Spegillinn 11.11. 2022
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Útsendingarstjórn: Valgerður Þorsteinsdóttir
Verðbólguhorfur hafa versnað að dómi Hagstofu Íslands sem telur þó að verðbólgan hafi náð hámarki í sumar. Ferðaþjónustan er nærri því að hafa náð fyrri styrk og útlit fyrir að hækkunum linni á fasteignamarkaði. Hagvöxturinn verður að líkindum rúmlega sex próent í ár og tæp tvö prósent á því næsta. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi horfurnar í efnahagsmálum við Marinó Melsted, deildarstjóra rannsóknar- og spádeildar Hagstofunnar, sem sagði áhrif kórónuveirufaraldursins fjara að mestu leyti út á þessu ári.
Úkraínskar hersveitir héldu í dag inn í borgina Kherson í samnefndu héraði í suðurhluta landsins. Úkraínski fáninn var dreginn að húni í miðborginni. Rússar segjast hafa flutt allt herlið sitt austur fyrir ána Dnépr. Brynjólfur Þór Guðmundsson sagði frá.
Bæjarráð Akureyrarbæjar leggur til að vinabæjarsamstarfi við Múrmansk í Rússlandi verði slitið, ásamt aðild að samtökunum Northern Forum. Ástæðan er innrás Rússa í Úkraínu. Amanda Guðrún Bjarnadóttir tók saman og ræddi við Heimi Örn Árnason, bæjarráðsmann.
Svíar ná ekki markmiðum sínum í loftslagsmálum fram til 2030, að sögn fjármálaráðherra landsins. Fjöldi þingmanna, meðal annars þingmenn sem verja stjórnina falli, virðist ekki telja að mikið liggi við. Kári Gylfason fréttaritari í Gautaborg fjallaði um málið.
Hætt er við að dragi úr hvata til byggingar húsnæðis verði drög að nýju frumvarpi að lögum sem heimilar sveitarfélögum að krefjast þess að fjórðungur þess sem byggt er í formi íbúðarhúsnæði, verði á hagstæðu verði. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í viðtali við Kristínu Sigurðardóttur.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki hafa komist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP-27, vegna fundar Evrópuráðsins í síðustu viku. Athygli hefur vakið að loftslagsráðherra komst ekki heldur, - vegna fótbrots. Ráðstefnan stendur í tvær vikur og fer matvælaráðherra á ráðstefnuna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í seinni viku hennar. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við Katrínu.
Halldór Gunnar Ólafsson, oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, segir það hafa afhjúpað alvarlega veikleika öryggisinnviða sveitarfélagsins þegar það varð sambandslaust við umheiminn í sex klukkustundir við að ljósleiðari fór í sundur í vegaframkvæmdum í Refasveit. Hann kveðst feginn því að enginn slasaðist meðan ástandið varði. Finna þurfi tæknilegar lausnir til að koma í veg fyrir að svona lagað komi upp aftur.
Rúmleg