Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Saga af svartri geit og Marie Aubert
    Norski rithöfundurinn Marie Aubert verður gestur þáttarins í dag. Bækur Marie Augbert hafa notið mikillar velgengni, hlotið lof gagnrýnenda og verið þýddar um víða veröld. Sögur hennar spretta úr hversdagslegum veruleika og lýsa þær afskaplega vel flóknum fjölskyldusamböndum og tilfinningalegum glundroða tilveru samtímans. Aubert lítur á sig sem smásagnahöfund, hún kann vel við styttri frásagnir þar sem mannleg samskipti er í forgangi og flæða skrif hennar gjarnan út frá samtalinu. Nóvellan Fullorðið fólk var þýdd af Kari Ósk Grétudóttur og kom út hjá Benedikt bókaútgáfu 2023.
    Við förum svo til Indlands og flettum í skáldsögunni Saga af svartri geit eftir Perumal Murugan. Aðalsögupersóna er geit eins og titillinn gefur til kynna og vinnur Murugan með ævintýra minnið og táknsöguna. Bókin hefst þegar nýborin agnarsmá geit kemst óvænt í hendur fátæks, aldraðs bónda sem ásamt konu sinni fórnar öllu til að koma huðnukiðinu á legg. Það reynist erfitt í hörðum heimi þar sem fátækt, kúgun og uppskerubrestur eru veruleiki manna og dýra. Þetta er bók um geit en líka um samfélag manna, stéttaátök, kærleika og kraftaverk. Perumal Murugan er fyrsti tamílski rithöfundurinn sem gefinn er út á íslensku. Hann hefur hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín en einnig valdið fjaðrafoki í heimalandi.
    Viðmælendur: Marie Aubert, Giti Chandra og Maríanna Clara Lúthersdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Mannát í menningunni
    Undanfarin misseri hefur þó nokkuð borið mannáti sem viðfangsefni í skáldskap og menningarefni. Í jólabókaflóðinu hér á landi 2023 voru t.a.m. fjórar bækur sem fjölluðu um mannát, þessa helstu og hrikalegustu bannhelgi mannsins sem hefur fylgt okkur öldum og árþúsundum saman. Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hvers vegna sögur af mannáti rata reglulega inn í menninguna, á ólíkum tímum. Tekið skal fram að í þessum þætti verður fjallað um mannát og ofbeldi og birtingarmyndir þess í menningarefni, aðallega bókmenntum. Rétt er að vara viðkvæma við að hlusta.
    Viðmælendur: Áslaug Áslaug Ólafsdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Magnús Jochum Pálsson, Guðrún Steinþórsdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min
  • Dewey-flokkunarkerfið og Gegnumtrekkur
    Vorið segist vera komið og páskabókasprænan er hafin eins og einn viðmælenda minna komst að orði. Einar Lövdahl var að gefa út sína fyrstu skáldsögu, Gegnumtrekk, að vori. Samanborið við jólabókaflóðið sem telur tugi bóka er páskabókasprænan ögn viðráðanlegri. Við ætlum að ræða við hann um ýmislegt, unga fólkið, angist, hversdagsleikann og leitina að beinu brautinni. Einar hellir upp á könnuna fyrir okkur í lok þáttar.
    Aprílgabbið kemur við sögu í þættinum, það kemur aftan að sumum sem trúa og hlaupa apríl. Eitt mest áberandi aprílgabb sem ég sá í ár kom frá bókasafni Kópavogs sem plataði eflaust marga bæði upp úr sokkum og skóm þegar tilkynnt var að safnið hefði ákveðið að afnema hið rótgróna Dewey-flokkunarkerfi og innleiða í staðinn litakerfi. Sagt var að rannsóknir sýndu að fólk myndi eftir lit bókakápu betur en nokkru öðru og því væru bláar bækur komnar saman í hillu, rauðar í aðra, gular í enn aðra og svo framvegis. Nú væri hafin ný öld í flokkun bókasafnsbóka. En hvað er þetta Dewey-kerfi? Við leitum svara á Landsbókasafninu og ræðum við Kristínu Lilju Thorlacius Björnsdóttur, gæðastjóra Gegnis.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Hrím, Mandla og Ilya Kaminsky
    Ilya Kaminsky er eitt allra athyglisverðasta ljóðskáld samtímans. Hann er fæddur árið 1977 í Odessa sem var þá hluti af Sovétríkjunum en tilheyrir nú Úkraínu. Skömmu eftir fall Sovétríkjanna fluttist Kaminsky ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna, þar sem þau fengu pólitískt hæli. Hann kynntist ljóðlistinni ungur og fór að skrifa ljóð á rússnesku en fyrstu ljóðabókina, Musica Humana frá 2001 skrifaði Kaminsky á ensku. Verðlaunabókin Dansað í Ódessa kom svo út örfáum árum síðar. Sú bók var síðasta verkið sem Sigurður Pálsson vann að en náði ekki að ljúka við að þýða áður en hann lést og Sölvi Björn Sigurðsson lauk við. Ilya Kaminsky var meðal stofnenda samtakanna Skáld í þágu friðar, sem hefur beitt sér fyrir ljóðalestri og útgáfu víða um heim til stuðnings hjálparsamtökum á borð við Lækna án landamæra. Hann hefur fengist við ljóðaþýðingar í samstarfi við aðra, ritsýrt ljóðasöfnum og tímaritum og verið ötull talsmaður ljóðlistarinnar. Nýjasta ljóðabók hans, Heyrnarlaust lýðveldi, kom nýverið út í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Ljóðin í henni eru afar nýstárleg og áhrifamikil þótt viðfangsefnið sé sígilt, stríðsátök og tilvist mannsins. Bókin fjallar á einstakan hátt um ást og umhyggju andspænis hatrömmum átökum og hörmulegar afleiðingar þeirra. Rætt verður við Ilya Kaminsky í þætti dagsins.
