Spegillinn

Viðbrögð við mögulegu gosi, þungunarrof og kosningar í Kólumbíu


Listen Later

Setja þarf uppbyggingu á innviðum í algeran forgang fari að gjósa nálægt Svartsengi. Þetta segir ráðherra almannavarna og telur að mögulega þurfi að ýta regluverki til hliðar. Þórdís Arnljótsdóttir sagði frá. Rætt var við Jón Gunnarsson og Katrínu Jakobsdóttur.
Fyrrverandi lögreglustjóri í Austin og Houston í Texas segir mörgum spurningum ósvarað um sein viðbrögð lögreglunnar þegar nítján börn og tveir kennarar voru skotin til bana í bænum Uvalde í ríkinu. Ásgeir Tómasson tók saman.
Sóttvarnarlæknir hefur kannað hvort mögulegt sé að fá bóluefnið Imvanex til að nota gegn apabólu hér á landi. Nú liggur fyrir að ísland fái aðkomu að sameiginlegum innkaupum Evrópusambandsins á bóluefninu. Rebekka Líf Ingadóttir sagði frá.
Svo virðist sem Norðlendingar hafi nýtt tímann í faraldrinum vel því fæðingum fjölgaði um tæp 26 prósent milli ára á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Forstjóri sjúkrahússins fagnar fjölguninni sem er sú næst mesta frá upphafi mælinga. Óðinn Svan Óðinsson ræddi við Hildigunni Svavarsdóttur.
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar, Volaða land var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes á miðvikudagskvöld. Í kvöld kemur í ljós hvort myndin fær verðlaun í flokknum Un Certain Regard. Sigurður Kaiser tók saman.
----------------------------------
Lögbundinn réttur kvenna til að velja hvort og hvenær þær ganga með börn á víða undir högg að sækja. 41% kvenna á frjósemisaldri í heiminum búa við lög sem takmarka aðgang þeirra að öruggu þungunarrofi. Fiona Bloomer er dósent í velferðarstefnu við Ulster-háskóla í Norður Írlandi og hefur einblínt á margvíslegar hliðar þungunarrofs í rannsóknum sínum. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana.
Líkur eru á að vinstrisinnaður stjórnmálamaður verði í fyrsta sinn kosinn forseti Kólumbíu á sunnudag, 29. maí. Gustavo Petro er 62 ára hagfræðingur og þingmaður á kólumbíska þinginu og fyrrverandi borgarstjóri í Bógota, höfuðborg landsins. Kristján Sigurjónsson sagði frá.
Yfir sjö þúsund manns hafa nýtt sér svokallað raunfærnimat til að fá færni og þekkingu sem það hefur öðlast í starfi, metna til náms. Hildur Betty Kristjánsdóttir er framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners