Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Framtíðarhorfur: Orbital, Friðsemd og Breiðþotur
    Framtíðin er þema þáttarins þessa vikuna. Hvað ber hún í skauti sér? Möguleikar hins ókomna tíma. Þeir eru óteljandi. Og spádómar um framtíðina fylla upp í eyður stóru frásagnarinnar um manninn – hvert stefnum við? Framtíðin, þetta snýst allt um hana - framtíðin er úr sama efni og nútíðin sagði franski heimspekingurinn Simone Weil. Framtíðin er ekki einhver sérstakur, óháður veruleiki að hennar mati. Hún er hrein framlenging á því sem skapað er í núinu. Já, til eru allskonar kenningar um framtíðina. Er heimurinn hringrás eða getur hann endað? Slíkar kenningar eru líka ótæmandi. Rithöfundar hafa ótal oft gert sér mat úr þessu, hvernig gæti þetta allt saman litið út?
    Við opnum nýjar bækur sem sem segja framtíðarsögur, sem spá í spilin og setja hið mögulega og hugsanlega á svið. Tvær skáldsögur komu út fyrir skemmstu hjá Benedikt útgáfu, fyrstu skáldsögur tveggja höfunda á svipuðu reki. Það eru bækurnar Friðsemd eftir Brynju Hjálmsdóttur og Breiðþotur eftir Tómas Ævar Ólafsson. Tvær ólíkar bækur sem báðar kíkja í kristalskúluna og spegla samfélagsins nú í þáinu. En við förum líka út í geim, horfum á jörðina utan frá - hvað sjáum við þegar plánetan blasir við í heild sinni? Við rýnum aðeins í skáldsöguna Orbital eftir Samönthu Harvey sem hlaut Booker-verðlaunin nýverið.
    Viðmælendur: Árni Matt, Brynja Hjálmsdóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
    Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir og Ari Páll Karlsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    50 min
  • Booker-verðlaun og heimsóknir erlendra höfunda (upprifjun)
    Í jólabókaösinni er að mörgu að huga í bókabransanum á Íslandi en þá þurfa dagskrárgerðarmenn líka að huga að hátíðardagskrá Rásar 1 yfir jólin. Á meðan sú vinnsla stendur yfir er þáttur vikunnar helgaður efni sem kann að hafa farið fram hjá hlustendum í byrjun hausts en við höldum svo áfram að tína upp úr flóðinu fljótlega.
    Við rifjum upp viðtöl við erlenda höfunda sem gerðu sér ferð hingað til lands, annars vegar Ia Genberg sem hingað sótti hinsegin bókmenntahátíðina Queer Situations og Salman Rushdie sem tók á móti alþjóðlegum bókmenntaverðlaunum Halldórs Laxness.
    Og örlítið af bókafréttum utan úr heimi. Enski rithöfundurinn Samantha Harvey hlaut í vikunni hin virtu Booker-verðlaun fyrir skáldsöguna Orbital, sem fjallar um sólarhring í lífi geimfara um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni. Þetta er næststysta skáldsagan sem hlotið hefur Bookerinn og sú fyrsta sem gerist í geimnum.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    50 min
  • Þegar við hættum að skilja heiminn, Berlínarbjarmar og Kul
    Í sinni fyrstu skáldsögu, Kul, fjallar Sunna Dís Másdóttir um Unu sem er á barmi kulnunar. Una er send vestur á firði í svartasta skammdeginu í nýstofnað meðferðarúrræði sem nefnist Kul. Þar dvelur hópur fólks í þorpi við sjávarsíðuna í leit að bata og jafnvægi í lífinu. Fyrir vestan fer fortíðin að sækja á Unu, minningar frá æskuárunum með mömmu og Magga bróður. Við heimsækjum Sunnu Dís Másdóttur á skrifstofuna og fáum að heyra um hugmyndir bókarinnar.
    Við þysjum svo inn í smæstu agnir sem vitað er um og finnum svör við eðli alheims sem eru svo stór að okkur fallast hendur og við hættum hreinlega að skilja. Þegar við hættum að skilja heiminn eftir Benjamin Labatut var að koma út í íslenskri þýðingu Sigrúnar Ástríðar Eiríksdóttur sem segir okkur frá.
    Valur Gunnarsson segir okkur frá Berlín, borg sem hefur séð tímana tvenna. Framtíðin tilheyrir Berlín, sem er í sífelldri endurnýjun og sífelldu niðurrifi. En við erum líklega of sein fyrir Berlín, eins og allir aðrir. Valur var að gefa út bókina Berlínarbjarmar, langan doðrant um þessa margslungnu og klofnu borg.
    Viðmælendur: Sigrún Á. Eiríksdóttir, Sunna Dís Másdóttir og Valur Gunnarsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    55 min
  • Múffa, Ógeðslegir hlutir, Bara Edda og meira um Norðurlandaverðlaunin
    Jónas Reynir Gunnarsson býður í kaffi og segir frá fimmtu skáldsögunni sinni, Múffu, fagurbleikri 130 síðna sögu um nútímafjölskyldu, um tengslarof, eftirsjá og afstöðu til lífsins. Falleg og heimspekileg saga um fólk sem týnist í tómarúminu og reynir að þræða sig til baka.
    Tvær nýjar ljóðabækur voru að koma út undir merkjum nýs bókaforlags sem heitir Pirrandi útgáfa. Það eru Bara Edda eftir Daníel Daníelsson og Ógeðslegir hlutir eftir Sunnevu Kristínu Sigurðardóttur, skáldin hitta okkur í Skáldu bókabúð og segja frá útgáfunni og bókunum sínum.
    Og við fjöllum aðeins meira um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, sem búið er að afhenda formlega. Árni Matthíasson menningarblaðamaður fer yfir stöðuna og rýnir í þræðina sem liggja á milli nokkurra tilnefndra bóka.
    Viðmælendur: Árni Matthíasson, Sunneva Kristín Sigurðardóttir, Daníel Daníelsson og Jónas Reynir Gunnarsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    52 min
  • Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Ursula Andkjær Olsen í Mengi og Mikilvægt rusl
    Niels Fredrik Dahl frá Noregi sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókina Fars rygg. Föðurhryggurinn. Árni Matthíasson segir stuttlega frá bók og höfundi og einnig er minnst á sigurvegara í barna- og unglingabókaflokki, Jakob Martin Strid frá Danmörku fyrir bókina Den fanstaskiske bus, Rútuna ótrúlegu.
    Danska ljóðskáldið Ursula Andkjær Olsen sótti Ísland heim á dögunum. Mit Smykkeskrin eða Skartgripaskrínið mitt var að koma út í íslenskri þýðingu Brynju Hjálmsdóttur. Fyrir hana var Olsen tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021. Við lítum við í Mengi og heyrum upplestur og spjall um skartgripaskrínið.
    Mikilvægt rusl er fimmta skáldsagan sem Halldór Armand Ásgeirsson gefur út og hjá sinni sjálfsútgáfu, Flatkökunni. Sagan hefst örlagadaginn 6. október 2008 þegar Geir H. Haarde forsætisráðherra þáverandi flutti sjónvarpsávarpið fræga þar sem hann bað guð um að blessa land og þjóð. Þennan sama dag finnur öskukallinn og aðalsöguhetja bókarinnar Gómur Barðdal, afskorið nef í ruslatunnu við glæsihýsi í Þingholtunum. Við hittum Halldór Armand í Góða hirðinum og ræðum við hann um hugmyndirnar í bókinni.
    Viðmælendur: Ursula Andkjær Olsen og Halldór Armand Ásgeirsson.
    Tónlist: Man in me - Bob Dylan, Nose - Íkorni, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    52 min
  • Tómasarverðlaunin, Þúfa og Þín eru sárin, Bréf til Láru 100 ára
    Margrét Lóa Jónsdóttir hlýtur Bók­mennta­verðlaun Tóm­as­ar Guðmunds­son­ar í ár fyr­ir hand­ritið Pólstjarnan fylgir okkur heim. Margrét Lóa er Reykvíkingur, fædd 1967 og enginn nýgræðingur í ljóðaútgáfu landsins, hún gaf út sína fyrstu ljóðabók Glerúlfa árið 1985 og síðan þá hefur hún gefið út 11 ljóðabækur. Við ræðum við verðlaunaskáldið um nýju bókina, innblástur og ljóðalestur.
    Heil öld er frá útgáfu Bréfs til Láru eftir Þórberg Þórðarson, bók sem hristi svo hressilega upp í íslenskum bókmenntum að við erum enn að horfa á ofanfallið. Forlagið var að endurútgefa þessa áhrifamiklu bók Þórbergs og það er Soffía Auður Birgisdóttir sem skrifar inngang og skýringar við hitt og þetta sem Þórbergur minnist á eða vísar í.
    Við heyrum af nýrri bókaútgáfu, Þúfunni sem stofnað var af vinkonunum Þórdísi Þúfu Björnsdóttur, Mörtu Guðrúnu Jóhannesdóttur, Kristínu Björk Kristjánsdóttur og Elín öglu Briem. Fyrsta bókin sem Þúfan sendir frá sér er Þín eru sárin eftir Þórdísi Þúfu, einlæg og ögrandi saga byggð á erfiðri reynslu Þórdísar, sem setur hana saman í skáldævisögulega frásögn og sér speglun í atburðum fortíðar. Þórdís Þúfa og Kristín Björk koma í heimsókn segja frá bókinni og Þúfunni.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Rainfall - Caoilfhionn Rose, Changing Winds - Alexandra Stréliski, Draumalandið - Einar Scheving.
    Viðmælendur: Margrét Lóa Jónsdóttir, Þórdís Þúfa Björnsdóttir, Kristín Björk Kristjánsdóttir og Soffía Auður Birgisdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Han Kang fær Nóbelsverðlaun, Spegillinn í speglinum og Jarðljós
    Fjallað um nýjan handhafa Nóbelsverðlaunanna í bókmenntum, Han Kang. Við heyrum hvað Ingunn Snædal þýðandi Grænmetisætunnar eftir Kang og Brynja Hjálmsdóttir sem er ástríðufullur aðdáandi verka hennar hafa að segja um nýja nóbelsskáldið.
    Við flettum einnig í nýrri þýðingu á bók eftir þýska rithöfundinn Michael Ende, höfund barnabókastórvirkjanna Sögunnar endalausu og Mómó. Bókin heitir Der Spiegel im Spiegel á frummálinu eða Spegillinn í speglinum í þýðingu Sólveigar Thoroddsen, sem þekkir vel til verka Ende og alin upp við barnabækur hans. Sólveig segir betur frá þessari draumkenndu bók sem höfundurinn sjálfur kallaði „Söguna endalausu fyrir fullorðna“.
    Og Gerður Kristný kemur í heimsókn í lok þáttar og segir frá sinni tíundu ljóðabók sem var að koma út - Jarðljós.
    Viðmælendur: Sólveig Thoroddsen, Ingunn Snædal, Brynja Hjálmsdóttir, Gerður Kristný.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    54 min
  • National Book Award, Hlaupavargur og Ég er það sem ég sef
    Hlaupavargur eftir einn stærsta samtímahöfund svía, Kerstin Ekmann, kom út í svíþjóð 2022 og hlaut fyrir tilnefningu til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, sem nú styttist óðfluga í að verði veitt. Ekman sem er komin á tíræðisaldur kom mörgum á óvart með bókinni, hún hafði ekki gefið út skáldsögu í rúman áratug. Hlaupavargur er athyglisverð saga um samband manns við tímann og umhverfi sitt, annað fólk og sjálfan sig. Við ræðum við Skúla Thoroddsen þýðanda í þættinum og heyrum brot úr bókinni.
    Ljóðakollektívan Svikaskáld var að gefa út nýtt ljóðverk, Ég er það sem ég sef. Það er fjórða ljóðbók hópsins á sjö árum sem hefur líka gefið út skáldsöguna Olíu 2021. Við förum á fund svið Svikaskáld í Gröndalshúsi í lok þáttar og ræðum um samvinnuljóðagerð, endurnýjun og listina að láta sér leiðast.
    En við byrjum í Bandaríkjunum og rennum yfir nokkrar áhugaverðar bækur á stuttlista National book awards.
    Viðmælendur: Skúli Thoroddsen, Svikaskáld #3 og Svikaskáld #4
    Lesari: Þorgeir Ólafsson
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    52 min
  • Glæpafár á Íslandi, Óljós og Tídægra
    Hér á landi hefur geisað glæpafár í bókmenntum í aldarfjórðung eða svo. Hið íslenska glæpafélag fagnar 25 ára afmæli á árinu, félag sem stofnað var þegar glæpasagnabylgjan var að hefjast skömmu fyrir aldamótin, eitthvað sem þykir sjálfsagður hluti af jólabókaflóðinu í dag. Hvernig var landslagið fyrir þessa bylgju, hvað olli henni og hvað kemur næst? Ævar Örn Jósepsson formaður íslenska glæpafélagsins fer yfir stöðuna.
    Geir Sigurðsson heimspekingur og prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands var að gefa út sína fyrstu skáldsögu sem kallast Óljós. Hún segir frá Leifi, háskólaprófessor á leið á eftirlaun sem ætlar að fara til Kína, en sú ákvörðun kemur flatt upp á börn hans tvö. Þetta er einum þræði ferðasaga en inn í frásögnina er fléttað minningum af konu Leifs, Petru, sem fallin er frá sökum veikinda, auk heimspekilegra samræðna við samferðarfólk um tilgang og sannleika. Það leynast ýmis leyndarmál þegar litið er yfir ævi Leifs og óljósar minningar af hversdagslegum en afdrifaríkum atvikum fljóta upp á yfirborðið. Geir segir betur frá í þættinum.
    Sjónvarpsþáttaröð birtist á Netflix í sumar sem byggð er á Tídægru eftir ítalska endurreisnarskáldið Giovanni Boccaccio frá 14. öld. Tídægra gerist á Ítalíu á tímum svarta dauða, plágunnar sem stráfelldi stóran hluta Evrópubúa á 14. öld. Ungt, ríkt og ættsterkt hefðafólk flýr skelfilega plágu, einangra sig á sveitasetri til þess að sukka og segja sögur. En hvers vegna er Tídægra að dúkka upp í Hollywood núna og af hverju er þetta merkilegt bókmenntaverk?
    Viðmælendur: Geir Sigurðsson og Ævar Örn Jósepsson
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    53 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners