Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Umbrot og Duft
    Skáldsagan Umbrot barst með nýjum bókavindum nú á dögunum eftir Sigurjón Bergþór Daðason. Þetta er þriðja bók höfundar en Sigurjón hefur áður sent frá sér Hendingskast og Óbundið slitlag. Umbrot segir frá Pétri sem lifir afskaplega venjulegu og tilbreytingarlitlu lífi og starfar við það að smíða gervilimi, hendur fætur og jafnvel andlit. Hann segist ekki kynnast þeim sem fá þessa útlimi en það er eitthvað persónulegt við að smíða eftirlíkingar af líkamshlutum. En þetta kyrrláta líf Péturs tekur svo skyndilega beygju sem leiðir hann í leit að uppruna sínum, hann þarf að huga að systur sinni sem burðast með fortíðina á bakinu og svo er það kona sem kemur aftur óvænt inn í líf hans en óvíst er með framtíð hennar.
    Bergþóra Snærbjörnsdóttir var að gefa út skáldsöguna Duft sem segir frá Veróníku, einkadóttur vellauðugra líkamsræktafrömuða á Íslandi. Duft er saga konu, saga fjölskyldu og um félagsmótun, áhrif uppeldis, fordóma og gildismat. En í duftinu má finna stóran samfélagsspegil, hvernig hugmyndir geta orðið að þráhyggju, og hvernig við lítum á okkur, á líkama okkar og tengjumst öðrum - eða tengjumst ekki? ?Þægindi eru hið nýja krabbamein í vestrænu samfélagi,? segir á einum stað.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, My body is a Cage - Arcade Fire, Miss Modular - Stereolab
    Lesari: Lóa Björk Björnsdóttir
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    51 min
  • Norðurlandaverðlaun, ritþing um Kristínu Ómarsdóttur og Ból
    Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í óperuhúsinu í Osló í vikunni. Joanna Rubin Dranger frá Svíþjóð fékk verðlaunin fyrir bókina Ihågkom oss till liv, sem er í fyrsta sinn frá upphafi verðlaunanna sem myndasaga hreppir þau í þessum flokki. Stóra fréttin fyrir okkur Íslendinga var auðvitað í barna og ungmennaflokki en Rán Flygenring var verðlaunuð fyrir sína myndrænu sögu, Eldgos. Við fáum viðbrögð Jórunnar Sigurðardóttur dagskrárgerðarkonu við hátíðinni og þessum tveimur bókum en Jórunn gerði 8 þætti á Rás 1 um allar tilnefningar til Norðurlandaverðlaunanna í bókaflokkunum tveimur.
    Við lítum aðeins inn á ritþing Gerðubergs um ska?ldskap og listferil Kristínar Ómarsdóttur, Sjáðu fegurð þína, sem fram fór 28. október í Tjarnarbíói í Reykjavík.
    Og Steinunn Sigurðardóttir var að senda frá sér sína 11. skáldsögu, Ból, mikla átakasögu konu sem gerir upp ævi sína og örlög, þetta er skáldsaga um ofurást sem getur spillt, áföll og uppgjöf en líka styrk og mátt tungumálsins til þess að ná utan um það sem er svo miklu stærra en við sjálf.
    Viðmælendur: Jórunn Sigurðardóttir og Steinunn Sigurðardóttir.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Noktúrna í b-moll ópus 9 númer 1 eftir Frédéric Chopin
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    51 min
  • Örforlög á Norðurlöndum, Una sameinast Benedikt og Stjörnufallseyjur
    Fjallað er um prósaverkið Stjörnufallseyjur eftir Jakub Stachowiak. Draumkennd frásögn um söknuð og sorg sem dregur fram andstæður í hverfulum heimi. Líkamar skjálfa, borgir verða að lófum, hornlausir einhyrningar birtast og gamlar konur baða sig við ljósið í myrkrinu. Marta María Jónsdóttir myndlýsti bókina og Jakub segir okkur allt um verkið í lok þáttar.
    Við hugum líka að bókaútgáfu og það sérstökum kima hennar útgáfur sem flokkast sem örforlög. Ana Stanichevic sem hefur um árabil kennt við íslensku og menningardeild Háskóla Íslands hefur nýlega lokið doktorsprófi frá skólanum en hún rannsakaði örforlög á Norðurlöndum, aðallega hér á Íslandi og Danmörku. Hún segir okkur frá skilgreiningum og einkennum slíkra útgáfa.
    Einar Kári Jóhannsson hefur fengist við bóksölu, ritstjórn og útgáfu um nokkurt skeið. Útgáfa sem hann kom að stofnun, Una útgáfuhús náði góðu flugi fyrir nokkrum árum sem flokka má sem örútgáfu en hefur nú sameinast öðru stærra forlagi, Benedikt. Einar Kári segir okkur frá tilurð þess og hugsjónum nýsameinaðs Benedikts.
    Viðmælendur: Ana Stanicevic, Einar Kári Jóhannsson og Jakub Stachowiak.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Fall - Sigur Rós.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Armeló og Sara og Dagný og ég
    Það streyma fram nýjar bækur þessa dagana, þær eru farnar að hlaupa í stafla. Meðal þess sem kom út í vikunni er skáldsagan Armeló eftir Þórdísi Helgadóttur og smásagnasafnið Sara, Dagný og ég eftir Ísak Regal. Þessar bækur eru afar ólíkar en undir báðum liggur samtími okkar eins og hann blasir við, áskoranir fólks, kvíði, margbrotin sjálfsmynd og fleira. Við flettum í þessum tveimur í þætti dagsins og hlýðum á nýja tónlist eftir tónlistardúettinn Ingibjargir sem vinna með ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
    Viðmælendur: Þórdís Helgadóttir og Ísak Regal.
    Tónlist: Lag 1 - Tómas R. Einarsson, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Paradise Circus - Massive Attack, Chained to a Cloud - Slowdive.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Alþjóðleg barnabókmenntahátíð, Jessica Love og Italo Calvino
    Við verðum í djúpinu í þætti dagsins. Við förum á Mýrina, alþjóðlega barnabókmenntahátíð sem er nýlokið og ræðum við verkefnastjóra hátíðarinnar Veru Knútsdóttur og einn þeirra höfunda sem voru gestir á hátíðinni, bandaríska rithöfundinn, leikarann og myndhöfundinn Jessica Love. Og í djúpinu finnum við líka ítalska rithöfundinn Italo Calvino. 100 ár eru frá fæðingu hans og ný íslensk þýðing er væntanleg á bók hans Borgirnar ósýnilegu frá Brynju Cortes Andrésdóttur. Við ræðum við hana og fleiri um höfundinn og verk hans.
    Viðmælendur: Vera Knútsdóttur, Jessica Love, Stefano Rosatti, Björn Halldórsson og Brynja Cortes Andrésdóttir.
    Lesari: Tómas Ævar Ólafsson
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Innan handar - Skúli Sverrisson og Magnús Jóhann.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    53 min
  • Bókatíðindi í 133 ár, Hrunbókmenntir og Emil Hjörvar Peters
    Bókatíðindi eru árlegur gleðigjafi fyrir bókmenntaáhugafólk. Þessi mikla skrá er nauðsynlegt hjálpartæki þegar kortleggja á flóðið, ná utan um hvað er að koma út og hvað hefur komið út undanfarin misseri. Útprentaða útgáfan er væntanleg en hún er komin á vefinn. Það er Félag íslenskra bókaútgefenda sem gefur út bókatíðindin, skrá yfir útgefnar bækur og má rekja útgáfu þeirra til ársins 1890 sem þá hétu Skrá yfir eignar og umboðssölubækur Bóksalafélagsins í Reykjavík. Skráin spannar sum sé þrjár aldir og nú verður auðveldara að fletta upp í gömlum bókatíðindum. Við heyrum í Bryndísi Loftsdóttur, framkvæmdastjóra FÍBÚT.
    Við skoðum viðbragð rithöfunda við fjármálahruninu en 15 ár eru liðin frá örlagaríkum upphafsdögum þess haustið 2008. Á þessum árum hafa bókmenntafræðingar rannsakað eitt og annað sem einkennir bókmenntirnar á árunum eftir. Við gröfum í gullkistu Ríkisútvarpsins til að átta okkur betur á því.
    Og loks förum við í heimsókn til Emils Hjörvar Petersen rithöfundar sem hefur gefið út sína 10. skáldsögu. Höfundur sem hóf sinn ritferil einmitt á árunum eftir hrun, hann skrifar á mörkum bókmenntagreina og á mörkum miðla, prents og hljóðs, við hittum Emil Hjörvar í lok þáttar og rekjum úr honum garnirnar svo notað sé myndmál sem er eins og beint upp úr einhverri subbulegri hrollvekjunni.
    Viðmælendur: Bryndís Loftsdóttir, Bergljót Kristjánsdóttir, Guðrún Baldvinsdóttir, Viðar Þorsteinsson, Vera Knútsdóttir, Alaric Hall og Emil Hjörvar Petersen.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Crash - Högni Egilsson, Triennale - Brian Eno.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Átök um ljóð og alþýðuskáld og Bakland
    Við verðum með hugann við ljóðalist í þættinum. Það skiptist á með skini og skúrum í heimi ljóðsins og hefur gert það áratugum og öldum saman. Þórður Helgason íslenskufræðingur gaf hér í skyn í byrjun þáttar að það væri ekki búið að gera upp alla bókmenntasöguna. Þórður var að gefa frá sér stóra og mikla bók Alþýðuskáldin á Íslandi sem ber undirtitilinn Saga um átök. Þar rekur hann bleki drifna sögu, átök milli lærðu skáldanna og þeirra leiku frá fyrri hluta 19. aldar til upphafs þeirrar 20., baráttu um stöðu, pláss, gildismat og fagurfræði. Við rifjum líka upp nýrri deilur, kúltúrbörn, strætó- og spíttljóð og dauða ljóðsins. Í lokin ræðum við svo splunkunýja ljóðabók, Bakland, við Hönnu Óladóttur.
    Viðmælendur: Þórður Helgason og Hanna Óladóttir.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos og Good Morning Midnight - Jóhann Jóhannsson
    Lesari: Pétur Grétarsson
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Bókahilla rithöfundar og Kaveh Akbar
    Bara bækur fara í heimsókn til rithöfundarins Sigurlín Bjarneyjar Gísladóttur. Það verður reglulegur liður í þættinum að ræða við rithöfunda sem lesendur, gramsa í bókahillunni þeirra og fá að vita hvað þeir eru að lesa.
    Íransk-bandaríska ljóðskáldið Kaveh Akbar verður einnig gestur í þættinum. Kaveh er stórstjarna á sviði ljóðlistar vestanhafs en bækur hans Calling a wolf a wolf og Pilgrim bell hafa slegið í gegn og fengið frábærar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Kaveh var staddur hér á landi og í þætti dagsins ræðir hann ljóðlist og bænir, tungumálaskilning, baráttu við fíkn og leitina að guði. Við fáum líka lestur á ljóði hans My Empire eða Heimsveldið mitt eins og það heitir í þýðingu Þórdísar Helgadóttur sem snarað hefur nokkrum af ljóðum Kaveh yfir á íslensku.
    Viðmælendur: Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Þórdís Helgadóttir og Kaveh Akbar.
    Tónlist: Pista (Fresh Start) - Los Bitchos, Speak softly now - Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Afskrifaðar bækur, Kletturinn og frásagnir flóttafólks
    Í þessum þætti veltum við fyrir okkur frásögnum flóttafólks og rannsóknum á þeim á sviði bókmenntafræðinnar. Í því samhengi flettum við í bókinni Vanþakkláti flóttamaðurinn eftir Dinu Nayeri, sem var gestur bókmenntahátíðar í Reykjavík í vor, en hún skrifar þar um eigin reynslu og annarra af flótta. Við opnum líka splunkunýja skáldsögu eftir Sverri Norland sem kallast Kletturinn, veltum fyrir okkur samskiptum karlmanna, gömlum leyndarmálum og brengluðu gildismati samtímans. En að geyma bók eða ekki geyma, þar er efinn. Við veltum fyrir okkur afskrifuðum bókum á bókasöfnum, hver ákveður hver á að reka bækur á dyr? Eiga bókaunnendur að safna í stafla eða losa sig við bók eftir fyrsta lestur?
    Viðmælendur: Guttormur Þorsteinsson bókavörður, Sverrir Norland Rithöfundur og Gunnþórunn Guðmundsdóttir prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands.
    Lesari: Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Bara bækur, Milan Kundera og Reykjavík Poetics
    Í þessum fyrsta þætti er fjallað um tvennt sem má vel tengja saman; Skáldskapur rithöfunda sem búa ekki í sínu fæðingarlandi og skrifa jafnvel verk sín ekki á sínu móðurmáli. Á Íslandi hafa nýir vindar borist um bókmenntalífið á undanförnum árum með tilkomu æ fleiri skálda af erlendum uppruna sem fest hafa hér rætur og yrkja bæði á íslensku og öðrum málum. Við fjöllum um þessa þróun og lítum inn á ljóðasamkomur sem hófu göngu sína í sumar, Reykjavík Poetics. Þá förum við líka til meginlands Evrópu og skoðum feril skáldsagnarisans Milan Kundera sem féll frá á þessu ári og hans flóknu tengsl við sínar heimaslóðir. Auk þess verður vöngum velt yfir nafni þáttarins og viðhorfi fólks til bóka og lesturs í gegnum tíðina.
    Viðmælendur: Jón Karl Helgason, Friðrik Rafnsson, Mao Alheimsdóttir, Natasha S. og Kjartan Már Ómarsson.
    Umsjónarmaður: Jóhannes Ólafsson.
    54 min

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,852 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,606 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners