Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ólíkur húmor kynslóðanna, RomCom, nýfundin gömul hringadróttinssaga
    Við kynnum okkur 30 ára gamla rússneska sjónvarpsmynd byggða á Hringadróttinssögu, mynd sem hefur slegið í gegn á Youtube, þrátt fyrir - eða kannski einmitt vegna þess - hversu hrá og heimagerð hún er. Við hringjum á Blönduós og ræðum rússnesku hringadróttinssögu við Rúnar Þór Njálsson, einhvern mesta Lord of the rings aðdáanda landsins.
    Þær tröllriðu tíunda áratugnum en hurfu svo nánast með öllu. Núna virðast þær hinsvegar loksins vera að sækja í sig veðrið að nýju. Við spyrjum okkur hvað olli andláti rómantísku gamanmyndanna og hvað það var sem vakti þær upp frá dauðum.
    Og Una Björk Kjerúlf flytur okkur pistil um djók og ólíkan húmor kynslóðanna. Um þessar mundir fara átök um það hvað telst gott grín ekki síst fram á Twitter, þar sem hinir yngri grilla en talsmenn eldri kynslóðanna græða sár sín.
    55 min
  • Einkennisbúningur íslensku húsmóðurinnar, Sódóma og geimkapphlaup
    Í dag eru nákvæmlega 60 ár liðin frá því að hinn sovéski Yuri Gagarín varð fyrsti maðurinn í geimnum, fór hringinn í kringum jörðina á klukkutíma og 48 mínútum. Við nýtum tilefnið og kíkjum með Atla Þór Fanndal á kaffihús en Atli er verkefnastjóri hjá geimvísinda- og tækniskrifstofunni Space Iceland.
    Við höldum áfram að horfa á íslenska bíóklassík meðfram heimildarþáttunum Ísland: Bíóland sem eru sýndir um þessar mundir á RÚV. Í dag spjallar Ásgrímur Sverrisson leikstjóri þáttanna um stemningsmyndina Sódóma Reykjavík sem hefur öðlast stóran sess í dægurmenningu þjóðarinnar.
    Og við heyrum um einkennisbúning íslensku húsmóðurinnar á seinni hluta 20. Aldarinnar, Hagkaupssloppinn sem var til á nánast hverja einasta heimili hér á landi.
    55 min
  • Systrabönd Silju
    Silja Hauksdóttir, leikstjóri, sest um borð í Lestina þennan fimmtudaginn. Silja hefur í hátt í tvo áratugi skrifað handrit, leikstýrt kvikmyndum og sjónvarpsseríum: Dís, Stelpurnar, Ríkið, Ástríður, Agnes Joy, Kópavogskrónika og nú síðast Systrabönd, sex þátta sería á Sjónvarpi Símans um þrjár miðaldra æskuvinkonur sem þurfa að takast á við gamlar syndir þegar lík unglingsstúlku finnst í námu á Snæfellsnesi nálægt bænum þar sem þær ólust upp. Við ræðum við Silju um kvenlæga leikstjórn, fjölbreytileika á skjánum og konur sem beita ofbeldi.
    55 min
  • Töfrar svepparíkisins, Lil Nas X og ein villa á stafsetningarprófi
    Ingólfur Eiríksson flytur okkur sitt annað bréf til Birnu hér í Lestinni á miðvikudegi, að þessu sinni koma nördar, augnlæknar og stafsetningapróf meðal annars við sögu.
    Anna Marsibil kynnur sér deilur um nýjasta myndband og lag rapparans Lil Nas X, en í mynbandi við lagið Montero dansar suðurríkjarapparinn við sjálfan djöfullinn í tilraun til að hneyksla góðborgara heimsins.
    Og við förum í heimsókn til Þorsteins Úlfars Björnssonar áhugamanns um svepparíkið en hann hefur gefið út bók um þessa mögnuðu lífveru og sambúð manns og sveppa.
    54 min
  • Systrabönd, Síð-sovéska nýbylgjan, fötluð Disney-illmenni
    Yfir hátíðarnar hljómuðu þættir um heim Walt Disney teiknimynda hér á Rás 1, þættir sem nefnast Veröldin hans Walts. Þeir fóru um víðan völl, veltu fyrir sér hvort fataskápar gætu verið kynæsandi og afhverju disney dýr eru með ofvaxin augu auk þess sem sitthvor þátturinn tók fyrir illmenni og fatlanir. En hvað þá með fötluð illmenni? Við heyrum það sem út af stóð af samtali við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, barnabókahöfund og Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur, listfræðing og baráttukonu.
    Sjónvarpsþættirnir Systrabönd rötuðu inn á Sjónvarp Símans fyrir páska og sjónvarpsrýnir Lestarinnar, Katrín Guðmundsdóttir sá þá alla. Þættirnir fjalla um þrjár æskuvinkonur sem þurfa að horfast í augu við drungalega fortíð.
    Og við kynnum okkur athyglisverða söguna á bakvið safnplötuna Red Wave, sem kom út fyrir 35 árum, árið 1986. Á plötunni heyrðu vesturlandabúar í fyrsta skipti tónlist úr sovésku neðanjarðarrokksenunni, en rokktónlist hafði verið bönnuð að mestu leyti þar í landi. Til að gera útgáfuna að veruleika smyglaði ung amerísk tónlistarkona, Joanna stingray, græjum og upptökum yfir landamærin. Við heyrum um Jóhönnu Stingskötu og síð-sovésku nýbylgjuna.
    57 min
  • Skipið í Eyðimörkinni, einkennisbúningar og hin eina sanna
    Júlía Margrét Einarsdóttir rýnir í Netflix-sjónvarpsþættina The One, vísindatrylli sem fjallar um leitina að hinum fullkomna maka, hina einu sönnu ást, með hjálp erfðatækni.
    Í upphafi vikunnar tókst eftir mikla vinnu að losa risavöruflutningaskipið Ever Given sem sat strandað í Súes-skurðinum í miðri eyðimörkinni í Egyptalandi í tæpa viku. Við veltum því fyrir okkur
    Lindu Björg Árnadóttur, fatahönnuður, dósent við Listaháskóla Íslands og eigandi textíl merkisins Scintilla hoppar um borð í Lestina í dag. Við ræðum við Lindu um hennar daglegu störf en spjöllum einnig við hana um einkennisbúninga: hvíta kraga, bláa kraga og kragaleysi.
    50 min
  • Nektarsjálfur, hljóðbankatónlist og Eydís Evensen
    Eydís Evensen, píanóleikari og tónskáld, er upprennandi stjarna í heimi samtímaklassíkur. Bylur nefnist hennar fyrsta plata sem kemur út á næstunni. Við heimsækjum Eydísi í dag, spjöllum um nýju plötuna og heyrum hvernig það gerðist að hún landaði samning hjá útgáfurisanum Sony.
    Nekt hefur verið vinsælt þema í listsköpun mannskepnunnar frá örófi alda. Stundum er hún blátt áfram, stundum er hún kynferðisleg, stundum er hún list. En hvenær er hún list? Við veltum fyrir okkur sköpum og listsköpun á nektarsjálfum samtímans.
    Og við heimsækjum hljómsveitin Hvörf sem gerir tónlist innblásna af svokallaðri Library Music hljóðbankatónlist, sem var fjöldaframleidd fyrir bíómyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar á seinni hluta 20. aldar. Önnur platan frá Hvörf, Music Library 02 kemur út á fimmtudag.
    50 min
  • Hrafninn flýgur, leikhús í lokunum, Bassi gegn Bjarna Ben
    Ungur maður að nafni Bassi Maraj skapaði mikla ólgu á netheimum um helgina, eftir að hafa svarað tísti frá fjármálaráðherra Íslands fullum hálsi. Stjórnmálafræði prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson blandaði sér í málin en uppskar einnig væna - ef glettnislega - pillu úr ranni Bassa.
    Bassi þessi á vinsælt lag um þessar mundir, nefnt eftir honum sjálfum, en hann er þó best þekktur úr raunveruleikaþáttunum Æði, þar sem áhrifavaldarnir Binni Glee, Patrekur Jaimie (Hæme) og auðvitað Bassi eiga sviðið. Við fáum leikstjóra þáttanna, Jóhann Kristófer Stefánsson, til að kryfja atburði helgarinnar.
    Við rifjum upp snilldina Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson, víkingamynd sem sækir jafnt í íslenskan sagnaarf sem ítalskra spagettívestra og japanskra samúræjamyndir. Við heyrum um ástæður þess að nánast hver einasti skandinavi þekkir þessa línu úr myndinni.
    Og Gígja Sara Björnsson heldur áfram að kynna sér sviðslistir í samkomubanni. Fyrir tveimur vikum ræddi hún við Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóra Tjarnarbíós, en nú sest hún niður með Hallfríði Þóru Tryggvadótttur, listrænum stjórnanda, amerísk-skandinavíska sviðslistahópnum í New York sem hefur þurft að fara nýjar leiðir til að kynna sviðslistir norðurlanda í heimsfaraldri.
    50 min
  • Lest við stofuhita
    Bergur Ebbi Benediktsson sest um borð í Lestina í þætti dagsins. . Nýir sjónvarpsþættir hans, Stofuhiti, hefjast á Stöð 2+ í dag. Þar ætlar hann að fara með áhorfendur í hugmyndaferðalag um tækni og samtímamálefni og setja í óvænt samhengi. Þetta eru nýstárlegir þættir í sjónvarpi, hálfgerðir fyrirlestrar byggðir á bókum sem hann hefur gefið út undanfarin árið, Skjáskot og Stofuhiti. Við ræðum við Berg Ebba um samtímann, framtíðina, tæknina og hjartað.
    50 min
  • Eldgosa-meme, eldfjallahljóð, Nomadland, Þorpið í bakgarðinum
    Gunnar Theodór Eggertsson flytur gagnrýni um tvær myndir sem sýndar eru í íslenskum kvikmyndahúsum þessa dagana, hina óskarstilnefndu Nomadland eftir Chloé Zhao og nýja íslenska mynd Þorpið í bakgarðinum eftir Martein Þórisson.
    Við veltum líka fyrir okkur internetvídd eldgossins í Geldingadölum, er gosið að eiga sér stað í raun og veru eða bara á samfélagsmiðlum?
    Við sláumst í för með eldri og yngri jarðfræðingum á leið að gosstöðvunum. Með í för eru einnig þrír mismunandi hljóðnemar sem velta fyrir sér: hvernig hljómar eldfjall?
    54 min