Gælunöfn (e. nicknames) Íslendinga í TölvuleikjumEitt af markmiðum Tölvuleikjaspjallsins er að rannsaka tölvuleikjamenningu Íslendinga. Í þessum þætti uppfyllum við hluta af því markmiði OG gerum eitthvað sem er einstakt áhugamál þáttastjórnenda; Rannsökum gælunöfn (e. nicknames/nicks) Íslendinga í tölvuleikjum. Þau geta komið hvaðan sem er. Arnór Steinn (keisaritunglsins) og Gunnar (Bismark) ræða meðal annars sín eigin gælunöfn og hvaðan þau koma. Við förum svo yfir hluta af niðurstöðum könnunar sem framkvæmd var á Facebook í upphafi janúar – en þar spurðum við fólk einfaldlega um að segja okkur söguna á bak við þeirra gælunafn. Rúmlega 280 manns svöruðu (!!!) sem þýðir að við náum ekki að koma öllu fyrir í einum þætti. Planið er því að flokka gagnasafnið aðeins og gera bara fleiri þætti svo við náum að fara yfir það allt saman. Þið eruð öll snillingar, takk alveg æðislega fyrir þátttökuna!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more43minPlay
February 03, 202139. GameTíví - Viðtal við Ólaf Þór JóelssonTölvuleikjaspjallið er að miklu leyti starfandi í dag vegna þess að GameTíví lagði grunninn að íslenskri tölvuleikjaumfjöllun á sínum tíma. Í þætti vikunnar fáum við Ólaf Þór Jóelsson, framkvæmdastjóra Senu og upphafsmann GameTíví í viðtal! Arnór Steinn og Gunnar ræða við hann um sögu GameTíví og hvernig þættinum gengur í dag, um VR aðstöðuna hjá Smárabíó, Playstation 5, Sinclair Spectrum tölvuna og margt, margt fleira. Við þökkum Óla kærlega fyrir komuna og hlökkum til að heyra í honum aftur!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more1h 9minPlay
January 27, 202138. Spider-ManSpider-Man! Hvað þarf meira að segja? Jæja ókei ... segjum aðeins meira. Hér tekur spilarinn upp þráð Köngulóarmannsins eftir átta ára feril og reynir að halda á lofti einkalífi Peter Parker og ferli hans við að berjast við glæpamenn. Arnór Steinn og Gunnar ræða alla helstu þætti leiksins í algjörlega SPOILER FREE þætti. Hvað fannst ykkur um Spider-Man?Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more51minPlay
January 20, 202137. Arkham KnightHvað gerir góði kallinn þegar markmiði hans er náð?Í þessum lokaþætti okkar um Return to Arkham seríuna fjöllum við um Batman: Arkham Knight! Þessi frábæri leikur gerist níu mánuðum eftir atburði Arkham City. Hér þarf Blakan að kljást við hinn ógnarlega Scarecrow sem hefur hrætt líftóruna úr Gotham borg og hyggst gera allt sem hann getur til að sýna umheiminum að Batman er bara lítil og hrædd manneskja. Með honum í liði er hinn dularfulli Arkham Knight. Batman þarf bæði að sigrast á Scarecrow en einnig þarf hann að leysa ráðgátuna um Riddarann ... hver er hann og hvernig þekkir hann Batman svona vel? Við tökum það fram að þátturinn er ekki laus við spoilera! Arnór Steinn og Gunnar ræða lokakaflann, kostina og gallanna, karakterana og umhverfið. Hvað fannst þér um Arkham Knight? Fílaðir þú bílinn eða ekki?Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more1h 7minPlay
January 18, 202136. Bónusþáttur! Lucasfilm Games og EAÁrið 2021 byrjaði á þeirri sprengju að EA væri ekki lengur með einkarétt á Star Wars leikjum. Geta fréttir almennt verið betri? Nei við segjum svona. En í þessum bónusþætti ræða Arnór Steinn og Gunnar um hið nýja Lucasfilm Games og hvað ákvörðunin þýðir fyrir framtíð Star Wars leikja. Tölvuleikjaspjallið hefur lengi kallað eftir því að EA missi einkaréttinn og það er mjög greinilegt að forkólfar Lucasfilm hafi hlustað á okkur og séu að taka ráðleggingum okkar fagnandi. Við þökkum Lucasfilm (og ykkur hinum) að sjálfsögðu fyrir hlustið!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more41minPlay
January 13, 202135. GTA VFyrir rétt rúmum sjö árum síðan kom út GTA V. Tveimur leikjatölvukynslóðum síðar hefur leikurinn komið út á sjö tölvum og selt fleiri en 130 milljón eintök. Arnór Steinn og Gunnar ræða þennan ágæta leik en þar spilar þú sem þrír karakterar - Michael, Franklin og Trevor - og færir þá upp metorðastigann í undirheimum Los Santos. Við ræðum flestar hliðar leiksins, söguna, lúkkið, bílana og byssurnar. Við geymum Online og margt annað fyrir aðra þætti - það er eiginlega ómögulegt að koma fyrir góðu spjalli um allar hliðar GTA V í einum þætti. Þátturinn er ekki laus við spoilera, þannig að ef þú ert ekki búin/n að spila GTA V þá máttu endilega drífa í því og hlusta svo á þennan þátt! Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more1h 7minPlay
January 06, 202134. Rafíþróttasamtökin - Viðtal við Aron ÓlafssonFyrsti þáttur ársins er ekki af verri gerðinni. Við fengum til okkar í viðtal framkvæmdastjóra Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ), Aron Ólafsson! Við förum um víðan völl í þessum ótrúlega skemmtilega þætti. Við byrjum á að heyra hvaðan Aron kemur „tölvuleikjalega“ séð og hvernig hans fyrstu kynni við mótahald í tölvuleikjum voru. Seinni hluti þáttarins er um starf RÍSÍ og þá sérstaklega um óefnd loforð Reykjavíkurborgar um að styrkja rafíþróttalið í borginni. Sveitarfélög úti á landi eru að gera ótrúlega hluti hvað varðar rafíþróttir og það er leiðinlegt að rafíþróttir séu einhverskonar pólítísk skiptimynt í borgarstjórn. Tölvuleikjaspjallið þakkar Aroni kærlega fyrir komuna og við hlökkum mjög mikið til að fjalla meira um þessa stærstu íþrótt heims!Þátturinn er í boði Elko Gaming og veitingastaðarins Le Kock!...more1h 59minPlay
FAQs about Tölvuleikjaspjallið:How many episodes does Tölvuleikjaspjallið have?The podcast currently has 283 episodes available.