Hlaupalíf Hlaðvarp

Hlaupalíf Hlaðvarp

By Vilhjálmur Þór og Elín EddaSports
Download on the App Store

Hlaupalíf Hlaðvarp episodes

  • *28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.IS

    Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir okkur - og hver er Torfi? Þetta eru spurningar sem eflaust hafa brunnið á flestum Íslendingum til lengri tíma og í dag, kæru hlustendur, fáiði svarið við spurningum ykkar - ENJOY! :D

    1 hr 1 min
  • #27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIR

    Í upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta árum og púslar nú fjölskyldulífi, atvinnulífi og íþróttaferli. Hún hefur verið með fremstu hlaupakonum Íslands um árabil og deilir sinni reynslu af því að hreyfa sig í gegnum meðgöngur og koma sér aftur af stað og beint á pall eftir barnsburð. Við minnum að sjálfsögðu á að meðganga getur verið mjög einstaklingsbundin og hvetjum fólk til að hlusta á líkamann og leita til sérfræðings með sérhæfðari ráðleggingar í þessum efnum. 

    Þátturinn er styrktur af leikritinu "Ég hleyp" sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu! :D

    1 hr 10 min
  • #26 Umfjöllun um langvarandi meiðsli

    Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður hlaup á meðan hann var að einbeita sér að því að ná að líða betur í eigin líkama og áhugavert að heyra hvernig honum líður með það. Í spjallinu má nálgast ýmis góð ráð, en jafnframt fá smá innsýn í hugarheim Villa og hvaða áhrif meiðsli geta haft á allar athafnir daglegs lífs. Bon appétit! Þátturinn er í boði Serrano.

    55 min
  • #25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINN

    Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands hönd á HM í fjallahlaupum nokkrum sinnum og því vel til fallinn að ræða þessi mál við  okkur!

    1 hr 21 min
  • #24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar Íslendinga

    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt  viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geislar af henni og áhugi hennar á íþróttum almennt er svo sannarlega smitandi sem allir geta tekið til sín. ENJOY! :D

    1 hr 29 min
  • #23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu!

    Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fyrir STYRKINN. Endilega njótið og fáið góðar hugmyndir fyrir nýju fjallahlaupi í nágrenni Reykjavíkur!

    57 min
  • #22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf!

    Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað  allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að lesa, gera, elda eða hlusta á! 

    56 min
  • #21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir!

    #21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta til sín. Við fórum m.a yfir svefn kvöldið fyrir keppnishlaupið, svefnskuldina á kostnað æfinga og almennt yfir mikilvægi svefns sem skiptir gríðarmiklu máli, ekki bara fyrir fólk sem er að æfa reglulega, heldur fyrir alla í ástandi heimsins í dag. Þáttur dagsins er í boði H-Berg!

    1 hr 4 min
  • # 20 Stóra hlaupinu aflýst/frestað - HVAÐ SVO?

    Í nýjasta þætti fórum við í Hlaupalíf aðeins yfir stöðuna hjá okkur hlaupurum í þessu blessaða ástandi sem er í gangi. Búið að fresta eða aflýsa flestum hlaupakeppnum næstu vikurnar, margir í sóttkví eða eingangrun og enn fleiri að velta fyrir sér hvað hægt er að gera keppnislega og æfingalega séð næstu misserin til að halda sér í toppformi og hamra inn góðu bætingahlaupi síðar á árinu!

    48 min
  • #19 Birna Varðar um átraskanir, næringu og önnur tengd málefni

    Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengið við í hús frumkvöðulinn, næringaspekúlantinn og hlauparann Birnu Varðar. Birna er með BS gráðu í næringafræði og MS í þjálffræðivísindum (hversu töff gráða?)   og sagði okkur frá mikilvægi næringar fyrir heilsu og árangur í íþróttum og sérstaklega í hlaupum, en Birna hefur sjálf lent í alvarlegum fylgikvillum fyrir nokkrum árum tengt þessu sem við förum vel yfir í þættinum og uppbygginguna eftir það, m.a þegar Birna afrekaði að vera Íslandsmeistari í kraftlyftingum!

    Góð og þörf umræða sem vert er að vekja athygli á sérstaklega þar sem í vikunni er National eating disorders awareness week. 

    1 hr 20 min

About Hlaupalíf Hlaðvarp

From the publisher's feed

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem…

More shows like Hlaupalíf Hlaðvarp

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

15 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

13 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Út að hlaupa by Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Út að hlaupa

3 Listeners

UltraForm Hlaðvarp by Sigurjón Sturluson

UltraForm Hlaðvarp

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

Tvær á báti by Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir

Tvær á báti

1 Listeners