Mannlegi þátturinn 18.sept 2018
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Margrét Blöndal
Svokallaður fólksflótti af landsbyggðinni hefur verið viðvarandi í
áratugi og mörgum þykir nauðsynlegt að bregðast við með einhverjum
ráðum. Kristín Einarsdóttir fór á fund á Hólmavík þar sem rætt var um leiðir til úrbóta en það var Jón Jónsson þjóðfræðingur sá um verkefnið ásamt þeim Agnesi
Jónsdóttur og Guðrúnu Gígju Jónsdóttur sem einnig eru báðar þjóðfræðingar.
Um síðust helgi var haldin Ráðstefna í Morsfellsbæ sem bar yfirskiftina Heimsljós. Þar var rætt um andlega og líkamlega heilsu okkar frá mögum hliðum - hefðbundum og óhefðbundnum. Valdimar Gísli Valdimarsson skólastjóri Raftækniskólans var einn þeirra sem hélt erindi - og ræddi að sjálfsögðu um áhrif rafmagns á okkur mennina. Valdimar kemur til okkar á eftir
Söngurinn eflir félagsauð og ræktar sálir, segir Þórunn Björnsdóttir kórstjóri, sem hélt fyrstu söngstundirnar í Hannesarholti , þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Nú er nýtt fólk tekið við söngstundunum en þær eru nú orðnar frá upphafi 42 talsins. Hannesarholt vill efla söngarfinn með kynslóðunum og allmargir hafa lagst á árar með okkur til að halda úti SyngjumSaman stundum einu sinni til tvisvar í mánuði. Við sláum á þráðinn niðrí Hannesarholt.