    Það hefur orðið rof, einhverntíma fyrir löngu, gerðist það að rofnaði milli manns og náttúru. Maðurinn hefur sigrast á áskorunum náttúrunnar, yfirbugað hana og flokkað í kerfi. Við erum sjálf dýr, þau eru ekki bara hús- eða gæludýr. Þetta á það til að gleymast. Tvær bækur eftir sama höfund sem komu út með stuttu milli bili, sitt hvorumegin við áramót, kljást við manninn í náttúrunni og andspænis henni; skáldsagan Hrím og nóvellan Mandla eftir Hildi Knútsdóttur. Við förum í heimsókn til Hildar í dag og ræðum við hana um furðusögur og hrollvekjur, að lifa af í harðneskjulegri náttúru, hjátrú, dauða og goðsögur.
    Viðmælendur: Hildur Knútsdóttir og Ilya Kaminsky.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Dúnstúlkan í þokunni og Sjálfstætt fólk í nýrri þýðingu
    Í dag gerum við eins og á vídjóleigunum í gamla daga, tökum eina nýja og eina gamla. Tvær skáldsögur sem báðar fjalla um fólk á fyrri öldum, um og eftir aldamótin 1900, og ekki á ósvipuðum slóðum.
    Skáldsagan Dúnstúlkan í þokunni eftir Bjarna M. Bjarnason kom út fyrir jólin og var hún tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar fer Bjarni með okkur í ferðalag í tíma og rúmi, austur á Langanes á 19. öld og fram yfir aldamót en þar segir frá draumförum Jóhannesar Jónssonar, Drauma-Jóa, sem uppi var í raun og veru og sagður búa yfir mikilli fjarskyggnigáfu. Bjarni kemur og heimsækir okkur í síðari hluta þáttar og segir frá þessum einstaka manni og örlögum hans.
    Svo verður eitt stykki Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness hér á borðum. Hún er skrifuð um það leyti sem útrás Halldórs var að hefjast og þýðingar á skáldsögum hans fóru að birtast hér og þar. Dönsk þýðing á Sjálfstæðu fólki var gefin út um ári eftir að hún kom út hér og var hún eftir fræðimanninn og jafnaldra Halldórs Jakob Benediktsson. Nú hefur bókaforlag í Árósum þýtt verkið upp á nýtt á dönsku, þýðandinn Nanna Kalkar var hér á landi og við hittum hana og spyrjum hvað það þýði fyrir bækur að vera endurþýddar og hvernig Sjálfstætt fólk ber sig í dag en 90 ár eru í ár frá fyrstu útgáfu hennar.
    Viðmælendur: Bjarni M. Bjarnason og Nanna Kalkar.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Lesóð Z-kynslóð II og Lydia Davis
    Bókin er dauð eða á grafarbakkanum. Þetta hefur heyrst á torgum í nokkurn tíma. Það er einhver þörf fyrir að lýsa yfir dauða hlutanna, kannski einmitt með því haldast þeir á lífi. Fyrir fáeinum vikum var fjallað hér um að bókin væri sprelllifandi, að með tilkomu samfélagsmiðla og áhrifavalda hefði áhugi ungs fólks sérstaklega á lestri og bókmenntum snaraukist og bóksala væri í hæstu hæðum. Er það tilfellið og á það sama við hér heima? Eru samfélagsmiðlar bandamenn bókmenntaumræðu eða bara armur markaðsafla? Hversu djúpt ristir þessi áhugi? Það er komið að öðrum kafla í rannsókn á bókaóðri Z-kynslóð - við rýnum í kilina, þessa sem eru að trenda á samfélagsmiðlum, og veltum fyrir okkur stöðunni hér á Íslandi.
    Mér líður ágætlega en gæti liðið betur er nafnið á smásagnaúrvali eftir bandaríska rithöfundinn Lydia Davis sem kom út í íslenskri þýðingu nú fyrir jólin. Það er í fyrsta sinn sem Davis er þýdd á íslensku en hún er einhver mest spennandi og frumlegasti samtímahöfundur Bandaríkjanna. Hún skrifar hnyttnar ör- og smásögur en þrátt fyrir smæð eru viðfangsefnin stór og margar þeirra átakanlegar og heimspekilegar. Við förum í heimsókn til Berglindar Ernu Tryggvadóttur sem valdi og þýddi sögur þessa merkilega höfundar.
    Viðmælendur: Berglind Erna Tryggvadóttir, Heiðar Ingi Svansson, Jón Heiðar Gunnarsson og Embla Rún Hall.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    55 min
  • Ritskoðun á Hugo-verðlaunum, Sven Nordqvist og Kōbō Abe
    Við byrjum á að segja frá vandræðagangi í heimi furðusagna og vísindaskáldskapar. Hugo-verðlaunin eru stærstu og virtustu verðlaun heims á því sviði bókmenntanna og hafa verið veitt árlega áratugum saman. Nú liggur fyrir að einhverjum höfundum og bókum þeirra, sem þóttu jafnvel sigurstranglegar, var stungið undir stól. Allt var það gert viljandi hefur nú komið í ljós og það af pólitískum ástæðum.
    Á undanförnum árum hefur bókaútgáfan Kvistur endurútgefið og endurþýtt sígildu barnabækurnar um þá félaga Pétur og köttinn Brand eftir sænska mynd- og rithöfundinn Sven Nordqvist. Þessar myndríku og fjörugu bækur komu út undir lok síðustu aldar hér á landi í þýðingu Þorsteins frá Hamri og notið vinsælda hjá ungum sem öldnum.
    Héðan eru hugsanlega engar undankomuleiðir, sama hvað við mokum og mokum sandi, sama hvað við prílum upp á bakkana. Þeir molna stöðugt undan okkur og sandurinn þjarmar að. Þetta undarlega og martraðarkennda ástand er sögusviðið í einni frægustu skáldsögu japanska rithöfundarins Kōbō Abe sem við rýnum í hér á eftir, Sunna no onna, The woman in the Dunes. Kōbō Abe hefði fagnað aldarafmæli um þessar mundir og við höldum upp á það með því að rýna í þessa frábæru skáldsögu sem kom Abe rækilega á heimskortið.
    Viðmælendur: Kári Tulinius, Ásta Halldóra Ólafsdóttir, Þorbjörg Karlsdóttir og Brynja Hjálmsdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    51 min
  • Lesóð Z-kynslóð, Haugalygi og „ástandið“ í nýju ljósi
    „Lestur er lostafullur,“ heyrist sagt á Bretlandi um þessar mundir. „Reading is so sexy“ heitir nýlegt greinarkorn á vef breska blaðsins The Guardian þar sem sett eru fram gögn um það að Z-kynslóðin er að lesa. Z-kynslóðin, fólk fætt á árunum 1997 til 2012, hefur í auknu mæli snúið sér að bókum og það á pappír. Bóksala í Bretlandi hefur sannarlega blómstrað undanfarin misseri og ungir lesendur eru að hörfa frá frá mettaðri og hávaðasamri veröld samfélagsmiðla, frá hinu villta stafræna vestri. Á síðasta ári seldust tæplega 700 milljón bækur, bara í Bretlandi og þessi unga kynslóð á um það bil 80% prósent af heildarsölu bóka frá nóvember 2021 til 2022. Við ræðum um bókaæði unga fólksins við Kolbrúnu Maríu Másdóttur, nema í málvísindum við Háskóla Íslands og bókaorm.
    Minnið er dyntótt og lævíst, það er sennilega alveg rétt. Það er opnunarlínan í fyrstu bók Sigtryggs Baldurssonar, tónlistarmanns og trommuleikara. Hann var að senda frá sér bókina Haugalygi sem er samantekt af sögum úr öllum áttum, af honum sjálfum og ættingjum. Þær eru ekki haugalygi, þær eru hvorki alsannar né upplognar. Við röltum til Sigtryggs Baldurssonar og spyrjum hann aðeins út í sögur og sagnalist almennt og hvað maður man, minnið það er víst dyntótt og lævíst.
    Við ætlum líka að halda áfram að kynna okkur bækur um stríð. Síðustu tvo þætti höfum við flett í nýjum íslenskum og erlendum bókum sem glíma við stríðssagnfræði og reyndar líka um yfirstandandi stríð því stríðin virðast vera ævarandi ástand því miður. Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi heitir ný bók eftir Báru Baldursdóttur sagnfræðing þar sem hún dregur upp mynd af ástandinu svokallaða hér á hernámsárunum. Bára hefur lengi rannsakað þetta tímabil í sögu þjóðarinnar og í þessari nýju bók rýnir hún í nýopnuð skjöl, heimildir um ástandið sem lágu í læstum skúffum í hálfa öld.
    Viðmælendur: Kolbrún María Másdóttir, Sigtryggur Baldursson og Bára Baldursdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min
  • Afi minn stríðsfanginn og Davíð Wunderbar
    "Við erum stödd á milli tikk og takk. Þar sem lífið sjálft felur sig." Tilvistin er föst í klukkunni. Við skyggnumst inn í huga sögupersónu sem vill útrýma mælingum tímans. Davíð Wunderbar er önnur skáldsaga Hákonar J. Behrens og þar segir frá manni með hugmyndir, kannski einhverjar ranghugmyndir líka. Þetta er skáldsaga sem flæðir hratt, hún hvellspringur í höndunum á manni og eyrir engu. Aðalpersóna sögunnar telur sig útundan, skilinn eftir og þarf að flýja á ný mið til þess að öðlast einhvern samastað í tilverunni. Þar kynnist hann konu og með þeim takast ástir, en breytir það einhverju? Alltaf hvílir á honum stóra hugmyndin um að nákvæm mæling tímans sé rót alls vanda. Allt frá landbúnaðarbyltingu höfum við verið hneppt í vistarband við tímann.
    Og stríðið heldur áfram. Sögur af stríði hér á Íslandi eru vissulega til og reglulega skjóta upp kollinum bækur þar sem þær eru sagðar. Þegar Ísland var hernumið af Bretum í síðari heimsstyrjöld breyttist margt en það þurfti ekki vopnuð átök til þess og enginn kom og reyndi af hafa af þeim Ísland með vopnum. En stríðið hafði ýmsar afleiddar afleiðingar í för með sér. Í Bókinni Afi minn stríðsfanginn greinir Elín Hirst frá sannri sögu úr sinni eigin fjölskyldu af því þegar breski herinn handtók afa hennar, Karl Hirst, í upphafi hernámsins, fyrir það eitt að vera Þjóðverji. Hann var fluttur ásamt fleirum í fangabúðir á eyjunni Mön. Næstu ár voru öll samskipti þeirra hjóna, Karls og Þóru Mörtu ömmu Elínar, ritskoðuð og Þóra sem var kraftmikil og hugmyndarík kona þurfti að sjá ein fyrir fjölskyldunni. Að stríði loknu tók við önnur barátta - að heimilisfaðirinn fengi að snúa aftur heim til eiginkonu og barna.
    Viðmælendur: Elín Hirst og Hákon Jens Behrens.
    Lesari: Lóa Björk Björnsdóttir.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    49 min
  • Stríðsbjarmar, Kúbudeilan og Aksturslag innfæddra
    „Svo heldur heimsstyrjöldin áfram til sívaxandi blessunar fyrir land og þjóð, enda af mörgum aldrei nefnd annað en blessað stríðið,“ segir í Sjálfstæðu fólki. Þegar kemur að stríðsátökum hefur litla herlausa þjóðin hér á Íslandi upplifað stríðstíma úr fjarlægð en þó ekki mikilli því þeir rata oft heim á endanum og það vitum við. Við ætlum að taka fyrir tvær bækur sem komu út í lok síðasta árs og glíma við stríð. Önnur er um örlagaríka atburði kalda stríðsins og hin er skrifuð um atburði sem standa okkur nær í tíma, og gerast nánar til tekið í rauntíma: stríð í Úkraínu. Við rýnum í bækurnar Kúbudeilan eftir Max Hastings í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, og Stríðsbjarmar eftir Val Gunnarsson. Magnús og Valur verða gestir þáttarins.
    En hefjum leika á allt öðru: sögum af fólki, sögum fjarri stríði. Þórdís Gísladóttir skáld og þýðandi sendi frá sér nýtt smásagnasafn á síðasta ári, Aksturslag innfæddra sem geymir sjö smásögur sprottnar úr raunveruleikanum. Þórdís sendi þar að auki frá sér tvær þýðingar á síðasta ári: Smáatriðin eftir Ia Genberg og Gift eftir Tove Ditlevsen. En í Aksturslagi innfæddra má finna glefsur inn í líf fólks úr ólíkum áttum frá ólíkum tímum. Við fyrstu sýn eru atburðirnir í Aksturslagi innfæddra hversdagslegir og jafnvel smávægilegir en þeir endurspegla stærri hliðar tilverunnar og vekja upp spurningar um það hver við erum og hvort við þekkjum aðrar manneskjur til fulls.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners