Spegillinn 19. 4. 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Sóttvarnalæknir segist ekki vera með minnisblað um hertar aðgerðir á teikniborðinu, en hann sé ekki lengi að útbúa það ef smitum fjölgar enn frekar. Rætt við Þórólf Guðnason
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn sé tilbúinn að leggja fram frumvarp sem heimilar ráðherra að skylda fólk til að dvelja í sóttvarnahúsi þegar það kemur til landsins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir gremjulegt að ekki sé hægt að treysta fólki til að fara eftir reglum um sóttkví.
Búist er við að það taki ferðaþjónustuna hér á landi töluverðan tíma að ná aftur fyrri styrk að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sjóðurinn birti í dag nýja úttekt um stöðu og horfur í íslensku efnahagslífi.
Alþjóðasamfélagið og bóluefnaframleiðendur þurfa að spýta í lófana, segir sænska baráttukonan Greta Thunberg sem ætlar að gefa 15 milljónir króna til COVAX bóluefnasamstarfsins.
Í fyrsta sinn hefur vísindafólki tekist að koma tæki á flug á annarri plánetu. Þyrlan Ingenuity náði að taka á loft, fljúga og lenda aftur á Mars fyrr í dag.
Til greina kemur að reistir verði varnargarðar fyrir ofan Grindavík og við Svartsengi til að verja þessa staði fyrir hraunrennsli ef gýs á fleiri stöðum á Reykjanesskaga. Einnig er í athugun að gera tilraunir með að stýra hraunrennslinu í Meradölum. Allar vinnuvélar á suðvesturhorni landsins hafa verið skráðar til að hægt verði að nota þær í neyðartilfellum. Arnar Páll Hauksson, ræddir við Rögnvald Ólafsson, aðsotðaryfirlögregluþjón hjá Almannavörnum
Ónæmissvar við Sars-Cov tveir veirunnar hjá þeim sem hafa sýkst af henni hafði lítið dvínað ári eftir að fólkið veiktist. Þeir sem voru veikari voru með meira ónæmissvar og eldra fólk líka. Þetta kom fram á fræðslufundi Íslenskrar erfðagreiningar sem haldinn var í dag. Þar voru kynntar niðurstöður úr umfangsmiklum rannsóknum fyrirtækisins á kórónuveirunni meðal annars á raðgreiningu, vörnum líkamans gegn henni og afleiðingar fyrir heilsu þeirra sem smituðust. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar