
Sign up to save your podcasts
Or


Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við viðtal við hinn margfalda Íslandsmethafa og afrekshlaupara Hlyn Andrésson. Hlynur spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, afreksmannalífið, öll þessu frábæru Íslandsmet sem Hlynur hefur verið að setja undanfarin misseri en hann setti meðal annars Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í mars 2019 er hann hljóp á 29:49 mín og bætti þar með 36 ára gamalt hlaupameistarans Jóns Diðrikssonar - magnað! Virkilega áhugavert að heyra sögu þeirra sem eru í fremsta flokki og setja markið hátt og getum við hin eflaust lært mikið af :D
Í áramótaannál hjá okkur í Hlaupalíf Hlaðvarp förum við yfir hlaupaárið 2019, hvað stóð upp úr innanlands og erlendis. Förum yfir ýmsa flokka eins og Laugaveg ársins, dugnað og skandal ársins sem og óvæntasta innlenda og erlenda atvik ársins OG MARGT MARGT FLEIRA. Þökkum ykkur kæru hlustendur svo KÆRLEGA fyrir árið sem er að líða og hlökkum til nýs hlaupaárs!
Í glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hvaða markmið hann verður með á nýju ári. SPENNANDI. Þið megið ALLS EKKI missa af þessum þætti ef þið þurfið að fá góðar hlaupabóka hugmyndir og smá hlaupa innblástur rétt yfir hátíðarnar og bara hvenær sem er!
Sævar Skaptason 61 árs gamall framkvæmdastjóri ferðaþjónustu Bænda og útivistargarpur er viðmælandi þáttarins! Í þættinum segir hann okkur ýmsar skemmtilegar sögur en hann hefur greinilega upplifað ýmislegt á hlaupaferðum sínum í gegnum árin. Einnig segir hann leyndardóminn við því að halda sér í topp formi á sjötugsaldri. Fróðlegt viðtal sem bætir enn einu púsluspilinu við hlaupasögu okkar hér á Íslandi, en við í Hlaupalíf Hlaðvarp höfum svo gaman af að kynnast henni og langar að leyfa ykkur að njóta með okkur!
# 14
Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp verður þáttastjórnandinn Elín Edda að viðmælanda í stórmerkilegu viðtali eftir heimkomuna frá Frankfurt maraþoninu þar sem Elín hljóp sitt annað maraþon á 2:44;48 klst og bætti þar með tímann sinn um rúmar 4 mín. Í sínum maraþon undirbúningi hefur Elín Edda verið með fjölmargar undirbúningspælingar sem hún miðlar frá sér í viðtalinu sem við vonum að aðrir geta nýtt sér í sínum undirbúningi og má þar nefna vangaveltur er snerta næringu, svefn, matarræði styrktaræfingar o.fl. Hvort sem þú ert að stefna á maraþon á næstunni eða EKKI þá munt þú hafa gagn og gaman af þessu viðtali! :D
Í #13 þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp birtum við STÓRskemmtilegt viðtal við reynsluboltann Rannveigu Oddsdóttur sem hefur afrekað fjölmargt á sínum hlaupaferli, bæði á götunni og í utanvegahlaupum og er hún til að mynda nýkomin heim frá frönsku Ölpunum með 3 sætið í farteskinu frá OCC hlaupinu sem er eitt þekktasta utanvegahlaupið í dag. Við í Hlaupalíf höfum einmitt prófað að hlaupa á þessu svæði og það verða ALLIR að prófa að hlaupa þarna, alvöru landslag. Í viðtalinu förum við rækilega yfir hlaupaferilinn, meiðslasöguna aðrar skemmtilega hlaupapælingar með Rannveigu. Bráðskemmtilegt og fróðlegt viðtal sem hægt er að læra af enda tapar enginn á því að hlusta á sögur frá reynslumiklum og öflugum hlaupurum!
Eins og margir vita þá ætlar maraþon- og ofurhlauparinn Eliud Kipchoge að reyna hið ómögulega; hlaupa heilt maraþon á undir 2 klst í Austurríki í okt. (ca 21 km/klst á brettinu!). Hreint út sagt sturlað, ekki satt? Til þess að fara yfir þessa tilraun og heyra aðeins sögu Kipchoge sem hægt er að læra mikið af, fengum við til okkar í settið Vigni Má Lýðsson sem er allra manna fróðastur um hlaup hér á landi - GoKipchoge!
Ólympíufarinn og Íslandsmethafinn í heilu og hálfu maraþon Kári Steinn Karlsson kíkti til okkar í settið þar sem við fórum yfir hlaup hlaupanna: MARAÞON! Í síðari hluta viðtalsins fórum við svo yfir hlaupaferilinn hjá Kára sem er auðvitað afar áhugaverður og er virkilega gaman að heyra þennan ofurhlaupara segja frá sínum hlaupa afrekum sem eru magnaðir.
Við erum búin að vera ótrúlega spennt að birta næsta þátt en hinn margreyndi maraþonhlaupari og verslunarstjóri Pétur Ívarsson settist niður með okkur í vikunni. Við fórum meðal annars yfir hlaupaferilinn, reynsluna hans frá Reykjavíkurmaraþoninu en þar náði Pétur flottri bætingu. Förum einnig yfir frægu jakkafatamaraþonin, ennþá frægari hlaupahúðflúrin og hvað hlauparar þurfa að gera til að ná undir 3 klst í maraþoni. Það verður enginn ósvikinn af þessu viðtali, hvort sem þú ert hlaupari eða ekki, enda Pétur ótrúlega jákvæður, hress og hreinskilinn viðmælandi sem við hvetjum ykkur til að hlusta á !
Í 9. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við í settið Grétu Rut Bjarnadóttir ung-langhlaupara og tannlæknanema sem sagði okkur frá reynslu sinni sem hún og maki hennar lentu í síðastliðið haust og hvernig hún tók á því með hlaupunum. Virkilega áhugaverður og hreinskilinn viðmælandi sem hefur sögu að segja sem snertir okkur öll, enda lendum við öll í skakkaföllum í lífinu sem við tökum á með mismunandi hætti.
From the publisher's feed

90 Listeners

15 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

13 Listeners

15 Listeners

6 Listeners

3 Listeners

0 Listeners

3 Listeners

27 Listeners

15 Listeners

1 Listeners