Tímaritið Vikan verður 80 ára í næsta mánuði, fyrsta tölublað kom út þann 21. nóvember árið 1938. Frá upphafi hefur efni blaðsins verið fjölbreytt, þjóðlegur fróðleikur, mannleg efni, framhaldsögur og smásögur, myndasögurnar, lesendabréfin, eða Pósturinn svokallaði, og fleira og fleira. Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar, kom í þáttinn og fór yfir sögu blaðsins.
Við heyrðum brot úr útvarpsþættinum Landaöldin frá árinu 1967, en sá þáttur kom í beinu framhaldi af þáttum um bannárin. Í þessum þætti ræðir Stefán Jónsson við Guðlaug Jónsson lögregluþjón og tvo landabruggara og hlustendur eru varaðir við píphljóðum á nokkrum stöðum sem notuð voru til að fela nöfn nokkurra sem koma við sögu. Við heyrðum brot úr samtalinu við Guðlaug lögregluþjón og síðan annan af landabruggurunum.
Elfar Logi Hannesson, sýnir í kvöld einleik sinn um Sigvalda Kaldalóns í Hannesarholti. Rakin er í verkinu litrík saga tónskáldsins og fluttar helstu perlur hans. Elfar kom í þáttinn í dag.
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson