Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var einnig staðfest á þessum fundi. Björn Malmquist fréttamaður ræddi við Þorgerði Katrínu í Brussel í dag.
Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti í dag um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósent í 7,5. Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri segir að verðbólgan þurfi að hjaðna í sumar til að hægt verði að halda vaxtalækkunarferlinu áfram. Horfur í efnahagsmálum séu góðar en óvissa á alþjóðamörkuðum út af tollastríði gæti sett strik í reikninginn.
Menningarferðaþjónusta er nú í fyrsta sinn formlega skilgreind sem hluti af ferðamálastefnu stjórnvalda enda er menning talin afar mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu og ferðamenn sem hingað koma njóta íslenskrar menningar með ýmsum hætti um allt land.