Spegillinn

Uppsögn forstjóra Festar, hrun sauðfjárræktar og uppruni apabólu


Listen Later

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Stjórn hluthafafélagsins Festar þröngvaði forstjóra fyrirækisins, Eggerti Þór Kristinssyni, til að segja upp eða hann yrði rekinn. Áður hafði stjórnin tilkynnt til Kauphallar að Eggert hefði sjálfur sagt upp.
Ekki eru forsendur fyrir áframhaldandi sauðfjárbúskap hér á landi, nema til komi meiri stuðningur og breyting á starfsumhverfi bænda. Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi segir að grípa þurfi til aðgerða strax. Anna Lilja Þorvaldsdóttir talaði við Trausta.
Manni sem sat ellefu mánuði í gæsluvarðhaldi á Ítalíu og Íslandi en fékk svo tveggja mánaða dóm fyrir peningaþvætti hafa verið dæmdar 19 milljónir í miskabætur. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Bragi Björnsson, lögmaður mannsins segir dóm Landsréttar marka tímamót.
Allar björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna slyss í Reynisfjöru, en talið er að einstaklingur hafi farið í sjóinn.
Vatnslaust varð á Seyðisfirði í dag þegar þrýstipípa Fjarðarárvirkjunar sprakk og reif í sundur vatnslögnina. Davíð Kristinsson, hótelstjóri á Öldunni segir þetta hafa gerst á erfiðum tíma, hótelið fullt og gisting annars staðar á Austurlandi vandfundin.
Landsréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Marek Moszczynski fyrir að hafa orðið valdur að eldsvoða á Bræðraborgarstíg í Reykjavík sumarið 2020.
Innlögnum á covid-göngudeild Landspítalans hefur fjölgað undanfarna daga. Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segir að það sé alltaf íþyngjandi fyrir spítalann. Urður Örlygsdóttir tók framan.
Niceair aflýsti í dag öllu fyrirhuguðu áætlunarflugi sínu milli Akureyrar og Bretlands í júní. Í morgun var flogið til Keflavíkur og farþegum útvegað flug þaðan til London. Mismikil ánægja var með þessa lausn. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við farþegana Heklu Rán Arnaldsdóttur, Elmar Freyr Arnaldsso og Heiðdísi Austfjörð Óladóttur.
-------------
Apabóla hefur lengi fundist í Vestur- og Mið-Afríku, í að minnsta kosti hálfa öld, veiran er flókin og harðgerð segir Vilhjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Tæknihalli verður þegar að tölvukerfi sem þjálfuð eru á raunverulegum málgögnum fara óumbeðin að endurspegla samfélagslegan ójöfnuð á borð við kynja- og kynþáttahalla óháð ásetningi þeirra sem búa kerfin til. Doktorsnemarnir Dagbjört Guðmundsdóttir og Lilja Börk Stefánsdóttir, ásamt Agnesi Sólmundsdóttur BA-nema og Antoni Karli Ing
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners