Föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni var Arnheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. Hún hefur gegnt því starfi í tæp sex ár. Við fræddumst um uppvöxt hennar í Hrísey, skólagöngu, Glasgow og auðvitað ferðamennskuna.
Leikritið Griðastaður er einleikur um dauðleikann, fjöldaframleiðslu húsgagna, Billy-hillur, bældar tilfinningar, mömmur, sænskar grænmetisbollur, fyrrverandi kærustur, krúttlegar skjaldbökur, einsemd, sniðugar kryddhillur, dauðann, Nockeby-sófa, lífið, sorgina og fleira. Við fengum þá Jörund Ragnarson leikara og Matthías Tryggva Haraldsson, höfund verksins í þáttinn og spjölluðum um Griðastað.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, kom með sitt matarspjall í þáttinn í dag. Hún sagði meðal annars frá jógúrtframleiðslu La Fageda á Spáni þar sem kýrnar fá mjög sérstaka lúxusmeðferð og litla veitingastaðnum Can Paixano í Barcelona, þar sem gólfin eru skítug, þjónarnir dónalegir, hávaðinn yfirgnæfandi en maturinn og stemmningin ógleymanleg.
Umsjón Margrét Blöndal og Gunnar Hansson