Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Siddharta, Drottningarnar í garðinum og Hrein
    Við verðum á heimshornaflakki þættinum í dag, við förum í leiðsögn þýsk-svissneska nóbelshöfundarins Hermann Hesse til Indlands og Nepal á tímum Búddha í skáldsögunni frægu Siddharta. Áratugir eru liðnir frá því að sagan var þýdd af Haraldi Ólafssyni en hún er nú fyrst að líta dagsljósið á prenti. Ræðum við Harald í þættinum.
    Svo höldum við til Suður-Ameríku, til nágrannaríkjanna Argentínu og Síle. Tvær nýlegar skáldsögur þaðan komu út í íslenskum þýðingum hjá Benedikt bókaútgáfu, Hrein eftir Aliu Trabacco Zerán og Drottningarnar í garðinum eftir Caliu Sosa Villada. Við fáum til okkar Hólmfríði Garðarsdóttur prófessor í spænsku og bókmenntum og menningu rómönsku-ameríku og ræðum við hana um báðar þessar bækur.
    Lesarar: Haraldur Ólafsson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Anna Marsibil Clausen.
    Viðmælendur: Hólmfríður Garðarsdóttir og Haraldur Ólafsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min

  • Franz Kafka
    Franz Kafka hefur verið bókmenntaáhugafólki víða um heim ráðgáta í rúma öld. Ef horft er yfir bókmenntasögu tuttugustu aldar er nafn hans meira en lítið áberandi og þótt Kafka hafi dáið ungur, aðeins fertugur að aldri árið 1924 og gaf lítið út í lifanda lífi þá skildi hann eftir sig heilu bunkana af óútgefnum textum sem, eins og frægt varð snemma eftir dauða hans, hann bað um að yrði eldsmatur. Hið þveröfuga gerðist og nær hvert blaðsnifsi sem Kafka stakk niður penna á hefur verið útgefið, rýnt í og túlkað. Kafka er fyrir vikið býsna afhjúpaður höfundur, hvers dagbækur og bréf eru fyrir allra augum en á sama tíma er hann lokaður og leyndardómsfullur höfundarverk hans er brotakennt. Þegar Kafka dó 3. júní 1924 var hann síður en svo heimsfrægur rithöfundur og alls ekki á þeim stalli sem hann er á í dag, 100 árum síðar. Það hefur verið deilt um það, meira að segja í réttarsal, hver á höfundarverk Kafka og handrit hans. Hverjum ef einhverjum tilheyrir Franz Kafka?
    Tónlist þáttarins var eftir tékkneska tónskáldið Leoš Janáček, lesari var Guðni Tómasson og Ástráður Eysteinsson og Arnór Ingi Hjartarson voru viðmælendur.
    52 min

  • Joanna Rubin Dranger, Sonurinn og Í landi sársaukans
    Sonurinn heitir nýútkomin þýðing frá Uglu úgáfu. Þetta er stutt en áhrifamikil skáldævisaga eftir franska tónlistarstjórann og rithöfundinn Michel Rostain sem fjallar um eitt hræðilegasta áfall sem hugsast getur fyrir foreldri, að missa barn. Bókin hreppti hin virtu Goncourt-verðlaun árið 2011 og varð metsölubók í Frakklandi auk þess sem hún hefur verið þýdd á ýmis tungumál. Við ræðum við þýðanda verksins, Friðrik Rafnsson.
    Alphonse Daudet var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld þótt. Í landi sársaukans er afar sérstök bók, einskonar dagbókaskrif höfundar sem gefin var út að honum látnum. Þar hugleiðir Daudet dauðann og áralanga baráttu við banvænan sjúkdóm en um leið lífið sjálft. Færslurnar voru hugsanlega aðeins efniviður í meira unninn skáldskap en stendur eftir sem áður sem merkileg samtímaheimild og hugleiðingar um tilveruna.
    Joanna Rubin Dranger frá Svíþjóð hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir myndaskáldsöguna Ihågkom oss till liv. Dranger var stödd hér á landi í byrjun maí og var haldinn viðburður í Norræna húsinu þar sem Tinna Ásgeirsdóttir tók við hana viðtal. Við heyrum glefsur úr því viðtali í þættinum.
    Viðmælendur: Friðrik Rafnsson og Joanna Rubin Dranger.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    50 min
  • Bókasóun og faldar perlur nytjamarkaða, Alice Munro og Eyja
    Í þættinum verður grúskað í bókum í Góða hirðinum og fjallað um bókasóun og faldar perlur sem leynast stundum í hillum nytjamarkaða. Fríða Þorkelsdóttir bókmenntafræðingur og safnari segir frá forvitnilegum fundi þegar hún keypti ljóðabók í hirðinum á klink sem hefði undir venjulegum kringumstæðum átt að kosta tugi þúsunda.
    Við minnumst kanadíska nóbelshöfundarins og drottningar smásögunnar Alice Munro sem lést fyrir skemmstu. Þá rifjum við upp erlent viðtal við Munro sem Jórunn Sigurðardóttir þýddi í þættinum Orð um bækur árið 2014.
    Og ný rödd Forlagsins, Ragnhildur Þrastardóttir, segir okkur frá nýútkominni nóvellu sem kallast Eyja.
    Viðmælendur: Fríða Þorkelsdóttir og Ragnhildur Þrastardóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Maístjarnan og Öld Gensins
    Gyrðir Elíasson hlaut í vikunni ljóðabókabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir ljóðabókatvennuna Meðan glerið sefur og Dulstirni. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin árlega fyrir útgefna ljóðabók. Verðlaunin, Þau var afhent í áttunda sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni og við ræðum stuttlega við verðlaunahafann.
    Er brátt kominn tími til að kveðja genið? Það er stór spurning sem hvílir yfir í síðari hluta þessa þáttar. Öld gensins eftir Evelyn Fox Keller kom út í íslenskri þýðingu Kristjáns G. Arngrímssonar í Lærdómsritröð hins íslenska bókmenntafélags síðasta haust. Keller var einn fremsti vísindasagnfræðingur, heimspekingur og hugsuður samtímans sem nálgaðist vísindin af sterkri réttlætiskennd og heiðarleika. Skúli Skúlason líffræðingur og prófessor við háskólann á hólum skrifar inngang að bókinni og kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur betur frá erfðavísindum á tímamótum.
    Viðmælendur: Gyrðir Elíasson og Skúli Skúlason.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    50 min
  • Paul Auster, upplestur og Ég elska þig meira en salt
    Rætt verður við Torfa Tulinius bókmenntafræðing og prófessor í íslenskum miðaldafræðum um bandaríska rithöfundinn Paul Auster og heyrum brot úr þætti sem Torfi gerði um Auster árið 1996.
    Rithöfundurinn Sjöfn Asare kemur í heimsókn og segir frá nýjustu hljóðbók sinni, Ég elska þig meira en salt, sálfræðitrylli úr íslenskum veruleika.
    Og erum við öll að lesa vitlaust? Fjallað verður um grein í tímaritinu The Atlantic um lestur og kosti þess að lesa upphátt.
    Viðmælendur: Torfi H. Tulinius og Sjöfn Asare.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Bókaþjófar og ófáanleg Hringadróttinssaga
    Við hugum að stolnum bókum, glötuðum, gleymdum og illfáanlegum í þætti dagsins. Ritmálið hefur verið menningarmiðja öldum saman, en allt er þetta viðkvæmt og það þarf að treysta á að handrit og bækur og það sem í þeim stendur geymist. Bækur brenna við 451 fahrenheit, svo mikið er víst. Svo eru það bókaþjófarnir. Við veltum fyrir okkur tilgangi þess að stela bók, hvort sem það er vegna gróða eða söfnunaráráttu.
    Við rifjum líka upp innslag um illfáanlega bókaröð. Í ár eru 70 ár frá fyrstu útgáfu háfantasíubóka J.R.R Tolkiens, The Lord of the Rings, Hringadróttinssögu en fyrsta bindið Fellowship of the ring, kom út sumarið 1954. Íslensku þýðingarnar eftir Þorstein Thorarensen komu út á 10. áratugnum en hafa verið nær ófáanlegar síðan, hvers vegna?
    Viðmælendur: Dagný Hulda Erlendsdóttir, Guðvarður Már Gunnlaugsson, Friðgeir Einarsson, Björn Thorarenssen, Gunnar Theodór Eggertsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min
  • Lykt af gömlum bókum, Claire Keegan og rauðar heimsbókmenntir
    Ilmhúsið Fischersund og myndlistarmaðurinn Jón Albert báru saman bækur sínar á Hönnunarmars í nýju verkefni. Þar veltir Jón fyrir sér bókunum sem hlut, bókum sem minningum og í samstarfi hans við Fischersund fanga þau lykt af gömlum bókum.
    Við flettum líka í nýrri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur á Fóstri eftir írska rithöfundinn Claire Keegan. Og í lokin fáum við Benedikt Hjartarson í heimsókn til okkar. Hann hefur verið að velta fyrir sér Rauðum heimsbókmenntum síðustu misseri og segir frá þeim og gróskumikilli útgáfu þýðinga á millistríðsárunum á Íslandi.
    Viðmælendur: Benedikt Hjartarson, Helga Soffía Einarsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir, Jón Albert Guðrúnar-Carlosson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners