Tveggja Turna Tal

Tveggja Turna Tal

By Tveggja TurnatalSports
Download on the App Store

Tveggja Turna Tal episodes

  • #31 Davíð Snorri Jónasson
    Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari.
    Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri landslið ásamt því í að hafa þjálfað hjá Leikni og Stjörnunni.
    Við fórum yfir feril Davíðs Snorra, hvernig maður býr til liðsheild, byggir upp sjálfstraust, lið og margt fleira.
    Davíð Snorri hefur einstaklega þægilega nærveru og vonandi skilar það sér til ykkar.
    Þátturinn er í boði Visitor, Lengjunnar, Hafsins Fiskverslunar, World Class og að sjálfsögðu Tékkneska ríkisins í gegn Budvar.
    Njótið kæru vinir!
    2 hr 38 min
  • #30 Gunnar Magnússon
    Það er leikdagur á HM í handbolta og tilvalið að kynna einn okkar besta þjón landsliðsins síðustu ár til leiks.
    Gunnar Magnússon er Víkingur sem hefur verið aðstoðarþjálfari Alfreðs Gísla, Guðmundar Guðmunds og Arons Kristjánssonar hjá landsliðinu auk þess að vera tímabundinn landsliðsþjálfari um stuttan tíma.
    Gunnar gerði ÍBV fyrstur manna að Íslandsmeisturum í karlahandbolta og hefur leikið sama leik með Hauka. Í dag þjálfar hann Aftureldingu í Mosfellsbæ.
    Við fórum yfir víðan völl. Frá upphafsárunum í þjálfun í Víking, við komum við í Peking og hver veit nema að Gunnar eigi eftir að taka aftur við Víkingum!
    Við Turnarnir bendum á ferð Visitor til Króatíu á morgun, það eru til miðar. Kannski sjáumst við þar! Sökum ferðarinnar og slæmra meiðsla spyrils mun hann ekki sjást í World Class fyrr en um mánaðarmót, en ekki örvænta. Þá mætir hann tvisvar á dag.
    Við skiptum yfir í 0%Budvar og það hjálpar til við val leikja á Lengjunni.
    Í janúar borðum við fisk úr Hafinu fimm sinnum í viku, það hjálpar beinum að gróa. Ekki veitir af þessa dagana.
    Njótið handboltans, hér fáið þið góða innsýn í landsliðið og fleira.
    1 hr 57 min
  • #29 Þórarinn Ingi Valdimarsson
    Þórarinn Ingi Valdimarsson hitti mig í World Class Laugum og ræddi Vestmannaeyjar, Noreg og þurra Norðmenn, FH, Stjörnuna auk þess sem hann valdi lið af mönnum til að taka með sér á þjóðhátíð sem kemur á óvart!
    Visitor, Lengjan, Hafið Fiskverslun, World Class eru með okkur í liði ásamt auðvitað Budwaiser Budvar!
    Njótið vel!
    1 hr 17 min
  • #28 Brynjar Karl Sigurðsson
    Brynjar Karl Sigurðsson er fyrrverandi leikmaður, núverandi þjálfari, businesskall, brautryðjandi og óumdeilanlega umdeildur náungi úr Breiðholtinu.
    Brynjar Karl stofnaði Sideline Sports og í kjölfarið Key Habits og hefur selt hugbúnaðinn til ensku úrvaldsdeildarinnar, NBA og NFL ásamt því að vinna með bestu þjálfurum í heimi.
    Brynjar Karl er þó líklega þekktastur hjá almenningi á Íslandi fyrir að hafa kveikt í íslensku íþróttalífi sem þjálfari ungra stúlkna í Stjörnunni, ÍR og nú Aþenu.
    Við Turnarnir viljum eðli málsins samkvæmt þakka okkar stuðningsmönnum í Lengjunni, Hafinu fiskverslun, Visitor ferðaskrifstofu, World Class og Budvar!
    Njótið vel!
    3 hr 1 min
  • #27 Kristján Arason
    Fyrsti gestur ársins er úr efstu hillu.
    Kristján Arason er einn af markahæstu landsliðsmönnum í heimi, einn fárra sem hefur skorað meira en 1000 landsliðsmörk.
    Kristján lék handbolta með FH, var atvinnumaður í Þýskalandi og á Spáni og var á sínum tíma einn besti handboltamaður í heimi. Kristján var líka og er frábær þjálfari.
    Við fórum yfir víðan völl. Við ræddum Geir Hallsteins, Bogdan, Heine Brand, fórum yfir þjálfun, afreksmennsku, hvernig það væri að vera faðir afreksíþróttamanns og margt fleira.
    Við Turnarnir þökkum styrktaraðilunum okkar fyrir samstarfið. Nettó, Hafið fiskverslun, Lengjan, Budvar og Visitor eru okkar bakhjarlar.
    Það er janúar sem þýðir handbolti. Ekki láta ykkur koma það á óvart þó við fáum nokkrar kempur í stúdíóið á næstu dögum.
    Njótið !
    3 hr 1 min
  • #26 Kári Jónsson
    Síðasti gestur ársins er einn af bestu körfuboltamönnum landsins. Hann er alinn upp í Hafnarfirði. Afi hans er Faðir körfuboltans í Hafnarfirði, pabbi hans og föðurbróðir goðsagnir í Haukunum og Kári er þekktur fyrir að geta skorað hvaðan sem er af vellinum, hvenær sem er, hvar sem er!
    Við fórum yfir víðan völl og enduðum á því að ræða það sem skiptir máli - að vinna!
    Við Turnarnir þökkum Nettó, Hafinu Fiskverslun, Visitir, Netgíró, Lengjunni, Fitnessport og Budvar fyrir samstarfið á árinu og ykkur fyrir hlustunina. Við ætlum að bæta frekar í þegar á árinu. Ykkur er að sjálfsögðu boðið með.
    Góða skemmtun og njótið áramótanna.
    1 hr 30 min
  • #25 Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars
    Það þarf ekki að kynna Óla Jóh og Bjössa Hreiðars fyrir neinum áhugamanni um íþróttir eða bara skemmtun yfir höfuð.
    Þeir félagar mættu í miklu stuði í stúdíó og ræddu meðal annars áform um að koma inn í hlaðvarpsheiminn, hvernig Frú Guðný, eiginkona Óla, fékk tvíburana í FH, það skemmtilega við þjálfun, vinnu í sjónvarpi og margt fleira.
    Við Turnarnir þökkum Nettó, Hafinu Fiskverslun, Visitir, Netgíró, Lengjunni, Fitnessport og Budvar fyrir samstarfið á árinu og ykkur fyrir hlustunina. Við erum rétt að byrja og margt á döfinni.
    Góða skemmtun!
    2 hr 22 min
  • #24 Kári Ársælsson
    Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum!
    Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash talker" meðal fótboltamanna.
    Við ræddum þetta allt og miklu fleira þegar við fórum yfir feril Kára - sem er áhugaverður.
    Við Turnarnir þökkum ykkur fyrir hlustunina og Nettó, Netgíró, Budvar, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Visitor og Lengjunni fyrir samstarfið.
    Njótið jólanna, njótið þáttarins!
    2 hr 27 min
  • #23 Grétar Sigfinnur Sigurðarson
    Grétar Sigfinnur Sigurðarson er margfaldur Íslands og bikarmeistari í fótbolta. Vinir hans nefna hann þann vanmetna því hann er raðsigurvegari sem þó hefur ekki alltaf fengið það hrós sem hann á skilið.
    Hann þurfti að fara krókaleið til að komast í KR-liðið, upplifði mikla höfnum þar en endaði alltaf uppi sem sigurvegari.
    Við í Turnunum þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir samstarfið.
    Njótið vel!
    1 hr 44 min
  • #22 Helgi Jónas Guðfinnsson
    Helgi Jónas Guðfinnsson á um margt áhugaverðan feril. Hann varð Íslandsmeistari í körfubolta með Grindavík bæði sem leikmaður og þjálfari og varð svo í haust Íslandsmeistari í fótbolta sem lykilmaður í þjálfarateymi Breiðabliks.
    Hann var atvinnumaður í körfubolta, spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild í knattspyrnu 26 ára, hannaði Metabolic æfingakerfið og hefur skrifað bækur!
    Það er augljóst að Helgi Jónas er djúpur í þekkingu sinni á styrktarþjálfun, við ræddum þesskonar þjálfun og margt fleira.
    Við Turnarnir þökkum Nettó, Netgíró, Hafinu Fiskverslun, Fitness Sport, Budvar, Visitor og Lengjunni fyrir frábært samstarf á árinu. Ykkur kæru vinir fyrir hlustunina og skilaboðið.
    Áfram veginn.
    Njótið
    1 hr 10 min

About Tveggja Turna Tal

From the publisher's feed

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

More shows like Tveggja Turna Tal

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

10 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners