Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Landfræðiljósmyndun, bréf til Birnu og hinn mexíkóski Tupac
    Mexíkóski tónlistarmaðurinn og söngvarinn Chalino Sanchez er mikil alþýðuhetja í Mexíkó, Bandaríkjunum og víðar, eins konar mexíkóskur Tupac segir Þórður Ingi Jónsson. Tónlist þeirra er kannski ólík en í báðum tilvikum skrásetja textarnir ofbeldi sem var alltumlykjandi í nærumhverfi tónlistarmannanna. Chalino var ráðinn af dögunum í Mexíkó árið 1992 og er líf hans í rauninni ennþá eitt stórt spurningarmerki. Þórður Ingi segir frá merkilegu og blóði drifni lífshlaupi og dauða söngvarans Chalino Sanchez.
    Við kynnum nýjan pistlahöfund Ingólf Eiríksson til leiks og pistaröðina Bréf til Birnu. Ingólfur mun fara um víðan völl í bréfum sínum í lestinni. Í þessu fyrsta bréfi koma meðal annars við sögu: timburhús, steypa, myspace, aristóteles og hnakkar.
    Og við setjumst niður í Hljómskálagarðinum með Elíasi Arnari ljósmyndara og landfræðinema og spjöllum um landfræðiljósmyndun, um klisjuna sem er íslensk náttúra og verkefni hans Árstíðir Birkis, þar sem hann skoðar tengsl manns og náttúru í gegnum birktréð.
    53 min
  • Shatner níræður, 79 af stöðinni og guðlast í Póllandi
    Við kynnum okkur deilur þungarokkarans Nergal úr hljómsveitinni Behemoth og stjórnvalda í heimalandi hans Póllandi. Hann hefur verið ákærður fyrir guðlast fyrir mynd sem hann deildi á instagram-síðu sinni, en stöðugt fleiri guðlastsmál eru eitt dæmið um íhaldssamari stefnu stjórnvalda Laga og Réttlætisflokksins þar í landi.
    Við heimsækjum Ásgrím Sverrisson kvikmyndagerðarmann og spjöllum við hann um íslenska bíóklassík 79 af stöðinni sem var sýnd í sjónvarpinu í gær á eftir heimildarþættinum Ísland Bíóland.
    Og Star Trek leikarinn William Shatner er níræður. Hvort hann sé geymdur í formalíni, bótoxi eða einhverju þaðan af sterkara er óljóst en hann er í það minnsta enn í fullu fjöri: leikur í kvikmyndum og kemur fram á ráðstefnum. Það var einmitt á einni slíkri sem Sveinn Ólafur Lárusson hitti hann í eigin persónu.
    50 min
  • Hálfur Álfur, Altin Gun og tíbetskar búddanunnur
    Heimildarmyndin Hálfur Álfur segir sögu manns sem undirbýr hundrað ára afmælið sitt en einnig eigin jarðarför. Í myndinni má merkja mikla nánd milli kvikmyndagerðarmannsins, Jóns Bjarka Magnússonar og viðfangsins, Trausta Breiðfjörð Magnússonar - en Trausti var afi Jóns Bjarka. Þar er nándinni þó ekki lokið, því eftir hverjar tökur kom Jón Bjarki heim til sambýliskonu sinnar, Hlínar Ólafsdóttur, og krufði daginn ? enda er hún meðframleiðandi myndarinnar og þess utan, tónskáld: spilar á gamlar og móðar harmonikkur sem kallast á við 100 ára þanin lungu Trausta.
    Við heimsækjum ljósmyndagalleríið Ramskram við Njálsgötu en þar opnar um helgina ljósmyndasýningin Rökræður. Jóna Þorvaldsdóttir, ljósmyndari, var viðstödd árlegan rökræðufund tíbetskra búddanunna í Indlandi árið 2012 og skrásetti á svarthvítar filmuljósmyndir.
    Og Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, rýnir í nýjustu plötu tyrknesk-hollensku þjóðalagasíkadelíupartýsveitarinnar Altin Gun.
    50 min
  • Útrás 2, Chloé Zhao og sítt að aftan
    Það er að riðja sér til rúms, enn eina ferðina, hárið sem fólk elskar að hata. Greiðslan sem gerir fólk geðveikt, klippingin sem sem er svo hallærisleg að hún er kúl. Hér er að sjálfsögðu mælt um möllettið - hártísku sem kemur aftur og aftur og rekur uppruna sinn aftur til áttunda áratugarins.
    ?En lágum hlífir hulinn verndarkraftur // hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur?, en hvað ætli hlífi þá sviðinni jörðu norsku útrásarvíkinganna í Exit? Katrín Guðmundsdóttir rýnir í aðra seríu norsku sjónvarpsþattanna útrás.
    Kínverski leikstjórinn Chloé Zhao varð á dögunum fyrsta konan af asískum uppruna og önnur konan yfirhöfuð til að hljóta Golden Globe verðlaunin fyrir leikstjórn. Hún var aftur sett á sögulegan pall á mánudag þegar hún hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna fyrir leikstjórn, en hingað til hefur aðeins karlmönnum og hvítum konum hlotnast sá heiður. Kínverjar voru ánægðir með Chloe sína, en fagnaðarlætin voru fljót að breytast í baul eftir að gömul ummæli hennar um upprunalandið voru dregin upp af þjóðernissinnuðum netverjum á dögunum.
    50 min
  • Spóla(fsfjörður), Skrekkur og svartsýnar sviðsmyndir
    Úrslitakvöld Skrekks fór fram í gær, en þar keppa grunnskólar Reykjavíkur í gamalgróinni hæfileikakeppni. Fjöldi unglinga tekur þátt í atriðunum sem innihalda frumsaminn hópdans og söng, oftar en ekki með heilnæmum boðskap. Að þessu sinni var það Langholtsskóli sem sigraði í keppninni með atriðið Borðorðin 10.
    Við heimsækjum skólann og spyrjum hvaða boðorð það eru sem íslenskir unglingar þurfa að fylgja í dag - og lærum örlítið um ný hugtök í unglingaorðaforðanum.
    Una Björk Kjerúlf er eins og svo margir búnir að rifja upp menntaskólajarðfræðinai. Hún hefur rifjað upp jarðhræringar fyrri tíma og veltir fyrir sér sviðsmyndum þess sem gæti átt sér stað síðar, hún skoðar bjartsýnustu sviðsmyndir veðurstofunnar en pælir þó aðallega í þeim svartsýnustu.
    Og við heyrum um segulbandaframleiðslu á Ólafsfirði á tíunda áratugnum.
    50 min
  • Salka Valka, kassettur, Tjarnarbíó og Grammy/Óskar
    Í gær hófst heimildaþáttaröðin Ísland: Bíóland eftir Ásgrím Sverrisson, 10 þátta röð þar sem saga íslenskrar kvikmyndagerðar er rakin í máli og myndum. Á eftir þættinum á sunnudagskvöldum sýnir sjónvarpið svo eina sígilda bíómynd sem tengist efni þáttarins á undan. Við í Lestinni ætlum að taka þátt í þessari kvikmyndasöguveislu og á mánudögum næstu vikur ætlum við að kíkja í kaffi til Ásgríms og fáum hann til að segja okkur aðeins nánar frá klassík vikunnar. Að þessu sinni er það hin sænsk-íslenska Salka Valka frá 1954.
    Faðir segulbandsins, uppfinningamaðurinn Lou Ottens lést í síðustu viku 94 ára að aldri. Kassettann átti sinn blómatíma á áttunda og níunda áratugnum, en allar yfirlýsingar um andlát segulbandsins eru hins vegar ótímabærar. Þrátt fyrir að muna fífil sinn fegurri lifir kasettann enn ágætu lífi á jaðri tónlistarlífsins.
    Gígja Björnsson ætlar á næstu vikum að taka púlsinn á íslensku leikhúsi fyrir okkur í Lestinni. Í fyrsta innslagi sínu heimsækir hún Tjarnarbíó og ræðir þar við Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóra um lífróður leikhúsanna í heimsfaraldri og hvernig sviðslistin skoðanir þennan undarlega samtíma.
    Við heyrum líka um Grammy-verðlaunahátíðina og tilnefningar til óskarsverðlauna sem voru opinberaðar í dag.
    50 min
  • Eurovisionleki, fitusmánun, Space odyssey, þýskir kvikmyndadagar
    Mikil leynd hefur ríkt yfir framlagi Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, en tónlistarmaðurinn Daði Freyr, sigurvegari undankeppinnar í fyrra, var fenginn til að semja lag fyrir keppnina í ár. Seint í gærkvöldi bárust þær fréttir að hinu leyndardómsfulla lagi hafi verið lekið á netið en sérfræðingarnir í Fáses segja að raunar hafi nær öllum lögum ársins hingað til verið lekið á rússnenskan samfélagsmiðil.
    Við heimsækjum tilraunarýmið Space Oddyssey sem opnaði nú um helgina. Það eru tónlistarmaðurinn Pan Thorarensen og fatahönnuðurinn Guðrún Lárusdóttir sem halda rýminu úti við laugarveg, þar sem þau verða með allt í senn plötubúð, fataskipti og tónleikarými fyrir sveimandi tilraunatónlist.
    Leikarinn Jonah Hill hefur mátt þola mikið aðkast frá fjölmiðlum vegna líkama síns síðasta rúma áratuginn en segist nú í fyrsta sinn sáttur í eigin skinni. Við kynnum okkur málið og fjöllum um fitusmánun í Hollywood.
    Og við heyrum um þýska kvikmyndadaga sem hefjast í Bíó Paradís um helgina.
    50 min
  • Æði, Frostbiter, haturssöngur, Raya og síðasti drekinn
    Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í tvær kvikmyndir sem eru í bíó þessa dagana, Disneymyndina Raya og síðasti drekinn og heimildarmyndina A Song Called Hate þar sem skyggnst er bakvið tjöldin í umdeildri Eurovision-þátttöku Hatara í Ísrael fyrir rétt um tveimur árum síðan, mynd sem tekst á við mótsagnirnar í list hatara og flækjurnar í pólitískri listsköpun
    Við ræðum líka við hjónin Ársæl Rafn og Lovísu Láru um afkvæmi þeirra, hryllingsmyndahátíðina Frostbiter, sem fer fram í fimmta skipti á Akranesi um helgina. Auk nýrra og sígildra mynda í fullri lengd verða hátt í fjörtíu stuttmyndir verða sýndar á hátíðinni í ár, bæði erlendar og íslenskar - en hrollvekjur hafa að mati þeirra hjón ekki verið nógu áberandi í íslensku kvikmyndalandslagi.
    Það hefur lítið verið um íslenska framleiðslu á raunveruleikaþáttum undanfarin ár, en það gæti breyst með vinsældum sjónvarpsþáttanna Æði en þar er fylgt eftir vinunum og samfélagsmiðladívunum Patreki Jamie, Binna Glee og Bassa. Önnur þáttaröð Æði var sýnd á stöð 2 á dögunum, Júlía Margrét Einarsdóttur hefur skemmt sér yfir hámhorfi á þættina, en mælir hins vegar frekar með að fólk taki þá í smærri skömmtum
    50 min
  • Er ást, rétturinn til að mótmæla og Adam Curtis
    Halldór Armand hefur verið að horfa á nýjustu þáttaröð breska heimildarmyndagerðarmannsins Adam Curtis, sem nefnist Can?t Get you out of my head. Þessi 8 klukktutíma vídjóesseyja Curtis gerir tilraun til að greina tilurð samtímans í gegnum tilfinningar og persónulegar sögur fólks. Halldór Armand tengir hana við klassísk þemu um sjálfið og farsæld
    Við pælum í borgaralegri óhlýðni og réttinum til að mótmæla. Hópur aðgerðasinna vill nú vekja athygli á því sem þau vilja meina að sé misnotkun íslenskra yfirvalda á 19. Grein lögregluyfirvalda, það er greinin sem segir að hlýða beri fyrirmælum lögreglu. Þau vilja meina að með víðri túlkun á greininni, handtökum, ákærum og dómum á grundvelli hennar, sé í raun búið að glæpavæða friðsöm mótmæli.
    Kvikmyndargerðarmaðurinn Kristín Andrea Þórðardóttir tekur sér far með Lestinni í dag. Hún segir okkur frá heimildarmyndinni Er ást, sem hlaut áhorfendaverðlaunin Einarinn á Skjaldborgarhátíðinni í fyrra en verður loks tekin til almenna sýninga í Bíó Paradís á fimmtudag. Er ást segir söguna af sambandi tveggja listamanna, þeirra Þorvaldar Þorsteinssonar og Helenu Jónsdóttur, og staðsetur sig í sorginni sem fylgdi fráfalli Þorvaldar.
    50 min
  • Avókadó-kynslóðin, viðskipti með mím og twitterfærslur, Windrush
    Kvikmyndabálkurinn Small Axe, eða lítil þúfa, eftir Steve McQueen hefur verið sýndur undafarin sunnudagskvöld hér á Rúv. Fimm kvikmyndir sem fjalla um líf, samfélag og reynslu Breta af karabískum uppruna. Síðasta myndin í bálkinum var sýnd í sjónvarpi í gærkvöldi og í tilefni af því ræðir Chanel Björk við plötusnúðinn Cörlu Rose, sem er búsett á Íslandi en hún er afkomandi fólks af windrush-kynslóðinni, fyrstu kynslóð innflytjenda frá vestur-indíum.
    Smjörávöxtur, Avokadó, lárpera, . Allt er þetta nafn yfir sama græna gómsæta ávöxtinn sem hefur skipað sér menningarlegan sess sem uppáhaldsfæða aldamótakynslóðarinnar. Ávöxturinn er einna helst fluttur hingað til lands frá suður-ameríku, mexíkó, kaliforníu en nú hyggja tveir meðlimir hennar, Hafsteinn Helgi Halldórsson og Guðrún Agla Egilsdóttir á innflutning á þeirra eigin avókadó uppskeru á Kanaríeyjum.
    Og við heyrum um Einstök stafræn skírteini, non-fungible tokens eða NFT, en það er spánýtt fyrirbæri byggt á bálkakeðjutækninni sem á að gera fólki kleift að eiga í viðskiptum með stafræn listaverk jafnt sem gamlar twitterfærslur og internetmím eins og þetta
    53 min