Spegillinn

Uppkaup húsa í Grindavík, mannshvarf í Dyflinni og kosningar í Indónesíu


Listen Later

Þórkatla skal það heita, eignaumsýslufélagið sem Grindvíkingum býðst að selja íbúðarhúsnæði sitt, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Drög að lögum um þetta voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Yfir 300 umsagnir bárust um drögin, nær undantekningarlaust frá Grindvíkingum, sem hafa ýmislegt við þau að athuga. Það á sérstaklega við um fimm atriði og athugasemdir við þau liggja sem rauður þráður í gegnum flestar umsagnirnar. Ævar Örn Jósepsson ræddi þessi atriði við Sigurð Orra Hafþórsson, lögmann Húseigendafélagsins.
Lögregla í Dyflinni greindi frá því gær að tvö nafnlaus bréf hefðu borist með nýjum ábendingum sem tengjast hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar í borginni fyrir fimm árum. Hún hefur girt af svæði í almenningsgarði í borginni, þar sem jarðneskra leifa Jóns var leitað í gær og leit heldur áfram á morgun. Anna Marsibil Clausen dagskrárgerðarkona hefur fylgst vel með þessu máli og vinnur að hlaðvarpsþáttaröð um það í samvinnu við kollega sinn hjá írska ríkisútvarpinu, Liam O'Brian. Ævar Örn ræddi við hana um þessar nýjustu vendingar.
Prabowo Subianto, varnarmálaráðherra Indónesíu og fyrrverandi hershöfðingi, er svo gott sem öruggur um að verða næsti forseti landsins. Endanleg niðurstaða verður ekki kynnt fyrr en í næsta mánuði, en svokölluð hraðtalning sýnir að hann hafi tryggt sér meirihluta atkvæða, - um það bil 57 prósent, - þannig að ekki þurfi að kjósa að nýju vegna tveggja efstu. Einnig var kosið til þings og borgar- og sveitarstjórna og þykja þetta með flóknari kosningum sem haldnar hafa verið enda landið bæði víðfeðmt og fjölmennt. Ásgeir Tómasson segir frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners