Tveggja Turna Tal

Tveggja Turna Tal

By Tveggja TurnatalSports
Download on the App Store

Tveggja Turna Tal episodes

  • #21 Arna Stefanía
    Arna Stefanía Guðmundsdóttir er stórkostleg manneskja. Afrekskona í frjálsum, afrekskona í kennslu, meistari, snillingur og mannvinur í orði sem á borði.
    Við Arna Stefanía fórum yfir farinn veg, ræddum það að vera barnastjarna, muninn á milli einstaklings og hópíþrótt, áttuðum okkur á því hversvegna við erum perluvinir og plönuðum margra manna date á næsta ári.
    Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Hafið Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir samstarfið.
    Njótið vel !
    1 hr 10 min
  • #20 Teitur Þórðarson
    Fyrri gestur vikunnar er Teitur Þórðarson.
    Teitur breytti þjálfunaraðferðum í knattspyrnu í Noregi, á Íslandi og í Eistlandi. Hann þjálfaði líka í Kanada og spilaði í Svíþjóð, Frakklandi og Sviss. Teitur hefur flutt 27 sinnum!
    Teitur var frábær leikmaður. Stór, sterkur og fljótur með ríkt dugnaðargen í skrokknum.
    Við fórum yfir fullt af hlutum. Árin í Noregi, hvernig það var að spila undir Arsene Wenger og hvað skiptir máli til að ná árangri og margt fleira.
    Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitnessport, Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði.
    Njótið!
    1 hr 17 min
  • #19 Kristján Ómar Björnsson
    Gestur dagsins er Kristján Ómar Björnsson.
    Kristján Ómar er einn leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu með skráða 531 mótsleiki hjá KSI auk þess sem hann spilaði í Svíþjóð, geri aðrir betur!
    Kristján Ómar stofnaði Nú skólann í Hafnarfirði þar sem hann er nú Heilsustjóri.
    Við fórum yfir víðan völl! Kristján valdi bestu leikmenn sem hann hefur spilaði með, besta þjálfarann, fór yfir um 30 ára meistaraflokksferil og kynnti mig fyrir stefnu skólans sem hann stofnaði.
    Kristján Ómar er áhugaverður náungi.
    Við þökkum Nettó, Hafinu fiskverslun, Netgíró, Visitor, Fitness sport, Netgíró og Budvar fyrir samstarfið góða og vonum að þið hafið jafn gaman að og ég við hlustunina.
    Njótið!
    2 hr 13 min
  • #18 Ívar Ingimarsson
    Fyrri gestur vikunnar er Stöðfirðingurinn Ívar Ingimarsson.
    Ívar var farinn að spila með meistaraflokki fyrir fermingu á Stöðvarfirði þar sem hann náði í menn í frystihúsið til að spila við sig sem krakki.
    Við fórum yfir feril Ívars á hundavaði. Þar segir frá dagbókarskrifum, seiglu ungs drengs og ákveðni. Einnig ræddum við lausagöngu sauðfjár og nú er spyrillinn kominn í spjallhóp á facebook um efnið..
    Þessi þáttur er fyrir ungt íþróttafólk, fullorðið fólk og allt þar á milli.
    Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitness sport , Visitor og Budvar fyrir að vera með okkur í liði.
    Þið hafið fengið viku til að hlusta á hvern þátt. Nú mælum við með að stilla á hraða 1.5 því því þættirnir verða tveir í viku í þessum mánuði - svo tökum við stöðuna.
    Njótið!
    1 hr 35 min
  • #17 Friðrik Ingi Rúnarsson
    Gestur vikunnar er einn af áhrifaríkustu þjálfurum í sögu þjóðar! Friðrik Ingi stýrði Njarðvíkurliðinu til sigurs í Íslandsmótinu þegar hann var einungis 22 ára gamall, geri aðrir betur.
    Við ræddum Jordan, Phil Jackson, Pat Riley, liðsheild, makamissi, fótbolta, þríhyrningssóknina og um hvað lífið snýst um.
    Þetta er skylduhlustun.
    Við í turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Fitnessport, Visitor.is og Budvar fyrir að vera með okkur í liði.
    Njótið!
    2 hr 19 min
  • #16 Nik Anthony Chamberlain
    Gestur vikunnar er Íslandsmeistari í fótbolta 2024. Nik Chamberlain kemur frá Englandi, lærði í Alabama og tengdist Íslandi þar í gegnum
    m.a. Sigga Sör, Kára Ársæls og Hjört Hjartar!
    Hann kom til Íslands og spilaði á Álftanesi, hjá ÍH (rósir eru rauðar, fjöllin eru blá, hverjir eru bestir - ÍH) áður en hann spilaði fyrir austan hjá Hugin og KFF.
    Hann setti mark sitt á Íslenskan fótbolta hjá kvennaliði Þróttar og var á haustmánuðum Íslandsmeistari með Breiðabliki.
    Við fórum yfir margt. Meðal annars það að Breiðablik á að hafa sent Big Sexy í klippingu, hræðilegan tónlistarsmekk og tígulmiðjuna góðu ásamt því sem Nik valdi bestu leikmenn í sögu þjóðar kvennamegin!
    Við í Turnunum þökkum okkar traustu bakhjörlum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fiskversluninni Hafið, Fitness Sport og Tékkanum Budvar ásamt Visitor ferðaskrifstofu.
    Njótið!
    2 hr 15 min
  • #15 Jóhann Birnir Guðmundsson
    Gestur vikunnar er mjög áhugaverður náungi. Hann æfði eiginlega ekki fótbolta í 3 og 4 flokki því það var ekki lið í Garðinum, þaðan sem Jóhann Birnir kemur. Elton John keypti hann til Watford og þar spilaði hann undir goðsögninni Graham Taylor. Jóhann spilaði svo i Englandi, Noregi og í Svíþjóð áður en hann kom heim til að spila með Keflavík. Eftir ferilinn hefur Jói verið þjálfari Keflavíkur, yfirþjálfari Keflavíkur, afreksþjálfari hjá FH og er ný þjálfari ÍR í Lengjudeildinni.
    Við fórum breytt yfir sviðið.
    Við í Turnunum þökkum okkar traustu bakhjörlum í Nettó, Netgíró, Lengjunni, Fiskversluninni Hafið, Fitness Sport og Tékkanum Budvar ásamt Visitor ferðaskrifstofu. Það er nóg framundan. Gamlir íþróttamenn eru byrjaðir að bóka tíma hjá mér og fyrsti þáttur með bransasögum kemur út, fyrir mánaðarmót :)
    2 hr 28 min
  • #14 Haraldur Árni Hróðmarsson
    Gestur vikunnar er í einu áhugaverðasta starfi í íslenskum fótbolta. Halli þjálfar lið frá bæjarfélagi þar sem enginn býr, því miður.
    Við ræddum saman um fótboltaferilinn, 48 tíma reglu Bo Hendrikssen, hvernig það var að þjálfa með Heimi Guðjóns, Tuva og Jóni Þór ásamt því sem Haraldur spáir því að trúðurinn Trump verði næsti forseti Bandaríkjanna.
    Kvikmyndaunnendur landsins munu líka njóta þessa þáttar enda er Halli kvikmyndafræðingur eftir að hafa gert lokaverkefni um Jón Pál Sigmarsson !
    Við Turnarnir bjóðum Visitor velkomin í hópinn sem stuðningsaðilar. Þau bætast í hópinn við okkar hundtryggu aðdáendur í Nettó, Lengjunin, Netgíró, Hafinu fiskverslun, Fitness sport og Tékkanum Budvar!
    Turnarnir eru í útrás - fylgist með :)
    2 hr 20 min
  • #13 Kjartan Atli Kjartansson
    Gestur vikunnar er maður frásagna! Hann hefur unnið titla sem leikmaður og þjálfari í körfubolta, var öflugur targetsenter í neðri deildum í fótbolta ásamt því að hafa gert nánast allt í fjölmiðlum á Íslandi þó hann sé sé eingöngu fertugur. Það má heldur aldrei gleymast að Kjartan Atli er rappstjarna!
    Við Kjartan Atli ræddum allt milli himins og jarðar. Körfubolti, fótbolti, þjálfun, reglugerðir, áhrifavaldar og margt margt fleira bara á góma !
    Við þökkum Nettó, Lengjunni, Netgíró, Fitness Sport, Tékkanum Budvar og Hafinu Fiskverslun fyrir samstarfið - það er nóg framundan.
    Það Er Alltaf Von - Njótið!
    2 hr 42 min
  • #12 Árni Freyr Guðnason
    Gestur vikunnar er nýráðinn þjálfari Fylkis, Árni Freyr Guðnason.
    Árni er alinn upp í Hafnafirði. Hann spilaði upp yngri flokka FH en hans bestu ár sem leikmaður komu í Breiðholtinu sem leikmaður ÍR.
    Ásamt því að spila þá þjálfaði hann yngri flokka FH en hann hefur einnig þjálfað kvennalið FH og verið yfirþjálfari yngri flokka í Kaplakrika.
    Árni Freyr tók við ÍR þegar félagið var í vandræðum í 2.deildinni í Júní 2022 en skilur við liðið í 1.deild sem eitt af liðum ársins í Íslenskum fótbolta.
    Við Árni Freyr ræddum fótboltaþjálfun, golf, tónlist og dramatíkina vegna félagsskipta hans til Fylkis.
    Við þökkum Nettó, Lengjunni, Netgíró, Fitness Sport, Tékkanum Budvar og Hafinu Fiskverslun fyrir samstarfið og hlökkum til framhaldsins.
    Það Er Alltaf Von - Njótið!
    1 hr 54 min

About Tveggja Turna Tal

From the publisher's feed

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

More shows like Tveggja Turna Tal

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

10 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners