Bara bækur

Bara bækur

By RÚVArts
Download on the App Store

Bara bækur episodes

  • Veðurfregnir og jarðarfarir, Sjónsbók í útrás og orðabókaskrif
    Ný bók með fræðigreinum um rithöfundinn Sjón var að koma út hjá breska bókarisanum Routledge, þetta sætir tíðindum því langt er síðan að alþjóðlegt fræðiverk var ritað um íslenskan rithöfund, síðast um Halldór Laxness. Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og bókaverja segir frá útgáfunni en hún ritstýrði því ásamt Lindu Badley, prófessor emerita í ensku og kvikmyndafræði hjá Middle Tennessee ríkisháskólanum og Gitte Mose, aðjúnkt emerita frá Oslóarháskóla.
    Orðabækur eru líka bækur! Björn Halldórsson rithöfundur segir okkur hvernig það er að semja orðabókaskilgreiningar en Árnastofnun vinnur að gerð nýrrar íslensk-enskrar orðabókar á netinu.
    Veðurfregnir og jarðarfarir heitir fyrsta skáldsaga Maó Alheimsdóttur sem áður hefur fengist við ljóðlist, pistla og gjörninga. Sagan segir frá veðurfræðingnum Helenu eða Lenu og flæðir frásögnin í tíma og milli landa, aðallega Íslands, Póllands og Frakklands en einnig upp í skýin. Lena, sem rannsakar veður og loftslag, sér skýrt hvað blasir við mannkyni, hrakandi heilsu loftslags á jörðu, hvernig það mun hafa áhrif á okkur og hefur áhrif á okkur. Veðrið speglar líka sálarlíf Lenu og ástar- og fjölskyldusambönd hennar. Innra með okkur öllum eru sviptingar í veðri og stundum loftslagsbreytingar.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    56 min
  • Hnífur, Salman Rushdie og Orðskjálfti
    Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness hafa nú verið afhent í fjórða skiptið og að þessu sinni var það Salman Rushdie sem tók á móti þeim við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Rushdie er stórstjarna meðal rithöfunda hins enskumælandi heims. Nýjasta bók hans kom út fyrr á þessu ári Knife eða Hnífur: Hugleiðingar í kjölfar morðtilraunar þar sem hann lýsir lífshættulegri hnífaárás sem hann varð fyrir árið 2022. Þetta er í senn sjálfsævisaga og hugleiðing um dauðann, listina og hamingjuna. Við ætlum að rýna í þessa bók með Guðmundi Andra Thorssyni og Margréti Tryggvadóttur.
    Orðskjálfti heitir stórt norrænt ljóðaverkefni þar sem ungir ljóðaunnendur í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Íslandi velja það besta í ljóðagerð hvers lands og birta saman í úrvali. Sólin sem sefur og Hæ stóri eldfugl eru tvær nýjustu bækurnar, þriðja og fjórða bindið í seríu undir regnhlíf Orðskjálfta og taka þær fyrir árin 2022 og 23. Unnar Ingi Sæmundarson og Ása Þorsteinsdóttir sátu í sitthvorri nefndinni og segja okkur frá þessu viðamikla verkefni, að velja bestu ljóðin.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    51 min

  • Ia Genberg, Queer Situations og Eiríkur Laxdal
    Sænski rithöfundurinn Ia Genberg var gestur á hinsegin bókmenntahátíðinni Queer situations. Nýjasta skáldsaga hennar, Smáatriðin (Detaljerne), kom henni rækilega á kortið árið 2022. Smáatriðin er metsölubók sem þýdd hefur verið á fjölda tungumála, meðal annars ensku í fyrsta sinn og hefur hún vakið gríðarlega athygli, komst á stuttlista alþjóðlegu Booker verðlaunana í ár og hlaut einnig hin virtu Augustpriset verðlaun. Smáatriðin kom út í íslenskri þýðingu Þórdísar Gísladóttur hjá Benedikt bókaútgáfu árið 2023. Ia Genberg er gestur þáttarins.
    Við segjum líka aðeins frá hulduhöfundi í íslenskri bókmenntasögu, Eiríki Laxdal Eiríkssyni, sem uppi var á 18. öld og byrjun þeirrar nítjándu. Undanfarna áratugi hefur betra ljósi verið brugðið á verk Eiríks sem lengst af voru bara til í handritum. Haldin var ráðstefna á dögunum í Eddu húsi íslenskunnar - „Óland kortlagt: Skáldskapur Eiríks Laxdals í íslensku og alþjóðlegu samhengi“ sem Árnastofnun og Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir. Þar var markmiðið var að vekja athygli á vanmetnu framlagi Eiríks Laxdal til bókmenntanna og bregða skýru ljósi á samhengi hans í bókmenntasögunni. Við ræðum við Lenu Rohrbach, prófessor við Háskólann í Basel í Svissog doktorsnemann Maditu Knöpfle en rannsóknir þeirra beggja hafa beinst að Eiríki og þróun skáldsögunnar á 18. öld.
    Viðmælendur: Ia Genberg, Lena Rohrbach og Madita Knöpfle
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    52 min
  • Queer Situations, hinsegin fræði og Herbergi Giovanni
    Efni þáttarins í dag er hinsegin, í brennidepli eru hinsegin bókmenntir og fræði. Splunkuný bókmenntahátíð, Queer Situations, setti svip sinn á vikuna sem leið. Á þessari stuttu hátíð var stórglæsileg dagskrá sem ég ætla að reyna að gera sem mest skil í þessum þætti og eitthvað í komandi þáttum. Hingað komu nokkur þeirra sem þykja mest spennandi rithöfundar hinsegin bókmenntasenu samtímans á vesturlöndum, t.a.m. Maggie Nelson og Ia Genberg. Höfundarnir sátu fyrir svörum, lásu upp og röbbuðu við gesti. Við mælum aðeins hitastigið á upphafi hátíðar. Og svo verður líka fjallað um risa í bandarískum hinsegin bókmenntum á 20. öld, James Baldwin. Fyrsta íslenska þýðingin á verkum hans er komin út, það er hans þekktasta skáldsaga, Giovanni’s Room eða Herbergi Giovanni eins og hún heitir í glæsilegri þýðingu Þorvaldar Kristinssonar.
    Viðmælendur: Sólveig Ásta Sigurðardóttir, Unnur Steina K. Karls og Þorvaldur Kristinsson
    Lesarar: Þorvaldur Sigurbjörn Helgason (eigin ljóð) og Felix Bergsson (úr Herbergi Giovanni)
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson
    50 min
  • Samantekt: Armeló, Stjörnufallseyjur, Aksturslag innfæddra og Kjöt
    Við lítum yfir dagskrá vetrarins og tínum til brot úr athyglisverðum viðtölum. Í dag verða íslenskar bókmenntir í fyrirrúmi. Þórdís Helgadóttir svikaskáld kemur og segir frá fyrstu skáldsögunni sinni Armeló, við ræðum við Jakub Stachoviak um Stjörnufallseyjur, við förum í bíltúr með Þórdísi Gísla hún segir frá smásögunum í Aksturslagi innfæddra og Bragi Páll Sigurðarson sneiðir nokkrar vænar kótilettur fyrir okkur - tölum við hann um skáldsöguna Kjöt.
    Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
    53 min

  • Samantekt: Afskriftir, Kaveh Akbar, Fóstur og Frie Folk
    Það verða valin brot úr athyglisverðum viðtölum vetrarins. Við rifjum upp vettvangsferð á bókasafnið þar sem við kynnum okkur líftíma bóka og afskriftir. Erlend samtímaljóð verða líka á dagskrá: Íransk ameríska ljóðskáldið Kaveh Akbar var staddur hér á landi síðasta haust. Hann leit við í Efstaleitinu og við ræddum lífið og listina. Þýðingar verða líka í brennidepli undir lokin, annars vegar þýðing Helgu soffíu einarsdóttur á skáldsögunni Fóstur eftir Claire Keegan og ný dönsk þýðing á Halldóri Laxness eftir Nönnu Kalkar.

About Bara bækur

From the publisher's feed

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

More shows like Bara bækur

Víðsjá by RÚV

Víðsjá

2 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

The Daily by The New York Times

The Daily

111,874 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

The Rest Is History by Goalhanger

The Rest Is History

15,626 Listeners

Mennska by Bjarni Snæbjörnsson

Mennska

0 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu by Benedikt bókaútgáfa

Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

0 Listeners

Fílalag by Fílalag

Fílalag

73 Listeners