Tveggja Turna Tal

Tveggja Turna Tal

By Tveggja TurnatalSports
Download on the App Store

Tveggja Turna Tal episodes

  • #41 Danni&Joi Laxdal
    Gestir vikunnar eru þeir bræður Danni og Jói Laxdal. Við fórum yfir tónlistasmekkinn þeirra, fótboltaferilinn, þjálfarana og leikinn í Kaplakrika 2014 ásamt ýmsu fleiru.
    Toppmenn!
    1 hr 53 min
  • #40 Atli Gudna
    Atli Guðnason hóf meistaraflokksferil sinn með FH árið 2004 og varð sjöfaldur Íslandsmeistari
    og tvöfaldur bikarmeistari með liðinu. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild, með 285 leiki þar sem hann skoraði 68 mörk og gaf 84 stoðsendingar. ​
    Árið 2012 náði Atli þeim merka áfanga, sem enginn annar hefur gert, að verða bæði markakóngur og stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar. Atli var valinn leikmaður ársins 2009 og 2012.
    Við Atli ræddum ýmislegt. Golf, hvernig við höldum okkur svona ungum, áhuga Atla til að starfa við fótbolta í nánustu framtíð og svo veltum við Heimi Guðjóns og Böðvari Böðvarssyni aðeins fyrir okkur og margt fleira.
    Njótið vel!
    1 hr 15 min
  • #39 Ásgeir Jónsson
    Gestur vikunnar verður eftir nokkra daga varaformaður HSI. Ásgeir Jónsson er fyrrum formaður handknattleiksdeildar Gróttu/KR og FH, hvar hann vann frábært starf. Hann fékk ásamt góðum mönnum Alexander Petterson til Íslands seint á síðustu öld og ætlar að taka til hendinni hjá HSÍ. Við ræddum þetta allt og margt fleira!
    Njótið.
    1 hr 46 min
  • #38 Ólafur Þ. Harðarson
    Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks!
    Þátturinn er í boði Visitor Ferðaskrifstofu, Lengjunnar, Hafsins fiskverslun, Budvar, World Class og Golfklúbbsins Keilis !
    2 hr 57 min
  • #37 Hermann Hreiðarsson Part I
    Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildunum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn.
    Njótið vel!
    Styrktaraðilar þáttarinns eru:
    Visitor Ferðaskrifstofa
    Hafið Fiskverslun
    Budweiser Budvar
    World Class
    Lengjan
    1 hr 19 min
  • #36 Eiður Ben Eiríksson
    Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur.
    Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við ræddum þetta allt, fórum vítt yfir sviðið.
    Eiður er áhugaverður náungi. Hann segir frá því þegar Pétur Péturs skammaði hann eins og son sinn, hvenær hann vissi af Blikar yrðu meistarar, afhverju hann straujar nærbuxur og svo fórum við í þyngri málefni.
    Njótið vel.
    Þátturinn er í boði Visitor, Lengjunnar, Budvar, Hafið Fiskverslun og World Class :)
    3 hr 6 min
  • #35 Guðjón Pétur Lýðsson
    Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrirfinnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta.
    Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði.
    Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt margt fleira.
    Njótið Vel!
    Styrktaraðilar þáttarins eru vinir okkar frá :
    Visitor Ferðaskrifstofa: www.visitor.is
    Hafið Fiskverslun: www.hafid.is
    Lengjan: lengjan.is
    Budweiser Budvar
    World Class: Worldclass.is
    2 hr 40 min
  • #34 Finnur Orri Margeirsson
    Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til!
    Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi.
    Við fórum yfir ferilinn, ræddum Metoo, hann valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með í liðunum á Íslandi og síðast en ekki síst sagði ég honum sögur af tengdapabba hans!
    Við Turnarnir erum í boði Visitor ferðaskrifstofu, Lengjunnar, World Class, Hafsins Fiskverslun og Budweiser Budvar. Þökkum fyrir það og hvetjum okkar besta fólk til að beina viðskiptum þangað.
    Finnur Orri er einlægur, klár, skemmtilegur og á frábæran feril.
    Njótið vel!
    2 hr 31 min
  • #33 Hreiðar Haralds
    Næsti gestur er Hreiðar Haraldsson, íþróttasálfræðiráðgjafi.
    Hreiðar hjálpar íþróttamönnum og íþróttaliðum að styrkja andlega þáttinn til að bæta árangur með því að æfa og efla heilann, það merkilega líffæri.
    Við ræddum marga lykilþætti í íþróttum, meðal annars sjálfstraust, markmiðasetningu, einbeitingu og mikilvægi þess að vera sinn besti vinur.
    Samvinna foreldra og þjálfara á líf íþróttamannsins var til umræðu og hvers vegna það virðist ekki algengt að íþróttafélög nýti sér sérfræðiþjónustu þegar kemur að andlegum undirbúningi og hugarþjálfun.
    Við Turrnarnir þökkum Visitor ferðaskrifstofu, Eyjó í Hafinu fiskverslun, Lengjunni, World Class og að sjálfsögðu Tékkanum Budvar fyrir samstarfið og vonum að þú njótir hlustunarinnar!
    1 hr 51 min
  • #32 Ómar Ingi Guðmundsson
    Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins.
    Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet hjá félaginu í efstu deild. Ómar Ingi hefur líka þjálfað í Mosfellsbæ og í Hveragerði og hvar sem hann kemur getur hann sér góðs orðs enda eðaldrengur.
    Við Turnarnir viljum þakka Visitor, World Class, Hafinu fiskverslun, Lengjunni og að sjálfsögðu Budvari félaga okkar fyrir samstarfið.
    Við Ómar Ingi fórum vítt yfir sviðið. Afreksþjálfun, yfirþjálfun, ferillinn hans í HK, hvernig hann náði í stráka úr E-deild og gerði þá að alvöru leikmönnum og nöfn barnanna okkar!
    Og fleira, miklu fleira.
    Njótið vel!
    2 hr 39 min

About Tveggja Turna Tal

From the publisher's feed

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

More shows like Tveggja Turna Tal

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

10 Listeners

433.is by 433.is

433.is

6 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners