Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Konfekt 20 ára, rasískur piparsveinn, sjálfsrækt í Bónus
    Sjónvarpsþátturinn Konfekt fór í loftið á sjónvarpsstöðinni Skjá Einum í febrúar 2001, fyrir nákvæmlega 20 árum síðan. Þátturinn sem var kynntur sem menningarlegur þáttur með listrænum leikþáttum fékk hræðilegar viðtökur, en hefur í seinni tíð öðlast stöðu sem hálfgerður költþáttur í íslensku gríni. Við rifjum upp 20 ára gamalt Konfekt í Lest dagsins.
    Nýjasta þáttaröð raunveruleikaþáttanna um piparsveininn, þar sem hópur kvenna keppir um hönd álitlegs karlmanns, hefur tekið óvænta stefnu eftir ásakanir um rasisma í garðs eins keppenda. Nú hefur þáttastjórnandinn Chris Harrison stigið inn í umræðuna og tekist að klúðra málum enn frekar. Við ræðum við Unni Eggertsdóttur um nýjasta dramað í Bachelor heiminum og veltum fyrir okkur, af hverju það skiptir máli.
    Þá skellum við margnota burðarpokanum í innkaupakerruna og hittum Unu Björk Kjerúlf einhvers staðar á milli grænmetisdeildarinnar og mjólkurkælisins. Hún flytur okkur pistil um hugleiðslu og sjálfsrækt í bónusferðum.
    50 min
  • Psychomagic, uppvask og kynþáttahygja í byggðu umhverfi
    Við veltum fyrir okkur hvernig kynþáttahyggja, rasismi, birtist í hinu byggða umhverfi í gegnum söguna. Chanel Bjo?rk Sturludóttur ræðir við O?skar O?rn Arno?rsson arkitektúrsagnfræðing, meðal annars um miðste?ttarvæðingu - það sem er kallað gentrification a? ensku - hugtak sem hefur verið mikið rætt um meðal annars i? Bandari?kjunum og Bretlandi. Chanel spyr hvort miðste?ttarvæðing sé eitthvað sem við eigum að hafa a?hyggjur af á Íslandi, með aukinni fjo?lmenningu og auknum fjölda innflytjenda.?
    Tómas Ævar Ólafsson flytur okkur sitt fyrsta innslag af þremur um þá athöfn sem honum leiðist meira en allar aðrar, það er að vaska upp. Tómas ræðir um uppvask og andlega vinnu við Kristlínu Dís Ingilínarsdóttur, blaðamann.
    Frönsk kvikmyndahátíð hefur staðið yfir síðustu daga en henni lauk í gær. Örvæntið ekki, frankófílar, nokkrar af vinsælli myndum hátíðarinnar verða sýndar áfram í Bíó Paradís á næstunni, og ein þeirra er ný heimildarmynd eftir síleska költ-leikstjórann Alejandro Jodorowsky, Sálgaldrar eða Psychomagic, heimildarmynd um heilunaraðferð sem hann hefur þróað undanfarna áratugi byggt á sálgreiningu og ýmiskonar dulspekilegum töfralækningum.
    50 min
  • 14 ára Tik-tokari, bílaniður, amerískir draumar, #Actout
    Síðustu daga höfum við rætt við þrjá framleiðendur á samfélagsmiðlinum TikTok. Einn er aktívisit, annar förðunarfræðingur og sá þriðji glensar en þar sem þau eru öll á aldrinum 18 til 23 ára eru þau hreinlega, allt of gömul til þess að teljast raunsannir fulltrúar helstu notenda miðilsins. TikTok er nefnilega einna vinsælast meðal yngra fólks, barna og unglinga, svo í dag gerum við okkur ferð upp í Langholtsskóla og hittum TikTokkara á besta aldri: Önnu Maríu Sonde.
    Við heimsækjum Gallerí Port við Laugarveg þar sem ljósmyndasýningin Amerískir draumar, American Dreams, eftir Snorra Sturluson stendur yfir. Snorri bjó um 16 ára skeið í borginni og á sýningunni varpar hann upp litlum smámyndum af lífinu í stærstu borg Bandaríkjanna, frá falli tvíburaturnanna að kjöri Donalds Trump.
    Julius Pollux heldur áfram að rannsaka hljóðmyndir heimsins í Lestinni í dag. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér hljóðunum sem einkenna íslenskt bæjarlandslag, niðinn í bílum.
    Og við ræðum um eftirtektarverða forsíðu þýska dagblaðsins Suddeutsche Zeitung í síðustu viku þar sem 185 leikarar komu saman út úr skápnum undir myllumerkinu #Actout.
    55 min
  • Já-fólkið, TikTok aktívisti, bensínstöðvar, Múttan og klassa drusla
    Borgarlína, reiðhjólabylting, rafhlaupahjól og rafbílar. Samgöngur eru að taka stakkaskiptum um þessar mundir. Enn um sinn munum við nýta innviðina sem bensínbílarnir kröfðust: götur, hraðbrautir, umferðafléttur og bílastæði - en þau mannvirki sem munu kannski helst verða gagnslaus á rafbílatímum eru bensínstöðvarnar. Við veltum fyrir okkur sögu og framtíð bensínstöðva í Lestinni í dag. Við heimsækjum Minjastofnun Íslands og Reiðhjólaverslunina Berlín sem hefur komið sér fyrir í gamalli bensínstöð við Háaleitisbraut
    Við höldum áfram að kynnast notendum eða kannski frekar framleiðendur á samfélagsmiðlinum TikTok. Í dag hittum við Gunnhildi Fríðu Hallgrímsdóttur sem nýtir miðilinn einna helst í baráttu fyrir málefnum sem henni þykja brýn, en þar má nefna umhverfisvernd og nýju stjórnarskrána.
    Gunnar Theodór Eggertsson, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, stekkur um borð og færir okkur fregnir úr kvikmyndahúsum. Hann rýnir annars vegar í gamanmyndina Múttuna, La Daronne, sem sýnd er á franskri kvikmyndahátíð í Bíó Paradís og hinsvegar í nýja íslenska gamanmynd: Hvernig á að vera klassa drusla.
    Og við heyrum hljóðið í Gísla Darra Halldórssyni en stuttmynd hans, Já-fólkið, er á stuttlista fyrir Óskarsverðlaun ársins; er tilnefnd til tilnefningar.
    55 min
  • Stóra bóluefnatilraunin, Tik-tok förðun, Reddit vs. Wall Street
    Í þessari viku kynnum við okkur nokkra íslenska TikTok-ara. Í gær kynntumst við TikTok stirninu LilCurly en í dag komum við okkur fyrir í förðunarstól Emblu Wigum. Embla er með yfir 840 þúsund fylgjendur á forritinu þar sem hún deilir stuttum myndböndum af sér að farða sig og sýnir svo útkomuna sem er yfirleitt ævintýri líkust.
    Um lítið annað er rætt á Íslandi þessa dagana en mögulega samninga við bandaríska lyfjarisann Pfizer um að Íslendingar fái mikið magn bóluefnaskammta sem hluti af vísindarannsókn á hjarðónæmi. Við pælum í siðferði þess að Íslendingar fái hjarðónæmi gegn kórónaveirunni fyrst allra þjóða.
    Undir lok þáttar fáum við pistil frá Halldóri Armand Ásgeirsson sem fylgdist náið með hinni stór-undarlegu atburðarás þegar smáfjárfestar á umræðusíðunni Reddit fóru í hart við vogunarsjóði á Wallstreet - og vörpuðu um leið ljósi á það hvernig stjórnmál samtímans hafa tekið 90 gráðu snúning.
    55 min
  • Algríms-trapp, LilCurly á Tiktok og Brett Easton Ellis-bókaklúbbur
    Bandaríski rithöfundurinn Bret Easton Ellis er meðal áhrifamestu rithöfunda seinni tíma í Bandaríkjunum en hann er hvað þekktastur fyrir bókina Americvan Psycho sem var síðar gerð að kvikmyndinni. Á Íslandi er rekinn bókaklúbbur á fjarskiptaforritinu Zoom þar sem verk Ellis eru krufin til mergjar en við ræðum við mennina á bak við klúbbinn, York Underwood sem búsettur er hér á landi og Todd Michael Schultz, sem er kærasti og samstarfsmaður Ellis.
    Í Lestinni í þessari viku ætlum við að kynnast nokkrum íslenskum tik-tokkurum, fólki sem hefur vakið athygli og náð vinsældum á samfélagsmiðlinum TikTok.
    Í dag fáum við tik-tok grínistann Lil Curly í heimsókn.
    Og við kynnum okkur algóryþmatrap en Nökkvi Gíslason, tónlistarforritari, sem hefur forritað algrím sem býr til trapptónlist frá grunni án nokkurrar aðstoðar frá mannlegum tónlistarmanni.
    54 min
  • Disney mínus íslenska, Madvillain, listaskrifstofur
    Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur skorað á streymisveituna Disney plús að gera teiknimyndir sínar aðgengilegar á íslensku en lmenn samstaða virðist meðal almennings, stjórnmálamana og fræðafólks um mikilvægi þess að börn geti horft á þetta sívinsæla efni á okkar ástkæra ylhýra. Enn hafa engin svör borist frá Disney en við grípum tækifærið og fáum Ólaf Hauk Símonarson, þýðanda gullaldar disneymyndarinnar Konungur ljónanna, í heimsókn.
    Bandaríski pródúserinn, plötusnúðurinn, hljóðfæraleikarinn og rapparinn Madlib hefur undanfarna tvo áratugi verið í fremstu röð utangarðslistamanna sem láta reyna á þanþol hipphoppsins. Hann hefur þó aldrei gefið út sólóskífu undir sínu aðallistamannsnafni fyrr en nú, en breiðskífan Sound Ancestors sem var sett saman af breska raftónlistarmanninum Four Tet kom út nú fyrir helgi. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í feril taktútsetjarans Madlib og hans nýjustu skífu hér á eftir.
    Í gær heimsóttum við listamannatvíeykið Krot og Krass, en þau vinna nú að því koma á fót skapandi gámarými í gamalli áburðarskemmu í Gufunesinu. Þetta verksmiðjuhverfi er óðum að umbreytast í þorp skapandi greina, með kvikmyndaverum og vinnustofum listafólks. Í kjölfarið fór Kristján að velta fyrir sér hvernig listamenn hafa nýtt sér mannvirki gamalla atvinnuhátta hingað til og hvernig þær gætu gert það í framtíðinni.
    54 min
  • Bling Empire, Blown Away, skapandi gámahverfi, ályktanir google
    Stóru netrisarnir vita allt um okkur. Hver við erum, hvað við gerum, hvað okkur líkar við og hvað ekki... eða hvað? Við fundum síðu á vefnum sem sýnir okkur hvað Google telur sig vita um okkur og niðurstöðurnar komu á óvart.
    Við heimsækjum gamla 1200 fermetra áburðarskemmu í Gufunesi sem er um þessar mundir að breytast í skapandi gámahverfi, þar sem listamenn, hönnuðir og frumkvöðlar munu getað komið fyrir vinnustofum og skapandi rýmum í gámum. Það er tvíeykið Krot og Krass, Björn Loki og Elsa, sem helst eru þekkt fyrir risastórar veggmyndir sínar sem standa fyrir verkefninu.
    Sjónvarpsrýnir Lestarinnar, Katrín Guðmundsdóttir, elskar raunveruleikasjónvarp. Hún hefur þó stundum farið leynt með þessa ást sína þar sem það þykir ekki endilega sérlega fínt að njóta slíks efnis. Í dag útskýrir hún fyrir okkur afhverju neikvætt viðhorf til raunveruleikaþátta er kannski í raun frekar yfirborðskenndur lestur, með því að rýna í tvær nýjar Netflix seríur: Bling empire - um ríkt fólk í Los Angeles af austur asískum uppruna og glerlistakeppnina Blown away.
    50 min
  • Landvættirnar fjórar, birtingarmyndir raunveruleikans, nafn háns látna
    Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir flytur sinn síðasta pistil í Lestinni í bili. Að þessu sinni veltur hún fyrir sér dauðunum og hvernig við minnumst transfólks eftir andlátið.
    Við ræðum við Guðmund Stein Gunnarsson tónskáld um landvættirnar fjórar, nýtt tónvverk innblásið af deilum prests og trúleysingja um uppruna sögunnar um Landvættirnar fjórar.
    En við ætlum að byrja á raunveruleikanum, hvernig hann birtist okkur í sjónvarpi, á samfélagsmiðlum og í valdaránum.
    55 min
  • SOPHIE, Frönsk kvikmyndahátíð og bíræfnir bókaþjófar
    Síðastliðin þrjú ár hafa höfundum, umboðsmönnum og bókaútgefendum um allan heim borist undarlegir tölvupóstar. Við fyrstu sýn virðast skeytin koma frá kollegum þeirra í bransanum sem vilja ólmir fá að sjá hin ýmsu óútgefnu handrit, en þegar betur er að gáð eru tölvupóstföngin tómt fals. Íslenskir höfundar, meðal annars Björn Halldórsson sem í vikunni gefur út sína fyrstu skálfsögu, hafa ekki farið varhluta af þessum tilraunum til handritaþjófnaðs. Ástæða þeirra er á huldu. Stærsta spurningin er þannig ekki hver heldur af hverju?
    Áhugafólk um framúrstefnupopp er harmi slegið eftir helgina. Á laugardaginn lést skoski músíkantinn, upptökustjórinn og transíkonið SOPHIE 34 ára að aldri. Nafnið er kannski ekki á allra vitorði en áhrifin eru óumdeild, enda er tilraunakenndur rafrænn hljóðheimur SOPHIE algjörlega einstakur, framtíðarlegur og nánast áþreifanlegur. Ana Stanicevic sest um borð í Lestina og ræðir um tónlist og persónu SOPHIE.
    Einnig verður rætt um Franska kvikmyndahátíð sem hefst í vikunni í tuttugasta og fyrsta sinn.
    55 min