Ein Pæling

Ein Pæling

By Thorarinn HjartarsonSociety & Culture
Download on the App Store
  • Favorites

    25

    Followers

  • Typical duration

    68 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Ein Pæling episodes

  • #428 Gunnar Úlfarsson - Svartir sauðir þrífast best á opinberum vinnumarkaði
    Þórarinn ræðir við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing hjá Viðskiptaráði um svarta sauði á opinberum vinnumarkaði og húsnæðismál. Fjallað erum áhrif þess á vinnustaðamenningu að yfirmenn hafi fá sem engin bjargráð til þess að losa sig við lélega starfsmenn. 

    Rætt er um afleiddar afleiðingar á vinnuþrek annarra starfsmanna og hvernig til langs tíma þetta fyrirkomulag mun koma til með að rýra þjónustu hjá hinu opinbera. 

    Í síðari hluta hlaðvarpsins er rætt um húsnæðismarkaðinn með tilliti til þess hversu mikið af framboði húsnæðis fer utan almenns markaðs. Þetta hefur áhrif á fasteignaverð og framboðskosti þar sem bjögun hins opinbera minnkar fyrirsjáanleika sem hefur áhrif á vilja verktaka til þess að ráðast í verkefni. 

    - Afhverju eru svartir sauðir ekki reknir hjá hinu opinbera? 


    - Minnkar Reykjavíkurborg húsnæðisframboð með niðurgreiddu húsnæði?

    - Hvaða áhrif hefur bjögun á húsnæðismarkaði á fjölskyldumynstur? Þessum spurningum er svarað hér. 

    Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: 

    www.pardus.is/einpaeling

    eða 

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 

    Rkn. 0370-26-440408
    Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur 
    Alvörubón
    1 hr 10 min
  • #427 Hermann Nökkvi Gunnarsson - Það sem sameinar þá sem mótmæla öllu er andúð á Vestrænum gildum
    Þórarinn ræðir við Hermann Nökkva Gunnarsson, blaðamann á Morgunblaðinu, um stjórnmálin á Íslandi, hægrisveifluna, Trump, leikskólamál, og margt fleira. Sérstök áhersla er lögð á Suðurnesin en Þórarinn og Hermann telja báðir að Reykjanesskaginn í heild sinni fái minni athygli en hann á skilið í opinberri umræðu.

    Rætt er um jarðshræringar og Grindavík, hælisleitendamálin á Ásbrú, álit embættismanna í Reykjavík og margt fleira.

    - Afhverju ákváðu embættismenn í Reykjavík að lítið hverfi á Ásbrú gæti tekið við 1400 hælisleitendum?
    - Standa Keflvíkingar verst er varðar aðgengi að leikskóla fyrir börn?
    - Hverjar eru fyrirætlanir Donald Trump í Bandaríkjunum?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Alvörubón
    1 hr 5 min
  • #426 Líf Magneudóttir - No borders er ekki raunhæft
    Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa Vinstri grænna í Reykjavík, um stjórnmálin. Rætt er um framtíð Vinstri grænna, borgarmeirihlutann, pólitíkina, hægribylgjuna, útlendingamál, húsnæðismál, leikskólamálin og borgarlínuna. 

    - Afhverju telur Líf no borders hugmyndafræðina vera ómögulega?
    - Hver er framtíð Vinstri grænna?
    - Hvenær verður borgarlínan kláruð?


    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á:
    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:

    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen 
    Happy Hydrate 
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Alvörubón
    1 hr 11 min
  • #425 Brynjar Karl - Er ævintýri Aþenu lokið?
    Þórarinn ræðir við Brynjar Karl enn á ný þar sem að þessu sinni er rætt sérstaklega um aðkomu borgarinnar og samskipti hennar við Aþenu, körfuknattleikliðs sem hefur verið undir stjórns Brynjars frá upphafi.

    Fjallað er sérstaklega um málefni Breiðholtsins sem hafa verið mikið í deiglunni undanfarin misseri. Farið er yfir þær félagslegu áskoranir sem hafa farið síversnandi, menningarlegar áskoranir, aukna glæpahneigð og fleira, sem Brynjar segir að hægt sé að bæta með auknu íþróttastarfi.

    Þrátt fyrir þá sýn virðist Reykjavíkurborg ekki deila þeirri hugsjón og ætlar Reykjavíkurborg að hætta stuðningi við Aþenu, sem Brynjar segir að muni leiða til þess að íþróttafélagið verði lagt niður.


    - Hvað þýðir það fyrir Breiðholtið að Aþena verði lögð niður?
    - Afhverju virðist Reykjavíkurborg ekki hafa áhuga á því að takast á við félagsleg vandamál í Breiðholti?
    - Hvernig betiri Þorsteinn V. eigin hlaðvörpum í kennslu í kynjafræði?

    Þessum spurningum svarar Brynjar hér. 

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270  

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu
    Pylsur
    Alvörubón
    1 hr 15 min
  • #424 Heiðar Guðjónsson - Pendúllinn er að sveiflast kröftulega til hægri
    Þórarinn ræðir enn á ný við Heiðar Guðjónsson sem er hlustendum þáttarins vel kunnugur. Í þættinum er rætt um fjölbreytt og djúpstæð málefni sem varða íslenskt samfélag og þróun þess til framtíðar.

    Fjallað er um hægri bylgju meðal ungs fólks og hvernig Ísland gæti litið út eftir hálfa öld, um átakamál á borð við Queers for Palestine og tengsl gyðinga við fjármálakerfið, auk þess sem saga mótmælendatrúar og íslam kemur við sögu.

    Þátturinn dregur fram þversagnir fjölmenningarstefnunnar og rýnir í áhrif hennar í sögulegu og menningarlegu samhengi, meðal annars í tengslum við útbreiðslu fjölmenningar síðastliðna áratugi í Evrópu og hvernig hægrimenn leita sér menningarlegs skjóls í viðskiptalífinu, sem er skammgóður vermir.

    Í þættinum er einnig fjallað um gagnrýni á woke-hreyfinguna, hæfileika, raunsæi og jákvæða mismunun og skólastofuna. Heiðar lýsir afstöðu sinni til verkefnis PCC á Bakka, þátttöku lífeyrissjóða í niðurgreiðslu húsnæði, möguleika breytingu um mynt á Íslandi.

    - Er fjölmenningarstefna þvæla?
    - Hver eru afleidd áhrif woke-sins á vinstrimenn?
    - Hvernig verður Ísland eftir 50 ár?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:

    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270  

    Samstarfsaðilar:

    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Alvörubón
    1 hr 32 min
  • #423 Lil Binni - "Ég myndi deyja fyrir stelpurnar sem vilja cancela mér"
    Lil Binni, eða Brynjar Barkarson, er tónlistarmaður sem er frægastur fyrir aðkomu sína í hinni sívinsælu hljómsveit ClubDub. Brynjar hefur miklar áhyggjur af því hvert samfélagið virðist stefna og fyrir skömmu tjáði hann sig um fjölmenningarstefnu Vesturlanda og lét orð falla um múslima sem eru ekki til eftirbreytni. Í þessum þætti er rætt um þessi ummæli og sýn Brynjars á heiminum.

    Hann er spurður hvort að hann sjái eftir ummælunum, djúpríkið, bólusetningar, Kristna trú, menningartengsl og félagsauð, Íslam, hvort leyfa eigi Moskur á Íslandi og hvort að menningarelítan á Íslandi séu föðurlandssvikarar. 

    - Sér Brynjar eftir ummælum sínum um múslima?
    - Er hluti listaelítunnar föðurlandssvikarar?
    - Hver eru hlutverk karla og kvenna að mati Brynjars?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Lag: ClubDub - Deyja fyrir stelpurnar mínar
    Notað með leyfi höfundar.

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:
    www.pardus.is/einpaeling
    eða
    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270  

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Ljárdalur.is
    Alvörubón
    59 min
  • #422 Taxý hönter - Leigubílstjórar fluttir beint frá Mogadishu á Leifstöð
    Þórarinn talar við Friðrik Einarsson en hann hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undir nafninu Taxý hönter þar sem hann birtir myndbönd af breyttu ástandi á leigubílamarkaði. Hann telur ástandið vera óviðnunandi og er það vegna erlendra aðila sem hafa komið inn á markaðinn sem eru ekki tilbúnir að lúta sömu reglum og viðmiðum sem tíðkast hafa á leigubílamarkaði hérlendis.

    Friðrik segir þetta vera sérstaklega slæmt hjá ákveðnum hópum og tengir hann það við stórmoskuna í Skógarhlíð sem hann segir stjórnendur standa í útgerð á leigubílamarkaði og að þeir séu upp til hópa að eyðileggja stéttina innan frá.

    Þá er einnig rætt um þau kynferðisafbrotarmál sem komið hafa upp undanfarin misseri og þá hræðslu sem konur virðast hafa gagnvart því að tilkynna hverskyns afbrot. Komið hafa upp mál sem hafa að gera með ferðir frá Leifstöð sem Friðrik segir að tengist þessu beint. Þá hafi jafnvel komið upp mál þar sem leigubílstjórar hóta að koma heim til fólks og að "eiginkonur starfsmanna læsi hurðum og gluggum extra vel".

    Einnig er rætt um hræðslu lögreglumanna á Keflavíkurflugvelli en Friðrik segir lögregluna veigra sér við að skerast í leikinn vegna hræðslu um ásakanir um rasisma.

    - Er hræðsla við að tilkynna afbrot leigubílstjóra vegna vitneskju þeirra um heimilisfang viðkomandi?
    - Afhverju er lögreglan hrædd við að ná tökum á ástandinu á Keflavíkurflugvelli?
    - Hvernig tengist stórmoskan í Skógarhlíð ástandinu?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:
    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
     
    Samstarfsaðilar:

    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Ljárdalur.is
    Alvörubón
    1 hr 48 min
  • #421 Jón Gunnarsson og Brynjar Níelsson - Woke-ið er bara gamli fasisminn
    Þórarinn ræðir við tvíeykið Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Farið er um víðan völl og rætt um stjórnmálin heima fyrir, ESB, veiðigjöldin, Dag B. Eggertsson, þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar, Grafarvoginn, Útlendingamál, félagslegt húsnæði, rétttrúnaðinn, Gretu Thunberg, borgarlínuna og Úlfar Lúðvíksson.

    - Var það rétt hjá Þorbjörgu Sigríði að reka Úlfar Lúðvíksson úr embætti?
    - Er woke-ið bara nýji fasisminn?
    - Er staðan í útlendingamálum komin í lag? 

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:
    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: 

    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 

    Samstarfsaðilar: 
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Ljárdalur.is
    Alvörubón
    1 hr 59 min
  • #420 Árni Helgason - Umræðan heldur okkur í stanslausu uppnámi
    Þórarinn ræðir við Árna Helgason, lögmann og varaþingmann Sjálfstæðisflokksins, um stjórnmál, hugmyndafræði, mannréttindabylgjur og margt fleira. Farið er yfir mismunandi hugðarefni er varðar veiðigjöldin, ríkisstjórnarsamband Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins, rétttrúnaðinn og hvernig samfélagið missti hausinn og útlendingamál.

    - Afhverju hefur útlendingaumræður breyst undanfarin ár?
    - Misstum við hausinn þegar við hlustuðum á Gretu Thunberg?
    - Eru veiðigjöldin sanngjörn?

    Þessum spurningum er svarað hér. 

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á:
    Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Ljárdalur.is
    Alvörubón
    1 hr 46 min
  • #419 Sigurður Stefánsson: Ríkisstjórnin muni slá Íslandsmet í fjölda þeirra sem eignast ekki húsnæði
    Þórarinn ræðir við Sigurð Stefánsson, framkvæmdarstjóra og stofnanda Aflvaka, þróunarfélags sem starfar í Kópavogi að yfir 5000 íbúðum. Í þættinum er rætt um stöðuna á húsnæðismarkaðnum, hvað sé að, skilyrði til uppbyggingar, stjórnmálin og fleira. Sigurður telur gagnadrifna nálgun vera lykil þess að tryggja fólki séreign en það skorti sárlega hjá stjórnvöldum sem stefni samfélaginu í óefni.

    - Munu núverandi stjórnvöld slá Íslandsmet í fjölda þeirra sem eignast ekki þak yfir höfuðið?
    - Afhverju vill Reykjavíkurborg ekki leysa vandann?
    - Hver eru lýðheilsuvandamálin sem fylgja núverandi ástandi á húsnæðismarkaðnum?

    Þessum spurningum er svarað hér.

    Til að styðja við þetta framtak má fara inn á:

    www.pardus.is/einpaeling

    eða

    Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270

    Samstarfsaðilar:
    Poulsen
    Happy Hydrate
    Bæjarins Beztu Pylsur
    Ljárdalur.is
    Alvörubón
    1 hr 18 min

More shows like Ein Pæling

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

7 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners