Spegillinn

Yfirlögregluþjónn til rannsóknar, eldur í Garðabæ, byggðalínan


Listen Later

Spegillinn föstudaginn 24. Mars 2023
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til skoðunar ásakanir á hendur yfirlögregluþjóni hjá embættinu um kynferðislega áreitni. Maðurinn hefur lengi starfað sem lögreglumaður, meðal annars í kynferðisbrotadeild. Litlar upplýsingar fengust um málið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en heimildir fréttastofu herma að kvartanir hafi borist eftir viðburð hjá starfsfólki lögreglunnar. Margrét Kristín Pálsdóttir, staðgengill Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra, segir í skriflegu svari til fréttastofu að embættið tjái sig ekki um málefni einstaka starfsmanna. Hins vegar sé málum af þessu tagi alltaf tekið alvarlega. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að nýbyggingu við Ásabraut í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Nokkrir iðnaðarmenn voru að störfum inni í byggingunni þegar eldur kom upp en þeir komust alllir út af sjálfsdáðum - og ómeiddir. Gaskútar voru á þaki hússins og vitað er til þess að að minnsta kosti tveir hafi sprungið. Guðmundur Guðjónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, var með fyrstu mönnum á vettvang. Hann segir að mikil hætta hafi verið á ferðum en slökkvistarf er nú á lokametrunum. Þórir Ingi Þorsteinsson býr í grennd við húsið og náði myndbandi af því þegar einn af gaskútunum sprakk. Þórdís Arnljótsdóttir ræddi við hann og Guðmund varðstjóra.
Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri hefur boðað hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, bæði landeigendur, lögreglu, almannavarnir og fleiri, til samráðs í næstu viku til að ræða öryggismál í kjölfar banaslyss við Glym í Hvalfirði í vikunni. Arnar Björnsson ræddi við hann.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, telur að um fimm milljarðar króna hafi tapast í þjóðhagslegu samhengi eftir skerðingu á raforku síðasta vetur vegna takmarkana á byggðalínu. Uppbyggingaráform séu þar af leiðandi gríðarlega mikilvæg. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við hann.
Aldrei hafa fleiri bækur orðið fyrir barðinu á ritskoðunartilburðum í Bandaríkjunum. Athyglin beinist einkum að barnabókum -- þar sem vegast á tjáningarfrelsi og ásakanir um pólitíska innrætingu.Alexander Kristjánsson tók saman.
Fresta hefur orðið fyrstu opinberu heimsókn Karls Bretakonungs og Kamillu drottningar til útlanda, það er Frakklands, um óákveðinn tíma. Slæmt ástand er í landinu vegna mótmælaaðgerða að undanförnu. Yfir milljón landsmanna andæfði því í gær að Frakklandsfo
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

460 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

23 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

8 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

23 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

74 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

3 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

23 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners